Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 58
36 5. júlí 2008 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Marta María Jónasdóttir
… SVARTAN PRJÓNAKJÓL
Hann er dásamlega
fallegur yfir gallabuxur
eða bara einn og sér.
Hann fæst í versluninni
Noa Noa í Kringlunni.
… LÍKAMSSKRÚBB
FRÁ BIOTHERM
Þetta er eitt af
fáum appelsínu-
húðarbönum sem
svínvirka. Skrúbburinn
er borinn á þurra húð
og nuddað vel inn í
húðina áður en hann
er skolaður af. Biotherm
vörurnar fást í næstu
snyrtivöruverslun.
… SKÓ MEÐ OPINNI TÁ
Þeir eru frá Stuart Weitzman
sem er mjög frægur amer-
ískur skóhönnuður. Skórn-
ir fást í Skóbúð Þráins
skóara á Grettisgötu.
OKKUR
LANGAR Í
…
RISAVAXIN SÓLGLERAUGU
STÓR OG SVÖL Þessi gleraugu eru með
„degrade“-glerjum, dökk efst og lýsast
svo niður. MYND/GETTYIMAGES
VICTORIA BECKHAM
Fer varla út úr húsi nema að vera með
sólgleraugu. Hér er hún með gleraugu
frá GUCCISTÓR OG FLOTT Þessi sólgleraugu lýsa sumartískunni vel, tvílit með „degrade“-glerjum.
Í vikunni áttum við vinkonurnar athyglisverðar samræður um hliðar-
spik. Ein var að býsnast yfir skvapkenndum maga um leið og hún hélt á
fjögurra mánaða gömlum syni. Ég sagði henni að það tæki líkamann
meðgöngutíma að ganga almennilega saman og hún gæti því ekki
kvartað fyrr en í fyrsta lagi eftir fimm mánuði. Í framhaldinu rifjaði
ég það upp að ég vissi hreinlega ekki hvernig tilfinning það væri að
vera með rennisléttan eða jafnvel infallinn maga. Þegar ég leit til baka
mundi ég þó að þegar ég var með son minn í fanginu breyttust fitu-
komplexarnir svolítið. Í staðinn fyrir að býsnast yfir of breiðum lærum
varð maginn aðalskotspónninn. Ég gekk meira að segja svo langt að
biðja lækninn, sem tók á móti barninu, um að skera örlítið af fitunni og
varð alveg brjáluð þegar hann neitaði. Fannst þetta vera aðeins of slök
þjónusta frá hinu opinbera þar sem hann þurfti hvort sem er að sauma
þetta saman aftur. Eftir að ég jafnaði mig á þessu hef ég bara mælt
með því að „feika“ flottar línur með góðum hjálpartækjum. Er ekki
auðveldra að kaupa sér bara samfellu en að fara út að hlaupa? Kannski
er ég búin að horfa of mikið á „How to look good naked“
en eftir að hafa fjárfest í alvöru samfellum er varla
hægt að fara til baka. Þegar einn vinnufélagi minn, sem
kann að heilla konur upp úr skónum, spurði mig hvort
ég væri alltaf í ræktinni því ég væri með svo flottar
línur þá hét ég mér því að fara helst aldrei samfellulaus
út úr húsi.
Það er samt svolítið merkilegt að konur eru oft
hræddar við tól eins og samfellur og kjósa frekar
sokkabuxur með aðhaldi eða aðhaldsnærbrækur.
Sokkabuxur með aðhaldi skila þó sjaldnast tilteknum
árangri því ef strengurinn rúllast ekki niður þá býr hann
til aukafellingu í mittið sem er allt annað en fallegt.
Aðhaldsnærbuxur eiga það til að búa til fjórar rasskinnar
og það er líka svolítið dapurt. Þegar við vinkonurnar
vorum búnar að ræða þetta fram og aftur varð eiginlega
niðurstaðan að vera í sokkabuxum og samfellu yfir, þá
haggast sokkabuxurnar ekki og línurnar verða svolítið
flottar.
Ég er þó alls ekki að tala um að allar konur eigi að
vera horaðar, mér finnst þrýstnar konur æðislegar og
karlmenn mega alls ekki vera of rýrir. Þar fyrir utan
ættu allir að hreyfa sig eitthvað smá á hverjum degi til
að líða betur í hjartanu. Ég verð samt að mæla með ferð
í Lífstykkjabúðina og þá er aldrei að vita nema ævintýr-
in fari að gerast.
Eina alvöru hjálpartækið
MADONNA Er ávallt með
öll helstu „trendin“ á
hreinu. Hér er hún með
YSL-sólgleraugu sem
hafa algerlega slegið í
gegn. MYND/GETTYIMAGES
>Ekki missa af
Andersen & Lauth-
útsölunni
Þetta er rétti tíminn til að
hnjóta um flotta hönnun
á góðu verði. Íslenska
hönnunarmerkið Ander-
sen & Lauth hefur vakið
mikla athygli fyrir falleg
snið, undursamleg smá-
atriði og góð efni. Kíktu
í verslunina á Laugavegi
86-94 og dressaðu þig
upp.
Sólgleraugu eru einn mikilvægasti fylgihluturinn og er
hægt að poppa sig allhressilega upp með réttu
gleraugunum. Í sumartískunni 2008 eru stór
sólgleraugu það heitasta sem hægt er að hnjóta
um. Vinsælustu sólgleraugun minna einna helst
á gleraugu hippa/diskótímans þar sem stærðin
skipti öllu máli. Sólgleraugnatískan helst í
hendur við fatatískuna og eins og þar er
mikill glamúr í gangi. Þá er alveg sama
hvort umgjörðin er gyllt eða úr plasti,
armarnir steinum skreyttir eða ekki.
Það er þó ekki nóg að umgjörðin sé
falleg því glerin skipta miklu máli. Í
öllum alvöru sólgleraugum frá helstu
tískuhúsunum eru vönduð gler sem
vernda okkur gegn geislum sólarinnar. Í
glerjum hefur verið mikil „degrade“-
tíska, en þau gler eru dökk efst og lýsast
þegar neðar dregur.
Stjörnurnar úti í heimi eru duglegar að
innleiða ný „trend“ og er sólgleraugnatísk-
an ekki undanskilin. Madonna kýs YSL,
Victoria Beckham er Gucci-kona ásamt
Angelinu Jolie og Jennifer Lopez er hrifin
af Balenciaga. Þótt „alvöru“ sólgleraugu
kosti skildinginn er það þó þess virði enda
er ekkert jafnhræðilegt og illa feikuð Prada.
martamaria@365.is
CLAUDIA
SCHIFFER Er flott
með risavaxin
sólgleraugu.
MYND/GETTYIMAGES