Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 52
30 5. júlí 2008 LAUGARDAGUR Sextug kerling á Spáni biður um að fá að deyja. Hana hrjáir hersli eða trénun, sem samkvæmt orðabók er hörðnun vegna ummyndunar eðlilegra vefja í bandvef, einkum í æða- og taugakerfi. Einhvers konar hrörnunarsjúkdómur. Amma hennar og mamma fengu einnig þennan sjúkdóm. Konan, Elpidía, gerir sér grein fyrir því að ljós lífsins slokknar, ekki strax, heldur hægt og rólega. Hún vill sjálf ráða sínum örlögum og hætta þessu, þegar hún ræður ekki leng- ur við aðstæð- urnar og leiðist biðin. Þetta gerist fyrr en síðar, segir hún: „Og ég vil ekki að þetta verði eitthvað sem guð ákveður, heldur ég.“ Konan býr með dóttur sinni og getur enn gengið stuttar ferðir. En með hverjum deginum verður það erfiðara. Og stelpan er í vinnu. Elpidíu hugnast ekki að dóttir hennar verði hjúkrunarkona á sólarhringsvakt. Þetta snúist um reisn þeirra beggja. Alþjóðlegt orð yfir líknardráp er euthanasia og er forn-grískt. Það þýðir „góður dauðdagi“. Heimspekingurinn Platón var samþykkur líknardrápi, væri sjúk- dómurinn ólæknandi, eins og hjá henni Elpidíu. Stóískir spekingar Rómaveldis mátu hlutina öðruvísi. Þeir rétt- lættu líknardráp, réttara sagt sjálfsmorð, til að ljúka lífinu með sæmd, án þess að vera veikir endi- lega. Bæri til dæmis félagsleg staða óbætanlegan hnekki, þá bara bless. Þetta kölluðu þeir ekki einungis góðan, heldur fullkominn dauðdaga. Svona hugsa hátt- settir Jap- anir víst enn í dag, þegar gjaldþrot blasir við eða lögg- an er á leiðinni. En hvort þetta sé hetjulegt eða ekki, er svo allt önnur spurning. Hitler var til dæmis allt nema stó- ískur, en hann kaus að skjóta sig í hausinn niðri í búnkernum. Hussein lét hins vegar draga sig upp úr holunni. Hvorugur kannski sérstök hetja, en Hitler lét þó óvin- inn ekki spotta sig. Í germanskri menningu dóu hetjurnar vopndauða. Annars kom- ust þær ekki til Valhallar. Þær þurftu sem sé að vera drepnar af öðrum til að deyja vel. En Elpidía greyið mætir skiln- ingsleysi hjá kaþólskum löndum sínum. Hún má auðvitað ekki ráða yfir lífi og dauða, vitlaus kerling- in. Kom þú sæll, þá ég vil ... landsþekktan ljósmyndara Reyndar stefndi allt í það að þetta yrði einhver versta vika í lífi Páls Stefánssonar sem uppgötv- aði sér til mikillar skelfingar, vakinn af lögreglunni, að búið var að stela dýrindis felgum undan bíl hans. Og dagurinn átti að hefjast með því að heimsækja lögregluna, en ekki að fá hana í heimsókn, til að sækja ökuskírteini dóttur hans. Fara í fyrsta bíltúrinn. En gæfan brosti við Páli. Felgurnar fundust og ekki nóg með það ... líklegt er að í kjölfarið muni fjöldi hliðstæðra mála, þar sem óprúttnir þjófar koma við sögu, leysast. ... Garðar Thor Cortes Það er varla á gæfuna bætandi þegar þessi ástsæli og gullfallegi tenór er annars vegar. Hann er sannlega sólskinsmegin í til- verunni en þessi vika reyndist með þeim betri þegar Garðar er annars vegar. Það hlýtur að teljast frábært fyrir mann sem telst til þjóðar þar sem upphefðin kemur sannarlega að utan að vera til umfjöllunar í Hello Magazine. Þar eru þeir ríku og frægu og fallegu. Og þar er okkar maður. Í ríkulega myndskreyttri umfjöllun og viðtali. Umboðsmaður hans, Einar Bárðarson, hlýtur að fagna þessu öðrum mönnum fremur og býst nú við að moka nýju plötu Garðars, When You Say You Love Me, út í bílförmum. ... Geir Hilmar Haarde. Það er ekki búið að blása byr- lega fyrir forsætisráðherra í þessari viku: Kreppan eykst, krónan fellur og fellur, það er snúið út úr fyrir honum; ummælum sem hann lætur falla í góðu geimi í útlöndum með gengið, dollara og evru, Sjálfstæðisflokkurinn er í frjálsu falli í skoðanakönnunum en hvað gerist ekki þá? Loksins góðar fréttir fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Loksins búið að hrekja Baug úr landi. Þá þarf ekki að láta það fara í taugarnar á sér lengur. Ríkið missir væntanlega og að vísu einhverja milljarða úr ríkiskassanum en hvað er einn keppur í sláturtíðinni? ... ástsælan leikara Pálmi Gestsson dvelst nú á heimaslóðum þar sem hann er að gera upp elsta hús Bolungarvík- ur og njóta sumarsins ásamt konu sinni Dillý og fjölskyldu. Af góðmennsku og dugnaði tekur hann að sér að annast hafnar- vörslu í plássinu og gerir þannig stóra bróður sínum greiða. Pálmi bjóst sannarlega ekki við púli við það starf, sá jafnvel fyrir sér að geta velt fyrir sér nokkrum sketsum í komandi Spaugstofuþætti þar sem hann sæti við höfnina og fylgdist með bátum koma og fara. En, nei. Ekki var því nú að heilsa. Starfið reyndist hörku púl en Pálmi þarf að vigta hvern einasta sporð sem landað er í Bolungarvík. Jafnvel þá sem eru húkkaðir af kæjanum. „Við lifum í vigtunarsamfélagi,“ segir Pálmi og hefur lög að mæla um reglugerðafarganið sem er hér allt og alla að drepa. ... Björgvin Guðmundsson Spurningin er bara: Hvorn? Báða líklega. En er þetta verri vika fyrir Björgvin Guðmundsson, nýráðinn stjóra við- skiptafrétta Morgunblaðsins. en Björgvin Guðmundsson einn helsta konung lesendabréfanna? Líklega. Björgvin yngri er yfir viðskiptafrétt- um Morgunblaðsins en lenti í að sett var mynd af honum við grein nafna hans þar sem fyrirsögnin er: „Kvóta- kerfið er blettur á íslensku þjóðinni“. Þekkir samstarfsfólk Björgvins í ljósmyndadeild Moggans ekki Björgvin? ... Björgvin Guðmundsson Eða hvað? Ekki getur þessi misskilningur: Að hann sé ekki hann, frægur svarinn andstæðingur kvótakerfisins, heldur fyrrverandi formaður SUS þar sem menn hafa varið kvótakerfið eins og þeir grimmu varðhundar valdsins sem þeir eru. Og ekki getur það verið uppbyggilegt fyrir Björgvin, sem er einn helsti konungur aðsendra greina þar sem hann hefur stungið á kýlum til vinstri og hægri, að jafnvel fjölmiðlafólk skuli ekki þekkja hann. Það hlýtur að vera alveg glatað. En svo kemur á móti að þeir eru náttúru- lega glettilega líkir nafnarnir og má það heita huggun harmi gegn. GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA KLEMENS ÓLAFUR ÞRASTARSON KÍKIR Í ERLEND BLÖÐ 99 kr .s m si ð 99 k r. sm si ð Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón: i i i li i i : Þá sendir þú SMS-ið: JA LAUSN JON i i : Þú gætir unnið Vantage point á DVD! Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐ á númerið 1900! Leystu krossgát una! Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.this.is/krossgatur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.