Fréttablaðið - 11.04.2008, Page 80

Fréttablaðið - 11.04.2008, Page 80
48 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR KÖRFUBOLTI ÍR-ingurinn Nate Brown komst í metabækurnar á miðvikudagskvöldið þegar hann bætti níu ára met Warrens Peebles með því að gefa 18 stoðsendingar í 94-77 sigri ÍR á deildarmeisturum Keflavíkur. Það merkilega var að hann skaut aðeins fjórum sinnum á körfuna og tapaði boltanum bara tvisvar sinnum í leiknum og einbeitti sér að því að spila góða vörn og stjórna leik síns liðs. Það sýnir líka hversu mikið hann var að sprengja upp Keflavíkurvörnina að aðeins ein af þessum átján stoðsendingum var fyrir þriggja stiga skot, sem eru jafnan auðveldustu sending- arnar að gefa. Nate Brown hefur leikið stór- kostlega í úrslitakeppninni og hefur alls gefið 51 stoðsendingu á félaga sína í 5 leikjum sem gera 10,2 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann var einnig sá leikmaður sem gaf flestar stoðsendingar í leik í deildarkeppninni, 108 í 14 leikjum eða 7,7 að meðaltali í leik Warren Peebles setti sitt met í tapi Grindavíkur í Keflavíkur í þríframlengdum undanúrslitaleik liðanna 9. apríl 1999 en að auki var hann með 31 stig og 10 fráköst í leiknum. Nate bætti því líka met þeirra Anthony Q. Jones og félaga síns Eiríks Önundarsonar sem voru þeir tveir leik- menn sem höfðu átt flestar stoðsendingar í venjulegum leiktíma, Eiríkur gegn Kefla- vík í átta liða úrslitum 2003 og Anthony í átta liða úrslit- um árið eftir. Nate Brown varð enn fremur aðeins annar leik- maðurinn í sögu Íslands- mótsins til þess að gefa svo margar stoðsendingar í einum leik því KR-ingurinn David Edwards gaf einnig 18 stoð- sendingar gegn ÍR í deildar- leik 8. desember 1996. Nate gaf sex af þessum stoðsendingum fyrir hraðaupphlaupskörfur og aðrar sex fyrir körfur skoraðar inni í teig. Hinar sex gaf hann á leikmenn sem skoruðu með skot- um fyrir utan teig (5) eða úr þriggja stiga skoti (1). ooj@frettabladid.is Setti glæsilegt stoðsendingamet Hertoginn í ÍR-liðinu, Nate Brown, tók aðeins fjögur skot í sigrinum á Keflavík en var engu að síður maður leiksins enda gaf hann 18 stoðsendingar og komst í metabækurnar. 18 STOÐSENDINGAR Nate Brown var frábær gegn Keflavík þrátt fyrir að skora bara 7 stig. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FLESTAR STOÐSENDINGAR Í LEIK Í ÚRSLITAKEPPNI 18 Nate Brown, ÍR (gegn Keflavík, 9. apríl 2008) 16 Warren Peebles, Grindavík (gegn Keflavík, 2. apríl 1999) 15 Anthony Q. Jones, Grindavík (gegn KR, 14. mars 2004) 15 Eiríkur Önundarson, ÍR (gegn Keflavík, 16. mars 2003) 15 Tyson Patterson, Grindavík (gegn Keflavík, 4. apríl 2002) 14 Damon Johnson, Keflavík (gegn ÍR, 14. mars 2003) 14 Friðrik Ragnarsson, Njarðvík (gegn Keflavík 29. mars 1998) 14 Friðrik Ragnarsson, Njarðvík (gegn Keflavík 7. apríl 1998) 14 Jón Arnar Ingvarsson, Haukum (gegn Njarðvík, 10. mars 1997) 14 Jón Kr. Gíslason, Grindavík (gegn Skallagrími, 9. mars 1997) STOÐSENDINGAR NATE BROWN GEGN KEFLAVÍK 1. leikhluti 5 stoðsendinngar Á Eirík í hraðaupphlaupi Á Sveinbjörn í hraðaupphlaupi Á Hreggvið inni í teig Á Sani fyrir utan teig Á Sani inni í teig 2. leikhluti 4 stoðsendingar Á Steinar í hraðaupphlaupi Á Steinar í 3ja stiga skoti Á Hreggvið í hraðaupphlaupi Á Sveinbjörn í hraðaupphlaupi 3. leikhluti 4 stoðsendingar Á Sani inni í teig Á Sani inni í hraðaupphlaupi Á Ómar inni í teig Á Hreggvið inni í teig 4. leikhluti 5 stoðsendingar Á Steinar fyrir utan teig Á Ólaf fyrir utan teig Á Ólaf fyrir utan teig Á Sani inni í teig Á Elvar fyrir utan teig Þessir fengu stoðsendingu: Tahirou Sani 5 Steinar Arason 3 Hreggviður Magnússon 3 Ólafur Jónas Sigurðsson 2 Sveinbjörn Claessen 2 Ómar Sævarsson 1 Eiríkur Öndunarson 1 Elvar Guðmundsson 1 FÓTBOLTI Gary Neville, varnar- maður Manchester United, kom loksins við sögu hjá liðinu í leik gegn Roma í fyrrakvöld eftir að hafa verið meira og minna frá vegna meiðsla í rúmt ár. „Það er frábært að vera kominn aftur á fullt með liðinu og ánægjulegt að geta tekið þátt í að ná jafn góðum úrslitum og raun ber vitni gegn Roma,“ sagði Neville, sem á von á skemmtileg- um leikjum gegn Barcelona. „Bæði liðin vilja spila sóknar- bolta þar sem leikmenn á heimsmælikvarða stýra sýning- unni,“ sagði Neville kátur. - óþ Gary Neville, Man. Utd: Frábært að vera kominn aftur FÓTBOLTI Lögreglan í Birmingham handtók og færði til yfirheyrslu tvo af hæstráðendum knatt- spyrnufélagsins Birmingham City í gær. Það eru annars vegar með- eigandinn David Sullivan og rekstrarstjórinn Karren Brady hins vegar. Þau mættu bæði til yfirheyrslu en var sleppt að þeim loknum. Málið tengist víðtækri rann- sókn lögreglunnar á spillingu í knattspyrnuheiminum. Þetta sér- staka atvik er talið tengjast greiðslum til umboðsmanns og tveggja leikmanna sem ekki voru nafngreindir. Parið er talið hafa gerst sekt um fjársvik og bók- haldssvindl. Félagið bað í kjölfarið um að hlutabréf félagsins yrðu fryst tímabundið. Það tók einnig skýrt fram að það væri meira en viljugt til þess að vinna með lögreglunni að framgangi málsins. Í yfirlýs- ingu Birmingham er enn fremur sagt að enginn stjórnarmaður né félagið hafi grætt á þeim viðskipt- um sem verið væri að rannsaka. Lögreglan leitar víða fanga í spillingarmálinu en það er ekki nema mánuður síðan lögreglan ruddist inn til Portsmouth og leit- aði í bókhaldi þess. Í kjölfarið voru Harry Redknapp knatt- spyrnustjóri, Milan Mandaric, fyrrverandi stjórnarmaður, og Peter Storrie framkvæmdastjóri handteknir og færðir til yfir- heyrslu. - hbg Lögreglan réðst til atlögu í Birmingham: Tveir hæstráðendur hjá Birmingham handteknir KARREN BRADY OG DAVID SULLIVAN Eru grunuð um fjár- og bókhaldssvindl og voru handtekin og færð til yfirheyrslu í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES NORÐURLANDAMÓTIÐ Í KARATE 2008 LAUGARDAGINN 12. APRÍL Í LAUGARDALSHÖLL KL. 1000 KEPPT VERÐUR Í KATA OG KUMITE KEPPENDUR FRÁ: DANMÖRKU, EISTLANDI, FINNLANDI, ÍSLANDI, NOREGI OG SVÍÞJÓÐ LIÐ ÍSLANDS Í KATA UNDIR STJÓRN HELGA JÓHANNESSONAR SKIPA: MAGNÚS KR. EYJÓLFSSON PATHIPAN KRISTJÁNSSON TÓMAS LEE RÓBERTSSON ÁSA KATRÍN BJARNADÓTTIR HEKLA HELGADÓTTIR RAGNA KJARTANSDÓTTIR NORDIC KARATE CHAMPIONSHIP, SATURDAY APRIL 12TH 2008, REYKJAVÍK, ICELAND LIÐ ÍSLANDS Í KUMITE UNDIR STJÓRN JÓNS INGA ÞORVALDSSONAR SKIPA: ANDRI SVEINSSON, -80 KG, OPINN FLOKKUR OG LIÐ ARI SVERRISSON, -75 KG, OPINN FLOKKUR OG LIÐ GUÐBJARTUR ÍSAK ÁSGEIRSSON, -70 KG OG LIÐ KRISTJÁN Ó. DAVÍÐSSON, -70 KG OG LIÐ GUÐRÚN ÓSKARSDÓTTIR, +60 KG, OPINN FLOKKUR OG LIÐ HELENA MONTAZERI, -60 KG, OPINN FLOKKUR OG LIÐ BJÖRG JÓNSDÓTTIR, LIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.