Ísafold - 22.08.1883, Side 1
Árgangurinn, 32blöð, kostar
3 kr. innanlands, en í Danm.,
Svíþjóð og Norvegi um 3’/2
kr., í óðruin löndum 4 kr.
Borgist í júlím. innanlands,
erlendis fyrir fram.
ISAFOLD.
Auglýsingar kosta þetta
inniendar
lína : aur.
Jmeð meginletri .. 10
\með smáletri.. .. 8
ímeð meginletri. '5
\með smáletri...
X 20.
Reykjavík, miðvikudaginn 22. ágúslmán.
1883.
77. Innlendar frjettir. Útlendar frjettir.
78. Leiðir.
79. Fjárlagamálið. Frá alþingi VII.
80. Hitt og þetta. Auglýsingar.
Skrifstofa ísafoldar er í ísafoldarprentsmið-
ju, við Bakarastiginn, 1. sal.
Afgreiðslustofa ísafoldar er á sama stað.
Afgreiðslust. Isafoldarprentsmiðju er á s. st.
Alþingisfundir í neðri deild að jafnaði hvern rúm*
helgan dag á hádegi, og í efri deild kl. I e. m.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2.
íþökubókasafn opið hvern þrd. og ld. 2—3.
Landsbókasafnið opið hvern md., mvd. og ld. 12—3.
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd. og ld. 4—5.
Strandferðaskipið Laura fer af stað frá Rvík 29. ágúst.
Uppboð á fatnaði (enskum) m fl. í Glasgow 24. ág.
kl. 10. fm.
Reykjavík, 22. ágúst.
Alþingisfimdir í neðri deild orðnir S6, í
efri 47. Tala þingmála 95. Tuttu og fjögur
frumvörp orðin að lögum frá alþingi.
|>ingi verður slitið annaðhvort 27. eða
28. þ. m.
I síðustu Stjórnartíðindum er auglýsing
frá stjórnarherranum 16. júlí um að beita
skuli hjer á landi fyrst um sinn sóttvarnar-
reglunum í lögum 17. des. 1875 gegn kóler-
unni á Egiptalandi.
þar er og, í innlendu deildinni (B),
Svend Foyn frá Noregi svarað þannig af
landshöfðingja 24. maí, að það sje nóg til
þess að hann megi reka fiskiVeiðar í land-
helgi við Island, »að hann byggi hús og
setjist að hjer í landi, þannig að hann allt
af stöðugt árið um kring haldi hjer dúk og
disk, án tillits til þess, hvort hann verður
ávallt hjer staddur sjálfur eða ekki«; en
að ekki sje enn til fullnaðar leyst úr þeirri
spurningu, hvort maður, sem er búsettur á
Islandi og þar rekur fiskiveiðar á eigin
kostnað, hafi eða hafi ekki rjett til að nota
útlend skip til veiðanna, með því að ekki
sje búið að afráða, hvort una skuli við
landsyfirrjettardóm þann, er viðurkenndi
þennan rjett [17. nóv. 1872, í málinu gegn
Einari á Hraunum], eða skjóta honum til
hæstarjettar.
þá hefir amtmaðurinn fyrir norðan farið
því á flot við landshöfðingja, að skipaður
væri konunglegur kommissarius (erindreki)
er falið yrði lögregluvald og dómsvald í
öllum þeim málum, er snerta brot gegn
lögum þeim, er gilda um fiskiveiðar í land-
helgi hjer við land. Landsh. svarar því
svo 31. maí, að þar til 'finni hann ekki
næga ástæðu að svo komnu, en biður amt-
mann að »brýna fyrir hinum reglulega lög-
reglustjórum, að þeim beri, hverjum í sínu
lögsagnarumdæmi, af fremsta rnegni að
vaka yfir því, að lögunum um fiskiveiðar í
landhelgi, eins og hverjum öðrum gildandi
lögum, sje hlýtt«.
Landshöfðingi hefir skipað svo fyrir 20.
júní, eptir tillögum amtmannsins fyrir norð-
an, að við byggingu á þjóðjörðum, þar sem
búast má við að landshlutur kunni að falla
af síldarveiði, skuli landssjóði eptirleiðis á-
skildir í byggingarbrjefunum f af hlut þess-
um, en ábúandi haldi f.
Landshöfðingi hefir veitt 15. júni 1000
kr. úr viðlagasjóði til að byggja upp Háfs-
kirkju, gegn nægilegu fasteignarveði, vöxt-
um og endurborgun á 20 árum. Og Kálfa-
tjarnarprestalli 21. júní 2500 kr. lán, sum-
part til að fullgera steinhús, sem á að vera
fjós og heyhlaða, sumpart upp í kostnað-
inn við endurbætur á húsum og jörð stað-
arins, gegn vöxtum og afborgun á 28 árum.
Af þ. á. búnaðarstyrk handa Isafjarðar-
sýslu, 550 kr.,..veittar Agli Guðmundssyni
á Laugabóli í Ögurhrepp 50 kr. í verðlaun
»fyrir landbúnað#, 50 kr. í styrk handa bú-
naðarfjelagi Súðavíkurhrepps, og 450 kr. til
að kosta ferð búfræðings um sýsluna á þessu
ári. Af þ. á. sýsluvegabótastyrk á aðalpóst-
leiðum Gullbr. og Kjósarsýslu veittar 1000
kr. til að leggja tvær trjebrýr yfir Elliða-
árnar. Hjeraðslækni dr. med. J. Jónassen
veittur styrkur til að gefa út lækningabók
handa alþýðu, 25 kr. fyrir hverja prentaða
örk (þ. á. 10 arkir eða helming bókarinnar
eptir áætlun).
Af viðbótarfjenu þ. á. við eptirlaun fá-
tækra presta og prestsekna, 2000 kr., var á
synodus í sumar helmingnum útbýtt meðal
rúmlega 40 prestekkna, 20—60 kr. hverri,
og hinum helmingnum meðal þessara upp-
gjafapresta: sira Hákoni Espólín og síra
Bjarna Sveinssyni 150 kr. hvorum, síra
Stefáni Thordersen og síra Magnúsi Gísla-
syni 200 kr. hvorum, og síra Guðmundi G.
Sigurðssyni 300 kr.
Dalasýsla veitt 24. júlí cand. juris Hall-
dórþDaníelssyni.
I kennaraembættið við latinuskólann
settur af stjórnarherranum kand. Björn
Jensson.
Eyrir viku brá veðráttu til rigninga hjer
syðra með austanrosum á stundum.—J>að
hefir frjetzt síðast af hafísnum, að hann
þokaðist frá landi hægt og hægt austur og
norður í haf laust fyrir síðustu mánaðamót.
Hákarlsafli afbragðsgóður nyrðra. Um
síðustu mánaðarmót komnir 10—15 tunna
hlutir af lýsi á þilskip Eyfirðinga og Sigl-
firðinga, um 20 alls. Lýsi komið upp í 55
kr. tunnan fyrir norðan.—Hval rak á Býja-
skerjum syðra 6. ágúst, hálffertugan.
Gjafakornsskipið »Sylphiden« kom hing-
að 19. ágúst eins og til stóð, frá Bergen,
með 5000 tunnur. Heldur siðan áleiðis
vestur fyrir og norður, eins og áður er getið.
Með hjer um bil 600 vesturfara fór
Craighforth frá Akureyri og austurhöfnun-
um í júlí-ferðinni, og 500 lagði Camoens af
stað með frá Sauðárkrók 5. ágúst, þaðan og
frá Borðeyri. Áður farnir hjeðan með
Camoens og með póstskipinu Bomny 30.
júní um 100. Samtals 1200. f>ó margir
sezt aptur, sem ætluðu.
Craighforth kom hingað norðan að, frá
Akureyri, 13. ágúst, og fór daginn eptir,
með 642 hesta hjeðan, og 50 frá Akureyri,
til Skotlands.
Camoenskom hingaðfrá Leith 17. ágúst.
Með þvi komu þeir cand. philologiæ Geir
Zoega og Halldór kennari Briem. Skipið
fór aptur 20. ágúst með 310 hesta.
Iðnaðarsýningin í Beykjavík stóð til 19.
ágúst; byrjaði 2. Sýningarmunirnir voru
hátt á ð.^hundrað. Skoðendur urðu 1300—
1400. I forstöðunefnd voru þeir Árni Gísla-
son, Helgi Helgason, Jón Borgfirðingur,
Páll þorkelsson og Sigfús Eymundarson ;—
Sigfús fjarverandi. |>ar til kvödd dómsnefnd
dæmdu 31 sýnanda heiðurspening úr silfri,
32 heiðurspening úr bronze og 56 heiðurs-
brjef (diplom). Dómnefnd þessi var skip-
uð 2 frúm úr Beykjavík og 5 alþingismönn-
um. jpað var landshöfðingjafrú Elinborg
Thorberg, amtmannsfrú Kristjana Havstein;
Jón Sigurðsson forseti, síra Benidikt Krist-
jánsson, Einar Ásmundsson, Sighvatur
Árnason og Tryggvi Gunnarsson.
Útlendar frjettir.
Khöfn 3. ágúst.
Hægrimenn hjer komnir aptur á mik-
inn fundasveim. Matzen prófessor á sí-
felldum hlaupum, eða, ef svo mætti segja,
á gandreið gufunnar; einn daginn í Borg-
undarhólmi, næsta í Odense, þriðja í Thi-
sted og þrumar fyrir fjóðabyggjum gegn
óvættunum vinstri handar. þeim megin
hefir heldur slegið í þögn, og það er sem
kapp hinna hafi komið heldur flatt upp á
vinstrimenn. Blöð þeirra hafa jafnvel
lægra við sig en fyr. Hafa þeir stórræði 1
hyggju? Hugsa þeir með sjer: »metumst
heldr at val felldan«? Trúi þeir sem vilja !
Jeg vil sjá hvað setur.
Dáinn 24. júlí Jerichau myndasmiður,
sem af dönskum mönnum þótti ganga Thor-
valdsen næst að mörgu leyti, varð víðfræg-
ur af list sinni og hefir látið eptir sig
mikið snilldarsmiði. Komst hátt á sjötugs-
aldur.
Waddington nýorðinn erindsreki Frakka
í Lundúnum ; honum treyst til öðrum bet-
ur að greiða úr ýmsum snurðum, sem hafa
hlaupið á vináttuband Frakka og Englend-
inga. Englendingum þykir tortryggilegt
um sumt af hinna hálfu, t. d. atfarirnar í
Anam og á Madagaskar, og flest blöðin
urðu í uppnámi, þegar það heyrðist, að
Gladstone hefði samið við Lesseps, höfund
leiðarsundsins um Suez-eiðið, um hina
nýju skurðargerð, sem nú skal til taka.
Af því máli hefir Gladstone fengið hörð á-
mæli bæði á þinginu og svo á málfundum
og í blöðum Tórýmanna, og þess vegna
hefir hann frestað að bera samninginn upp
á þinginu. Menn segja, að hann mundi
nú hafa orðið honum þar að falli. Tórý-
menn og sumir hinna vefengja þann rjett,
sem Lesseps var veittur, eða hans fjelagi,
til skurðargerðar um eiðið, og þeim þykir
öllu í annað horf snúið, síðan Englend-
ingar fengu þau tök á Egiptalandi, sem
þeir nú hafa. |>essu hefir Gladstone tekið
öllu fjarri, en sagðist ekki vilja leggja
málið nú til umræðu, þar sem hætt væri
við, að ákafi mótmælenda yrði að eins til
að spilla góðri og gamalli vináttu með báð-
um þjóðunum. þegar Waddington kom
til Lundúna, á hann að hafa sagt við ein-
hvern blaðamann, sem skundaði á fund
hans, að hægt mundi öllum ágreiningi að
dreifa, en í skurðarmálinu væri öll franska
þjóðin Lesseps sinnandi.
Sú fregn barst fyrir skömmu, að einn af
höfðingjum Zúlúkaffa hefði veitt Cetewayo
konungi atfarir með her og komið honum