Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 4
4 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
SKIPULAGSMÁL „Arkitektarnir hjá Argos eru
okkar færustu fagmenn á þessu sviði þannig að
ég er viss um að í þeirra höndum verður þetta
verkefni leyst eins vel og kostur er,“ segir Pétur
Ármannson arkitekt um fyrirhugaða viðbygg-
ingu við hið sögufræga hús á Þingholtstræti 29a.
Pétur, sem er þekktur sérfræðingur um
byggingarsögu Reykjavíkur, segir mörg
fordæmi fyrir því að byggt sé við friðuð hús
eins og Þingholtsstræti 29a sé.
„Friðun útilokar hvorki breytingar né
viðbyggingar en það er náttúrlega gerð krafa
um að slíkt sé gert í mjög háum gæðaflokki og
af smekkvísi og tillitssemi við bygginguna sem
fyrir er,“ segir Pétur.
Fjárfestirinn Ingunn Wernersdóttir í Inn
fjárfestingu er eigandi hússins, sem byggt var
1916. Hún segir arkitektana í Argos vera mjög
færa og hafa endurgert mörg gömul hús á
Íslandi.
„Leitast er við að nýbyggingin, sem verður
bílskúr, stigagangur, geymslur og þess háttar
verði algjörlega í anda gamla hússins og
upphefji virðingu þess,“ segir Ingunn sem
aðspurð kveðst ekki eiga von á athugasemdum
frá nágrönnum sínum enda verði framfylgt
öllum reglum hvað varðar stærð og fjarlægð frá
lóðamörkum.
Ingunn segir vinnu við endurbætur á gamla
húsinu í fullum gangi. „Nú er verið að háþrýsti-
þvo húsið að utan og verið að lagfæra og
yfirfara alla glugga.“ - gar
Sérfræðingur og eigandi sögufrægs hús í Þingholtsstræti segja stækkun þess í höndum færustu fagmanna:
Friðun útilokar ekki viðbyggingu við Esjuberg
ÞINGHOLTSTRÆTI 29A Byggja á við norður-
gafl hússins vinstra megin á myndinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
J
A
A
4
14
62
0
3/
08
Vantar þig
samband
við trésmið
í einum
grænum?
er svariðjá
118 ja.is Símaskráin
UMFERÐ Verslunareigendur í Linda-
hverfi vilja að bæjaryfirvöld í
Kópavogi komi í veg fyrir að götur
að hverfinu lokist vegna mikillar
aðsóknar að bílaþvottastöðinni
Löðri.
„Þetta er algert ófremdar-
ástand. Oft nær bílaröðin frá Löðri
upp á næsta horn og stundum alla
leið niður á hringtorgið við Fífu-
hvammsveg,“ segir Valur Heiðar
Sævarsson, heildsali og verslun-
areigandi í Bæjarlind 16. Valur
hefur skrifað Gunnari I. Birgis-
syni bréf með ósk um að bæjar-
stjórinn taki
málið í sínar
hendur.
„Hér er bara
ein akrein í
hvora átt svo
þessi gríðarlega
bílaröð eyði-
leggur fyrir
okkur viðskipti
því margir segj-
ast einfaldlega
ekki treysta sér til að aka á móti
umferðinni til að komast til okkar.
Auk þess skapar þetta mikla slysa-
hættu, sérstaklega þegar röðin
nær alla leið á hringtorgið og öku-
menn freistast til að aka öfugan
hring til að komast leiðar sinnar.
Ég hef sjálfur séð óhapp verða þar
við slíkar kringumstæður,“ segir
Valur sem kveður marga aðra
verslunareigendur í nágrenninu
einnig vera ósátta við stöðu mála.
Valur hefur bæði leitað ásjár
lögreglunnar og hjá skipulagsyfir-
völdum í Kópavogi.
„Lögreglan hefur komið og sagt
bílstjórum að leysa upp röðina en
það fer strax í sama farið. Þess
utan segir lögreglan þetta ekki
vera sitt mál og vísar á bæjar-
skipulagið í Kópavogi. Þar á bæ
vísa menn hins vegar á lögregl-
una,“ segir Valur.
Róbert Reynisson, fram-
kvæmdastjóri Löðurs, viðurkenn-
ir að vandræðaástand hafi stund-
um skapast vegna mikillar
aðsóknar.
„Þetta var sérstaklega mikið
núna í mars þegar það komu marg-
ir góðir þvottadagar. Það er erfitt
fyrir okkur að stjórna þessu en við
höfum reynt að biðja bílstjórana
að aka út í kant á meðan þeir bíða,“
segir Róbert og bendir á að enn
meira öngþveiti skapist þegar
verslanir í Smáralind eru með
útsölur.
Að sögn Róberts stendur til af
hálfu Löðurs að ræða við Kópa-
vogsbæ um breytingar svo laga
megi aðkomuna að þvottastöðinni.
„Hluti af þessu máli er líka að
margar þvottastöðvar í Reykjavík
hafa lokað. Sjálfir ætlum við að
opna stóra stöð úti á Fiskislóð. Það
mun líklega létta álaginu af stöð-
inni í Bæjarlind.“
Bæjarráð hefur vísað erindi
Vals Heiðars Sævarssonar til
umsagnar hjá sviðsstjóra fram-
kvæmda- og tæknisviðs.
gar@frettabladid.is
Bílaþvottur truflar
verslun í Bæjarlind
Gríðarleg röð við bílaþvottastöðina Löður í Kópavogi truflar umferð um nálæg-
ar götur, veldur slysahættu og dregur úr verslun á svæðinu, segir heildsali í Bæj-
arlind sem biður Gunnar I. Birgisson bæjarstjóra að taka málið í sínar hendur.
VALUR HEIÐAR SÆVARSSON Heildsali og verlsunarmaður í Bæjarlind segir mikla
bílaröð við þvottastöðina Löður skapa slysahættu og trufla viðskipti á svæðinu.
Framkvæmdastjóri Löðurs segist vilja ræða við bæjaryfirvöld um lausnir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
RÓBERT
REYNISSON
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
9°
11°
6°
6°
9°
13°
13°
8°
15°
5°
23°
20°
15°
12°
21°
22°
28°
19°
Á MORGUN
8-15 m/s en hægari
SV-til
-1
LAUGARDAGUR
5-10 m/s
1
17
-2
-1
HELGARVEÐRIÐ
Veðurhorfurnar
um helgina eru
farnar að taka á
sig nokkuð skýra
mynd. Á laugardag
verða norðaust-
lægar áttir, 5-10
m/s víðast hvar.
Bjart með köfl um
syðra og á landinu
vestanverðu en
stöku él norðan
til og austan. Á
sunnudag má hins
vegar búast við
vætu vestan til
annars þurrt.
1
1
1
4
4
5
3
2
3
3
3
4
7
6
6
5
5
6
1 0
1
44
-2
1
3
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
DÓMSMÁL Dyravörður á skemmti-
staðnum Rex í Austurstræti var í
gær dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur til að greiða sekt,
sjúkrakostnað og miskabætur
vegna líkamsárásar 4. nóvember
árið 2006.
Dyravörðurinn hafði beðið gest
skemmtistaðarins um að taka
niður húfu. Þegar gesturinn
mótmælti tók dyravörðurinn í
hann, kýldi hann og beit hann í
vinstra eyra og kinn. Dómurinn
féllst ekki á að þessi harkalegu
viðbrögð hafi verið nauðsynleg.
Dyravörðurinn þarf alls að
greiða rúmar 600 þúsund krónur
vegna málsins. - sgj
Líkamsárás við Rex:
Dyravörður beit
bargest í eyrað
ÖRYGGISMÁL Vinna við smíði nýs
fjölnota varðskips fyrir Land-
helgisgæsluna gengur vel í
ASMAR-skipasmíðastöðinni í
Talcahuano í Chile. Nýverið var
kjölur lagður að skipinu við
hátíðlega athöfn. Viðstaddir voru
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra, Georg Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, ásamt
starfsfólki. Fundað var vegna
smíði skipsins þar sem farið var
yfir gang og skipulag smíðarinn-
ar.
Áætlað er að sjósetning verði í
lok þessa árs og að skipið verði
afhent fyrir árslok 2009. - shá
Nýtt varðskip:
Smíði skipsins
hafin í Chile
BÍLINN Ökurmaðurinn missti stjórn á
bílnum og lenti á tveimur ljósastaurum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
LÖGREGLUMÁL Þrír voru fluttir á
slysadeild með sjúkrabíl eftir
bílveltu á Borgarbraut á
Akureyri laust eftir hádegi í
gær.
Að sögn lögreglu missti
ökumaður stjórn á bílnum, lenti
utan í tveimur ljósastaurum og
velti svo bílnum á grjóthleðslu í
vegkanti. Þrír voru í bílnum, en
tveir þeirra köstuðust út við
veltuna. Beita þurfti klippum til
að ná þeim þriðja út.
Að sögn lögreglu sluppu þeir
slösuðu betur en á horfðist í
fyrstu. - sgj
Þrír slasaðir í bílveltu:
Veltu bíl á
Borgarbraut
BANDARÍKIN, AP David Petraeus,
æðsti yfirmaður bandaríska
heraflans í Írak, segir ólíklegt að
hann fari fram á að hermönnum
þar verði fjölgað á ný, jafnvel þótt
svo fari að öryggisástandið versni
eftir að
viðbótarherafl-
inn, sem sendur
var þangað á
síðasta ári, snýr
aftur heim á
næstu mánuð-
um.
„Það væri
fjarri mér að
hugsa þannig,“
sagði Petraeus í yfirheyrslu hjá
bandarískri þingnefnd, og taldi að
bandaríski landherinn ætti erfitt
með að standa undir því að senda
fleiri hermenn til landsins. Frekar
verði reynt að færa bandaríska
hermenn til innan Íraks eftir því
sem ástandið krefst, og svo verði
reynt að treysta frekar á hersveit-
ir heimamanna, sem séu að
styrkjast og batna. - gb
Petraeus herforingi í Írak:
Biður ekki um
fleiri hermenn
DAVID PETRAEUS
GENGIÐ 09.04.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
145,221
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
71,83 72,17
141,4 142,08
112,85 113,49
15,126 15,214
14,195 14,279
12,055 12,125
0,6998 0,7038
117,27 117,97
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR