Fréttablaðið - 28.06.2008, Blaðsíða 8
8 28. júní 2008 LAUGARDAGUR
1 Hvaða lið mætast í úrslitaleik
Evrópumótsins í knattspyrnu?
2 Hver neitaði ljósmyndara
Fréttablaðsins um að ljós-
mynda undirskrift fyrir álverið
á Bakka?
3 Hvaða bókaútgáfa hefur
undanfarið gagnrýnt úthlutanir
Bókmenntasjóðs?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU ??
Urð og grjót - Upp í mót ...
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
42
81
3
06
/0
8
Meindl Colarado lady
Nubuk leður.
Gore Tex vatnsvörn.
Multigriff sóli.
Þyngd: 750 g (stærð 42).
Einnig til í herraútfærslu.
Tilboð21.990kr.
Verð áður 25.990 kr.
Meindl Borneo
Nubuk leður.
Gore Tex vatnsvörn.
Multigriff sóli.
Þyngd: 750 g (stærð 42).
Einnig til í herraútfærslu.
Tilboð24.990kr.
Verð áður 28.990 kr.
Meindl Island Pro GTX
„Einn sá allra besti“.
Heil tunga og vandaður frágangur.
Ótrúlega léttir! Þyngd: 830 g (stærð 42).
GTX vatnsvörn. MFS fóður lagar sig að fætinum.
Vibram veltisóli með fjöðrun.
Sérlega góður stuðningur við ökklann.
Einnig fáanlegir í dömustærðum, bláir.
Tilboð28.990kr.
Verð áður 33.990 kr.
STJÓRNSÝSLA Kristján L. Möller
samgönguráðherra segir að stjórn-
sýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á
Vegagerðinni og Siglingastofnun
Íslands verði yfirfarin gaumgæfi-
lega á komandi vikum og mánuð-
um.
„Ég ætla að boða til mín yfir-
menn stofnananna auk yfirmanna
Flugmálastjórnar og Umferðar-
stofu og heyra þeirra sjónarmið,“
segir Kristján um tillögu Ríkisend-
urskoðunar um að sameina þær
allar undir eina stjórnsýslu. Spurð-
ur um þá gagnrýni sem Vegagerð-
in fær í skýrslunni segir Kristján:
„Vissulega er margt sem þarf að
skoða í málefnum Vegagerðarinn-
ar, þetta er stór stofnun með mörg
verkefni.“
Í úttektinni er vinnulag Vega-
gerðarinnar gagnrýnt; einkum
örar breytingar í framkvæmdum,
vöntun á eigin stöðlum og erfið-
leikar við að fara að samgöngu-
áætlun.
Hreinn Haraldsson vegamála-
stjóri segir skýrsluna vera ágætis
yfirferð þótt hann samþykki ekki
allt sem kemur fram í henni. Hann
segir þó umfjöllunina um vöntun á
stöðlum ágætist ábendingu. „Við
erum að vinna í endurgerð á þeim
stöðlum sem fyrir eru og stefnum
á útgáfu þeirra með haustinu,“
segir Hreinn. „Öryggi er algert
forgangsatriði í vinnu okkar en
vinnuaðstæður hér á landi eru oft
flóknar og fjölbreyttar.“ Hreinn
bætir því við að erfiðleikar Vega-
gerðarinnar við að fara að sam-
gönguáætlun séu oft fólgnir í því
að áætlunin sjálf breytist ört og
því sé erfitt að laga umfang stofn-
unarinnar að þeim. „Verkefnin eru
ekki ákveðin innan Vegagerðarinn-
ar og því verðum við að laga okkur
að þeim aðstæðum sem koma upp
hverju sinni.“ helgath@frettabladid.is
Of tíðar breytingar
á samgönguáætlun
Samgönguráðherra segir úttekt Ríkisendurskoðunar áhugaverða og ætlar að
bregðast við henni með aðgerðum. Vegamálastjóri segir erfitt fyrir Vegagerðina
að fara að samgönguáætlun þegar áætlunin sjálf breytist oft og mikið.
VEGAGERÐIN Í VANDA Vegamálastjóri segir Vegagerðina ekki ákvarða verkefnin á
hverjum tíma og því erfiðara fyrir stofnunina að fara að áætlun FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMGÖNGUR Iceland Express
hefur ákveðið að draga úr
sætaframboði í haust og vetur til
Kaupmannahafnar og London
auk þess að hætta við heilsárs-
flug til Alicante. Ástæðuna segja
stjórnendur vera hækkandi
eldsneytisverð og veiking
krónunnar.
„Við teljum að á þessari
stundu sé það forgangsatriði að
ná niður eldsneytiskostnaði eins
og kostur er,“ segir Matthías
Imsland, forstjóri Iceland
Express.
Farþegar sem áttu bókað flug
sem fellt verður niður verða
látnir vita og samkvæmt reglum
um breytingar á áætlun er þeim
boðin endurgreiðsla eða önnur
ferðatilhögun. - vsp
Veiking krónunnar hefur áhrif:
Sætaframboð
dregst saman
VÉLAR ICELAND EXPRESS Hækkandi
eldsneytisverð veldur samdrætti hjá
félaginu.
Fær fóstureyðingu
Yfirvöld í Rúmeníu hafa heimilað
ellefu ára gamalli stúlku, sem varð
þunguð eftir að frændi hennar
nauðgaði henni, að fara í fóstureyð-
ingu. Stúlkan var komin 21 viku á
leið, en fóstureyðingar eru almennt
ólöglegar í Rúmeníu eftir fjórtán vikna
meðgöngu.
RÚMENÍA
KASAKSTAN, AP Afmælisdagur
forseta Kasakstans, Núrsúltans
Nasarbajev, 6. júlí, hefur verið
gerður að þjóðhátíð-
ardegi í Kasakstan.
Frumvarp þessa
efnis var samþykkt
af þingi Kasakstans
í gær og strax í
framhaldi af því
staðfesti forsetinn
lögin. Eingöngu
þingmenn úr flokki
forsetans sitja á
þinginu.
Þingmenn höfðu
áður lagt til að ný höfuðborg
landsins, Astana, yrði nefnd
Núrsúltan til heiðurs forsetanum,
en hann hafnaði því. Nasarbajev
gerði Astana að höfuðborg
ríkisins í stað stærri borgarinnar
Almaty árið 1997.
Nasarbajev hefur verið við
völd í Kasakstan frá því áður en
Sovétríkin féllu. - gh
Afmælisagur Kasakstanforseta:
Gerður að
þjóðh átíðardegi
NÚRSÚLTAN
NASARBAJEV
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald
til 22. júlí yfir manni sem grunaður er um stórfelldan
og ítrekaðan þjófnað á greiðslukortum, sem hann
ýmist reyndi að nota eða tókst að nota.
Fyrr í þessum mánuði var maðurinn handtekinn
með greiðslukort sem hann hafði stolið úr jakkavasa á
kaffihúsi. Hann hafði þá þegar keypt fartölvu út á það
á rúmar 200 þúsund krónur, sem hann hafði svo selt
fyrir tíu grömm af amfetamíni. Þetta hefur hann
játað.
Auk þessa er maðurinn grunaður um fimm brot í
júní. Hann var tekinn með þrjár fartölvur, sem voru
þýfi, svo og vegabréf annars manns í vasanum. Þá
gerði hann ítrekaðar tilraunir til þjófnaðar og
fjár svika með stolnum kortum.
Það sem af er árinu hefur maðurinn verið mikið á
ferðinni og iðkað innbrot og þjófnaði. Meðal annars
fór hann inn í bíl og hafði upp úr krafsinu kassa sem í
voru hundrað geisladiskar með Karlakór Akureyrar.
Maðurinn var dæmdur í tólf mánaða fangelsi í
nóvember á síðasta ári fyrir fjölmörg auðgunarbrot.
Þar af voru níu mánuðir skilorðsbundnir. Er ljóst að
verði hann fundinn sekur um brotin á þessu ári hefur
hann rofið skilorð. - jss
Maður grunaður um stórfelldan og ítrekaðan kortaþjófnað áfram í gæslu:
Skipti á fartölvu og amfetamíni
BRETLAND, AP Gordon Brown,
forsætisráðherra Bretlands,
hvatti á dögunum til þess að
Bretar verðu 100 milljörðum
sterlingspunda, andvirði um
16.000 milljarða króna, til að
draga úr olíunotkun og til að
uppfylla markmið ESB um þróun
endurnýjanlegra orkugjafa.
Brown lagði til að þessum
fjárfestingum yrði dreift yfir tólf
ára tímabil. Þær yrðu liður í
viðleitni stjórnarinnar að því
takmarki að minnst 15 prósent af
orkuþörf landsins komi frá
endurnýjanlegum orkugjöfum
fyrir árið 2020. „Þetta er græn
bylting,“ sagði Brown. - aa
Brown um orkustefna Breta:
16.000 milljarðar
í vistvæna orku
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS Staðfesti úrskurð héraðsdóms um
gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 22. júlí.
VEISTU SVARIÐ?