Tíminn - 30.03.1979, Blaðsíða 15

Tíminn - 30.03.1979, Blaðsíða 15
Föstudagur 30. mars 1979 15 OGOQQOQi „ÞETTA VAR STÓRKOSTLEGr — sagði KR-ingurinn Arni Guðmundsson eftír að KR hafði unnið Val 77:75 i úrslitaleik íslandsmótsins i gærkvöídi KR-ingar urðu islands- meistarar i körfuknattleik i gær- kvöldi er þeir sigruðu Valsmenn með 77 stigum gegn 75 i æsispenn- andi úrslitaleik i Laugardalshöil- inni að viðstöddum 2700 áhorf- endum. i hálfleik var staðan 42:36 KR i vil. Það var augljóst strax i upphafi að hart yrði barist. Varnir lið- anna voru mjög þéttar fyrir og sóknarleikurinn var fálmkenndur fyrstu minúturnar. Áhorfendur settu mjög svo svip sinn á leikinn með stöðugum hvatningarhróp- um og undirrituðum er til efs að nokkru sinni hafi verið jafn mikil og góð stemmning á innbyrðisleik islenskra liða. KR hafði frumkvæðið allt fra byrjun en fékk fljótlega á sig mikið af villum, en það virtist ekki há liðinu mikið siðar i leikn- um þótt undarlegt sé. Eftir 5 min. leik var staðan 10:4 fyrir KR en upp frá þvi fór að færast meira fjör i sóknarleik liðanna og um leið varð leikurinn fjörugri. KR jók forskot sitt i 10 stig — 26:16 en Valsmenn hleyptu þeim ekki — Þetta var stórkostlegt á allan hátt sagði Arni Guðmundsson KR-ingur er við spjölluðum við hann eftir leikinn. — t raun fannst mér bæði liðin eiga skilið að vinna þennan leik þvi leikurinn var mjög góður af beggja hálfu og það var sorglegt að annað liðið þyrfti aðyfirgefa völlinn með tap á bak- inu. — Við lékum þennan leik mjög vel i heildina og Hudson var frábær i lokin. — Þetta var stórkostlegur endir á stórkostleg- um vetri sagði Arni i algerri sigurvimu eftir leikinn. John Hudson: — Við unnum þennan leik fyrst og fremst á góðri vörn og svo þvi að við hirt- um miklu fleiri fráköst en þeir i leiknum. — Vissulega vorum viö lengra frá sér. Undir lok fyrri hálfleiksins náðu Valsmenn sér vel á strik og minnkuðu muninn i 6 stig fyrir leikhlé. KR-ingar byrjuðu seinni hálf- leikinn vel að vanda en Valsmenn börðust vel og gáfu ekki þumlung eftir. KR leiddi 55:48 á 7. min. seinni hálfleiksins en þá tóku Valsmenn góðan kipp og komust yfir 59:57. Upp frá þessu munaði ekki nema tveimur stigum á lið- unum og skiptust þau á um að hafa forystu. Ahorfendur v.oru geysilega vel með á nótunum og hvöttu sina menn af miklum krafti. Þegar staðan var 69:69 og rúmar þrjár minútur til leiksloka braust Tim Dwyer i gegnum vörn KR og skoraði og var brotið á honum i leiðinni. Hann fékk þvi eitt vitaskot að auki en tókst ekki að skora úr þvi. — Ég tel að þetta atvik hafi gert útslagið i leiknum. sagði Arni Guðmundsson i KR eftir leikinn. KR-ingarnir jöfnuðu 71:71 og siöan var aftur jafnt 73:73 þegar oft i taphættu i leiknum — maður er það alltaf i leik gegn jafnsterku liði og Valur er. — Tvö bestu liðin léku til úrslita um titilinn og það fannst mér skipta miklu máli fyr- ir alla og þessi leikur hlýtur að hafa verið islenskum körfuknatt- leik mikil lyftistöng. — Ekki þar fyrir, ég sagði strákunum i KR að við myndum vinna þennan leik og við það stóðum við. Garðar Jóhannsson: — Þetta var mjög erfiður leikur fannst mér en stemmningin var hreint ótrúleg! — Eg held að það hafi stappað i okkur stálinu þegar Jón Sig. var kominn með 4 villur i lok fyrri hálfleiksins, en i heildina lék liðið eins og það getur best. 95 sek. voru eftir. KR komst yfir 75:73 og voru þá 76 sek. eftir af leiktimanum. Valur jafnaði 75:75 þegar 58 sek. voru eftir og allt ætlaði vitlaust að verða i Höll- inni. Þegar 32 sek. voru til leiksloka skoraði John Hudson körfuna, sem reyndist vera úrslitakarfa leiksins. Valsmenn fengu þó boltann en eftir miklar stymping- ar og læti var dæmt uppkast. Hudson og Dwyer fóru í uppkastið og vann Hudson boltann. KR- ingar lögðu áherslu á að halda boltanum þessar 23 sek. sem eftir voru og tókst það fyrirhafnarlitið þótt þeir lékju án Jóns Sigurðs- sonar sem var kominn með 5 vill- ur þegar rúmar tvær min. voru eftir. Þegar blásið var til leiksloka braust út mikill fögnuður á meðal KR-inga og var ekki laust við að sums staðar hryndu tár af hvörmum. Gamla góða KR hafði enn einu sinni unnið Islandsmót- ið. Leikurinn var i heildina mjög skemmtilegur og jafn og i raun átti hvorugt liðanna skilið aö tapa. Hjá KR var Hudson góöur en Jón Sig. var allt i öllu að venju. Þá átti Einar góðan ldag i þessum siðasta leik sinum. Þá var Garðar góður ( fyrri hálf- leiknum. Af Valsmönnunum áttu Tim Dwyer og Torfi einna bestan dag, en margir leikmanna virtust ekki ná að sýna sitt besta i þessum leik. Rfkharður var þó ágætur, en flestir léku undir getu. Dómarar voru þeir Erlendur Eysteinsson og Kristbjörn Al- bertsson og dæmdu þeir leikinn af stakri prýði allan timann og hefur dómgæsla ekki verið betri i vetur. Stig KR:Hudson 34, Jón 14, Einar, 14, Garðar 8, Þröstur 4 og Birgir 3. Stig Vals: Dwyer 37, Torfi 13, Rikharður 11 Þórir 9, Gústaf 2 Kristján 2 og Sigurður 1. Maftur leiksins: John Hudson, KR. Sagt eftir leikinn: Það var aldrei neitt gefið eftir i leiknum i gær. Tim Dwyer er lengst til vinstri, þá kemur Einar Bollason, Rikharður Hrafn- kelsson og lengst til hægri er Gflstaf Gústafsson Guðmundur tíl Anderlecht — veröur i æfingabúöum hjá félaginu i 3 vikur Guðmundur Steinsson, hinn ungi og stórefnilegi miðherji Framara, hclt utan til Belgiu i morgun þar sem hann mun stunda æfingar um þriggja vikna skeið hjá belgiska stórliöinu Anderlecht. Þá fór Gunnar Bjarnason, mið- vörður þeirra Framara. einnig utan i gær en i öðrum erindum. Gunnar hélt nefnilega til Banda- KIDD TIL Gordon Lee. framkvæmdastjóri Everton, snaraði i - ga-r 150.000 sterlingspundum á; borðið og nældi sér í Brian Kiild frá Man- chester City. Ewerton er fjórðá~liðið, sem Kidd leikur með á' ferli sinum Hann lék fyrst með'Manchester United, en fós siðan til Arsenal. Þaðan iá leiö hans aftur til Man- chester en þá til City og nú er ríkjanna en þar mun hann dvelja næstu sex vikurnar á vegum vinnuveitenda sins við námskeiö en Gunnar er útvarpsvirki að at- vinnu og vinnur á Keflavíkurflu- velli. Gunnar hvggst æfa stift i Bundarikjunum ogmunuhann og Guðmundur mæta galvaskir til leiks þegar tslandsmótið hefst i maf. EVERT0N hann kominn til Everton. Lee var ekki aögerðalaus I gær þvi hann skipti við QPR á Micky Walsh og Peter Eastoe. Everton keypti Walsh á 300. 000 pund frá Blackpool. en hann hefur aldrei náð að festa sig I liðinu hjá Ever- ton og var þvi kjöriö að losa sig við hann. Eastoe er ungur leik- maður og skoraði mjög mikið fyrir QPR s.l. keppnistimabil en hefur haft hægara um sig í vetur. Hólmfert ánægður — eftir 2:0 sigur Fram I Keflavlk Hólmbert Friðjónsson. þjálf- ari Kram, var ánægður með lið sitt i Keflavik á miðvikudags- kvöldið, þar sem Kram lék æfingaleik gegn Keflavik. Framarar léku mjög góða knattspyrnu. Þeir yfirspiluðu Keflvikinga — og unnu 2:0. Marteinn Geirsson og Asgeir Eliasson skoruðu mörk Fram — Marteinn með skalla en Asgeir með skoti af 25 m færi. B-lið félaganna léku einnig og lauk þeim leik með sigri Kefla- víkur — 3:1. Baldvin Eliasson fyrrum sóknarleikmaður KR, hefur gengið i Fram og átti hann góðan leik i Keflavik. Umsjón: Sigurður Sverrisson|

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.