Fréttablaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 80
Getur eitthvert lið stöðvað meistarana?
Guðmundur Sævarsson,
bakvörðurinn knái í FH, skoraði
í fyrrakvöld annað mark sinna
manna gegn KR í Vesturbænum.
Það var hans ellefta mark í efstu
deild á ferlinum en þar af hefur
hann skorað sex þeirra á móti KR.
Guðmundur skoraði þrennu í 7-0
sigrinum fræga á Kaplakrikavelli
í lokaleik umferðarinnar 2002 og
þar að auki hefur hann skorað þrí-
vegis í Vesturbænum.
„Ég held nú að liðinu öllu líði
yfirleitt vel í Vesturbænum,“
sagði hann aðspurður um hverju
þetta sætti. „Ég legg svo sem enga
sérstaka áherslu á að skora gegn
KR,“ bætti hann við.
Markið í fyrrakvöld skoraði
hann þar að auki með skalla sem
þykir heldur óvenjulegt. „Ég man
nú ekki hvenær ég skoraði síðast
með skalla. Ég held samt að það
hafi einhvern tímann gerst áður í
meistaraflokki,“ sagði hann.
Hann er þó alls ekki óvanur því
að skora mörk því hann lék sem
framherji í gegnum alla yngri
flokkana hjá FH. Þótti hann mark-
heppinn með eindæmum.
Guðmundur spilaði sitt fyrsta
tímabil í efstu deild árið 2001. „Ég
spilaði sem bakvörður í 2-3 leikjum
þegar Hilmar Björnsson meiddist
en annars lék ég fyrst og fremst
á hægri kantinum þessi fyrstu ár í
deildinni. Það var svo árið 2004 sem
ég fór í bakvörðinn. Mér líkar vel
þar og þar að auki gefur þjálfarinn
mér leyfi til að sækja aðeins fram
á völlinn,“ sagði hann.
Hann er vitanlega sáttur við ár-
angur FH-liðsins til þessa á mót-
inu og segir að það stefni að sínum
fjórða Íslandsmeistaratitli í röð.
„Ég held að við hefðum vel sætt
okkur við þessa góðu byrjun fyrir
mót.“
Meira en helmingur
markanna gegn KR
San Antonio tryggði sér
fjórða NBA-titil sinn á níu árum
í fyrrinótt eftir 83-82 sigur á
Cleveland. Spurs sópaði einvíg-
inu 4-0 og leikmenn Cavs, með
LeBron James í broddi fylkingar,
sáu aldrei til sólar.
Frakkinn Tony Parker var val-
inn verðmætasti leikmaður úr-
slitanna og þegar fáni þjóðar hans
var kominn yfir axlirnar sagði
hann að þetta væri „draumi lík-
ast. Ég vil ekki vakna.“
„Ég þreytist aldrei á að vinna
titla, þetta er líklega sá sætasti
hingað til,“ sagði Duncan.
Spurs sópaði
Cleveland
Ásgeir Gunnar Ásgeirs-
son starfar sem sölumaður hjá
Góu-Lindu í sumar en stundar þar
að auki tannlæknanám. „Það er
kannski smá kaldhæðni í því að
vera að selja nammi og vera svo
í tannlækningum,“ sagði Ásgeir í
léttum tón en hann skoraði fyrra
mark FH í 2-0 sigrinum á KR.
„Mér fannst þetta verðskuldaður
sigur. Við vissum að þeir ætluðu
að selja sig dýrt en væru líka brot-
hættir. Við urðum svolítið væru-
kærir eftir að við komumst yfir og
seinni hálfleikur var frekar bragð-
daufur. Hann var frekar þægilegur,
mér fannst þeir ekki vera að gera
neitt,“ sagði Ásgeir.
Margir einblína á KR og stöðu
þess þegar deildin er skoðuð og
þá gleymist oft að hampa Íslands-
meisturunum, sem hafa spilað frá-
bærlega. „Það tekur bara pressuna
af okkur, ég held að það sé bara fínt.
Það eru allir sem vilja vinna okkur.
Menn koma ákveðnari til leiks gegn
okkur eins og hefur verið með KR í
gegnum árin,“ sagði Ásgeir.
Hlutverk þessa frábæra miðju-
manns vill oft gleymast. Ásgeir er
máttarstólpi í FH-liðinu en hefur
ekki alltaf verið í sviðsljósinu. Ás-
geir er vitanlega ánægður með
tímabilið hjá meisturunum fram
að þessu. „Mórallinn er frábær og
sjálfstraustið er líka gott eins og
sést í leikjunum,“ sagði Ásgeir.
Hann meiddist á hné í janúar og
missti af öllu undirbúningstíma-
bilinu. „Þetta eru álagsmeiðsli í
hnénu. Ég finn alltaf fyrir þessu
en læt þetta ekki hafa nein áhrif á
minn leik. Þetta jafnar sig líklega
ekki alveg meðan maður þjösnast
á þessu,“ sagði Ásgeir Gunnar Ás-
geirsson.
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson er leikmaður 6. umferðar Landsbankadeildar karla
hjá Fréttablaðinu. Ásgeir átti frábæran leik á miðju FH sem vann KR 2-0.
Körfuknattleiksdeild
KR hefur fengið góðan liðsstyrk
en Joshua Helm hefur samið við
félagið. Hann var valinn besti er-
lendi leikmaður úrvalsdeildarinn-
ar þegar hann lék með KFÍ fyrir
tveimur árum þar sem hann skor-
aði 37,2 stig að meðaltali í leik.
Tyson Pattersson verður ekki
áfram hjá KR en auk Joshua
hefur Jovan Zdravevski samið við
KR.
Kominn í KR
Síðari leikur Íslands
og Serbíu um laust sæti á EM í
Noregi í janúar fer fram í Laug-
ardalshöll á sunnudag og er
þegar orðið uppselt. Serbarnir
unnu fyrri leikinn ytra með einu
marki og því erfitt verkefni sem
bíður landsliðsins.
Arnór Atlason hefur verið að
æfa með liðinu síðustu daga en
hann var ekki með úti í Serbíu og
eru nú einhverjar líkur á því að
hann verði í hópnum. Alexander
Petersson fékk högg á hnéð á æf-
ingu í fyrradag en ætti að verða
klár á morgun. Aðrir eru heilir.
„Það er mikil stemning í mann-
skapnum og undirbúningur hefur
gengið vel. Það er hugur í mann-
skapnum og við ætlum okkur að
klára verkefnið og við treystum
á stuðning áhorfenda í Höllinni,“
sagði Alfreð Gíslason landsliðs-
þjálfari, sem er hugsanlega að
stýra landsliðinu í síðasta skipti
á morgun.
Arnór kannski í hópnum
MasterCard korthafar fá miðann á þessa skemmtilegu fjölskyldumynd
á aðeins 600 kr. meðan myndin er sýnd, greiði þeir með kortinu.
Myndin er sýnd í Laugarásbíói og Smárabíói.
Meira á www.kreditkort.is/klubbar
600 kall
meðan myndin er í sýningum!
Komin í bíó!
Komin í bíó!