Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 21.10.2008, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 21. október 2008 27 FÓTBOLTI Ensku félögin Manchest- er United og Arsenal verða í eld- línunni í kvöld þegar þriðja umferð í riðlakeppni Meistaradeildar Evr- ópu hefst. United fær Celtic í heimsókn á Old Trafford en Ars- enal mætir Fenerbahçe í Ístanbul. Meistaradeildarmeistarar Unit- ed hafa ærna ástæðu til að mæta fullir sjálfstrausts í leikinn gegn Celtic á Old Trafford, enda hafa Sir Alex Ferguson og læri- sveinar hans ekki tapað þar í Meistaradeildinni í síðustu sextán leikjum. „Það er gríðarlega mikilvægt að vinna heimaleikina ef þú ætlar að ná góðum árangri í Meistara- deildinni. Ég er bjartsýnn fyrir leik- inn gegn Celtic þar sem ég hef úr góðum leikmannahópi að velja og ég tel að við séum á réttri leið til þess að komast áfram upp úr riðlinum,“ segir Ferguson. Ferguson er þó minnugur þess þegar Celtic gerði United talsvert erfitt fyrir í Meistaradeildinni árið 2006 þegar United vann naum- lega 3-2 á Old Trafford. „Leikurinn árið 2006 var mjög opinn vegna þess að Celtic komst yfir og við verðum því að passa að það endurtaki sig ekki,“ segir Ferguson. Celtic situr reyndar uppi með óhemju vonda tölfræði á útivöllum í Meistara- deildinni. Stað- reyndin er sú að félagið hefur ekki unnið í síðustu átján leikjum sínum. Arsene Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, hlakkar til að mæta Fenerbahçe og hefur trú á því að leikmenn sínir muni ekki bugast þrátt fyrir mótlætið á erfiðum úti- velli, en Fenerbahçe vann alla fimm heimaleiki sína í keppn- inni í fyrra. „Það er sérstök upplifun að spila í Ístanbul hvort sem það er gegn Fener- bahçe, Besiktas eða Galat- asaray því tyrkneskir áhorfendur eru sér á báti í Evrópu og ná allt- af að skapa mjög erfið- ar aðstæður fyrir gest- ina. Ég á vissulega von á erfiðum leik en ég tel leikmenn mína til- búna og þeir munu ekki láta mótlætið á sig fá,“ segir Wenger. - óþ Man. Utd og Arsenal geta komist með annan fótinn í næstu umferð Meistaradeildarinnar með sigri í kvöld: United hefur ærna ástæðu til bjartsýni ÓSMEYKUR Wenger telur að leikmenn sínir muni ekki láta óvingjarn- legt andrúmsloft í Ístanbul hafa áhrif á sig. NORDIC PHOTOS/GETTY BJARTSÝNN Ferguson hefur fulla trú á því að United geti haldið áfram góðu gengi á heimavelli þegar Celtic kemur í heim- sókn. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Elísabet Gunnarsdóttir, annar þjálfara Íslandsmeistara Vals, verður næsti þjálfari sænska liðsins Kristianstad en liðið endaði í níunda sæti sænsku deildarinnar í ár. Elísabet verður tveggja manna maki hjá félaginu því þeir Thomas Mårtensson og Ulf Palmquist hafa þjálfað liðið í sameiningu undanfarin sex ár. Þeir náðu að halda liðinu uppi á sínu fyrsta ári í deildinni. „Ég er mjög ánægð með þetta en ég veit að þetta verður erfitt,“ segir Elísabet en sænska deildin er af mörgum talin vera sú sterk- asta í heimi. Elísabet segist samt ekki sætta sig við það markmið að ætla að bara að halda sér í deildinni. „Það er mikill metnaður í klúbbnum og það hafði líka mikið að segja að það er mikill áhugi á kvenna- knattspyrnu í bænum. Forráða- menn félagsins tala um að taka lítil skref í átt að því að koma lið- inu í hóp þeirra bestu og mér líst vel á það,“ segir Elísabet en hún er á því að það henti sér vel að byrja að þjálfa hjá ungu og reynslulitlu félagi eins og Kristi- anstad. Valur hefur unnið Íslands- meistaratitilinn þrjú ár í röð og alls fjórum sinnum undir stjórn Elísabetar en í sumar vann hún með Frey Alexanderssyni sem er núna tekinn við Valsliðinu. Hún segir árangur Vals í Evrópukeppninni og það að hún hafi verið dugleg að kynna sig á ferðum sínum erlendis eiga mestan þátt í því að hún fékk þetta tækifæri. Með sænska lið- inu spilar landsliðs- konan Erla Steina Arnardóttir og það kom fram í sænskum fjöl- miðlum að bæði hún og Sigurður Jónsson, þjálf- ari Djurgården, hafi mælt með Elísabetu við forráðamenn félagsins. Það er öruggt að Margrét Lára Viðarsdóttir mun ekki koma með Elísabetu til Kristianstad en það má samt búast við því að Elísa- bet leiti til annarra íslenskra leikmanna til að styrkja liðið fyrir næsta tímabil. „Ég hef áhuga á að fá til mín nokkra leikmenn frá Íslandi en þetta verður samt ekkert lítið útibú frá Val. Það hafði samt mikil áhrif að liðið spilar í rauð- um búningum,“ segir Elísabet í léttum tón. Hún ætlar að fara að vinna í leikmanna- málum á næstunni en fyrst á dagskrá er að fara út og skrifa undir samninginn. - óój Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar Kristianstad í sænsku deildinni á næsta tímabili: Ætlar sér ekki að stofna lítið Valsútibú í sænsku deildinni KÁT Elísabet Gunnars- dóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR KÖRFUBOLTI Kvennalið Hamars hefur vakið mikla athygli í upp- hafi Iceland Express-deildar kvenna. Liðið er á toppnum eftir tvo góða sigra, fyrst 83-59 á móti Snæfelli á heimavelli og svo 76-65 á móti KR í DHL-höllinni á laugar- daginn. Þetta er besta byrjun Hamars- liðsins í sögu félagsins í efstu deild en á fyrstu tveimur tímabil- um liðsins í efstu deild kom fyrsti sigur vetrarins ekki fyrr en í fimmta leik liðsins. „Ég er alveg himinlifandi yfir þessu,“ segir Ari Gunnarsson, þjálfari liðsins, en hann segir að góður undirbúningur eigi mikinn þátt í velgengni liðsins nú. „Stelp- urnar eru orðnar reyndari og svo komu líka lykilleikmenn betur undirbúnir eftir landsliðsverkefn- in,“ segir Ari. Þær Fanney Lind Guðmundsdóttir og Jóhanna Björk Sveinsdóttir léku sína fyrstu A- landsleiki í haust og Hafrún Hálf- dánardóttir æfði líka með A-lands- liðinu í sumar. „Við stefnum í hóp fjögurra efstu liða og þar liggur okkar markmið,“ segir Ari en hann segir mestan muninn á liðinu frá því í fyrra liggja í betri varnarleik. Ari er líka sáttur við að liðið hafi náð að sýna stöðugleika með því að vinna tvo góða sigra í röð. Hann vill samt sjá smá hugarfars- breytingu hjá sínum stelpum. „Það sem við þurfum að fara að gera er að fara að læra að vinna leiki,“ segir Ari sem vildi sjá sínar stelpur fagna meira sigrinum á móti KR. „Ég sagði við þær eftir KR-sigurinn að það væri allt í lagi að sleppa sér aðeins. Mér finnst þetta vera mikið takmark að ná að vinna KR á útivelli og ég var mjög ánægður,“ sagði Ari en Hamri var spáð 5. sæti fyrir tímabilið á sama tíma og KR var spáð 2. sætinu. Hamarsliðið er enn þá með tvo erlenda leikmenn þrátt fyrir efna- hagsástandið og þær Lakiste Bark- us og Julia Demirer verða áfram hjá liðinu, að minnsta kosti í viku í viðbót. „Við tökum bara viku fyrir viku og endurskoðum þetta í hverri viku,“ sagði Ari um framtíð þeirra í Hamri en hann fékk flott fram- lag frá erlendu stúlkunum í sigrin- um á KR þar sem Barkus var með 22 stig, 10 fráköst og 5 stoðsend- ingar en Demirer bætti við 20 stig- um, 6 fráköstum og 5 vörðum skot- um. Næsti leikur Hamars er á móti Fjölni á miðvikudaginn og Ari vonast til að Hvergerðingar mæti á leikinn og sýni stelpunum sínum stuðning því þær sjálfar séu búnar að leggja mikið á sig til að reyna að koma Hamri í efri hluta deild- arinnar í fyrsta sinn. - óój Hamarskonur hafa aldrei byrjað betur og þjálfarinn Ari Gunnarsson er himinlifandi: Þurfa að læra það að vinna leiki ÁKVEÐIN Hamarskonan Fanney Lind Guðmundsdóttir spilaði sína fyrstu þrjá landsleiki í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL LEIKIR KVÖLDSINS E-riðill: Man. Utd-Celtic Stöð 2 Sport Villarreal-AaB F-riðill: Bayern München-Fiorentina Steaua Búkarest-Lyon G-riðill: Fenerbahçe-Arsenal Stöð 2 Sport 3 Porto-Dynamo Kiev H-riðill: Juventus-Real Madrid Stöð 2 Sport 4 Zenit-Bate Borisov FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam- bandið ætlar að rannsaka ummæli sem Didier Drogba, framherji Chelsea, lætur falla í nýrri ævisögu sinni. Drogba fékk rautt spjald fyrir að klappa á kinnina á Vidic í úrslitaleik Meistaradeild- arinnar en segir í ævisögunni að hann sjái eftir því að hafa bara ekki lamið Serbann almennilega. „Ef ég hefði lamið hann almennilega þá hefði ég alltént átt rauða spjaldið skilið og ég sé eftir að hafa ekki gert það þá,“ segir Drogba. - óþ Didier Drogba, Chelsea: Hefði átt að lemja Vidic RAUTT SPJALD Drogba fékk rautt spjald eftir samskipti sín við Vidic í úrslitaleik Meistaradeildarinnnar. NORDIC PHOTOS/GETTY Alcoa Fjarðaál býður íbúum á Austurlandi til kynningarfunda 21., 22. og 23. október næstkomandi. Á fundunum kynna starfsmenn álversins starfsemi þess, umhverfisstefnu Alcoa, niðurstöður rannsókna á umhverfisáhrifum álversins meðan á gangsetningu stóð, mannaráðningar, samfélagsleg áhrif álversins og fleira. Fundirnir hefjast með stuttu erindi og síðan geta fundargestir kynnt sér upplýsingar um álverið á veggspjöldum og rætt við starfsfólk og sérfræðinga álversins. Allir fundirnir hefjast klukkan 20.00 og verða haldnir sem hér segir: Á fundunum verður boðið upp á kaffi og meðlæti. Allir velkomnir! Nesskóla í Neskaupstað þriðjudaginn 21. október Grunnskóla Eskifjarðar þriðjudaginn 21. október Grunnskóla Reyðarfjarðar miðvikudaginn 22. október Menntaskólanum á Egilsstöðum miðvikudaginn 22. október Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar fimmtudaginn 23. október Grunnskólanum á Stöðvarfirði fimmtudaginn 23. október K O M A L M A N N A T E N G S L /S V A R T H V ÍT T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.