Tíminn - 04.07.1982, Blaðsíða 18

Tíminn - 04.07.1982, Blaðsíða 18
SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982 ■ Hvað svo sem halastjörnur gera af sér að öðru leyti þá hafa þær áhrif á imyndunarafl fólks og hafa alltaf gert. Þær eru, í bókstaflegri merkingu, himna- sending fyrir frumstæða hjátrú og enn þann dag í dag eru þeir til sem telja þær merki um voveiflega atburði. Arið 60 eftir Kríst birtist ein slik á himninum yfir Róm og borgarbúar tóku strax að velta fyrir sér hver yrði OG SKELFING! — Halley-halastjarnan kemur um áramótin 1985—86 eftirmaður Nerós, því nú væri hann feigur. Neró brá við skjótt og lét taka fjölda mektarmanna í borginni af lífi í von um að svala með þvi blóðþorsta stjörnunnar. Inkarnir í Perú litu á halastjörn- ur sem merki um að sólarguðinn Inti væri þeim reiður og fórnuðu smábörnum til að friðþægja honum, sem dugði þó ekki þegar hin fræga Halley-halastjama birt ist árið 1531. Nokkru siðar birtist Pizzarro. Fimm öldum áður var Halley einnig á ferðinni, 1066: þá gerði Vilhjálmur bastarður innrás á England. Trúin á mátt halastjörnunnar er siík að menn hika ekki við að svindla dálítið til að trúin haggist ekki. Það er útbreidd þjóðsaga að skömmu fyrir morðið á Cesar hafi halastjarna blikað á himinhvolf- inu yfir Róm en raunin er sú að halastjarnan birtist ekki fyrr en mörgum mánuðum eftir morðið. Trúgjarnir Rómverjar ákváðu þá að stjarnan værí sál leiðtog- ans á leið til æðri heima. Og á þessari öld er trúin enn við lýði. Þegar Halley skaut upp kollin- um árið 1910 var það aðeins snaggaraleg framganga lögreglu- stjóra nokkurs i Oklahoma sem kom i veg fyrir að hópur sem kallaði sig Heilögu lærisveinana fórnaði óspjallaðri stúlku, stjömunni til dýrðar. Um sama leyti rikti mikill ótti við að för jarðar gegnum hala stjörnunnar myndi orsaka gaseitranir og veit ekki hvað og þó visindamenn reyndu að fullvissa þjóðir heims um að slíkt væri með öllu skaðlaust þá þorðu margir ekki að láta reyna á það, heldur frömdu sjálfsmorð. Og spáð var miklum hörmungum um áramót- in 1973-74 þegar halastjarnan Kohoutek lét sjá sig skamma hrið: þá gengu Guðsbörn um götur Reykjavikur og dreifðu bæklingum eftir Móses Davíð um komandi heimsendi. Hver var Halley? Langfrægasta halastjarnan er fyrr- nefnd Halley-stjarna enda birtist hún með reglulegu millibili og er ein skærasta halastjarnan sem heimsótt hefur sólkerfið okkar. Halley sá sem hún er nefnd eftir hefur, þrátt fyrir að hann hafi verið mætur visindamaður, alveg fallið í skuggann og fáir vita hver hann var - ekki fremur en menn vita hver Parkinson var, þó flestir þekki Parkin- sonveiki. En það vakti fyrir Halley að koma halastjörnum fyrir á réttum stað i tilverunni og eyða þannig ótta fólks við þær en fór á annan veg. Er hann fæddist, árið 1656, voru halastjörnur mjög i tísku hjáfrumstæðumvísindunum og segja má að keppni hafi rikt um hver yrði fyrstur tii að átta sig á eðli þeirra. Halley datt i lukkupottinn - að sumu leyti. Klukkan rúmlega hálf sjö að morgni hins 22. nóvember 1682, er Halley var við rannsóknir i stjörnuathugunarstöð sinni rétt fyrir utan London, kom hann fyrst auga á stjörnuna sem átti eftir að verða n.k. tvífari hans. Hann fylgdist náið mcð leið hennar yfir himininn og ári síðar lögðu hann og Robert Hooke fram kenningar um að til væri einhvers konar þyngdarafl sem stjórnaði hreyfingum allra hluta í sólkerfinu. Þeim tókst þó ekki að renna stoðum undir kenningar sinar og i ágúst 1684 fékk Halley þá hugmynd að leita hjálpar Isaac Newtons. Newton sagðist hafa fylgst með halastjörnunni sjálfur og komist að þeirri snilldarlegu niðurstöðu að ef halastjarnan sem sást á leið til sólar væri sú sama og nokkru siðar sást á leið frá sólu, þá hlyti hún að hafa breytt um stefnu! Hann rissaði upp mynd af leið stjörnunnar en lét Halley um alla útreikninga. Þá kvaðst Newton hafa áttað sig á þyngdaraflinu en siðan glatað reikningum sínum - sem var ámóta og ef Kólumbus hefði gleymt leiðinni til Ameríku. Halley tókst að sannfæra Newton um að halda rannsóknum sinum áfram og sem allir vita ;r hann nú talinn uppgötvari þyngdaraflsins. 2 milljónir ára á leiðinni En hvað um það. Halley reiknaði út leið halastjörnunnar og spáði þvi að hún myndi birtast aftur 1758. Evrópaöll beið í ofvæni og sjá á jóladag kom stjarnan í ljós og kenningar Halley höfðu reynst réttar. Næst birtist halastjarnan, sém nú var farið að kenna við Halley, árið 1835, siðan 1910 og innan fárra ára er von á henni aftur. En Halley er ekki eina halastjarnan sem þekkt er, langt í frá. Hjá stjarnfræðistofnun nokkurri í Banda- ríkjunum eru 666 halastjörnur á skrá en flestar þeirra eru svo daufar að þær sjást aðeins í sjónaukum. Mjög bjartar stjörnur af þeirri gerð sem fylla fólkið ótta sjást aðeins nokkrum sinnum á öld. Skipta má þessum halastjörnum i nokkra flokka og hér er fylgt skiptingu Nigel Calders en hann skrifaði árið 1980 bók um halastjörnur. Fyrstar eru Kohoutek stjörnur. Þær eru liðlega hundrað og koma úr ógurlegri fjarlægð utan úr geimnum, allt að einu Ijósári. Þær þekkjast af miklum hraða er þær fara kringum sólina. West halastjörnur eru taldar nálægt 450 og það tekur þær allt að tveimur milljónum ára að fara eina sporbraut um sólina. West birtist um áramótin 1975-76 þessari gerð verða að likindum fyrir miklum skakkaföllum af völdum plán- etnanna sem víkja þeim af leið sinni með þyngdarafli. Encke er sér á báti. Hún er aðfeins þrjú ár og einn þriðjung að skreppa hringinn og birtist síðast árið 1980 þó litið hafi farið fyrir henni. Hún kemur næst árið 1984, það er 53ja skráða heimsókn hennar. Ótal kenningar eru til um halastjörnur og sumar þeirra ansi langsóttar. Um tima var til dæmis haldið að þær kæmu úr eldfjöllum á Júpíter og Satúrnusi, önnur kenning segir að þær séu - ásamt smástirnabeltinu milli Mars og Júpiters - leifar af reikistjörnu sem sprungið hafi i loft upp fyrir „aðeins“ tíu milljónum w.' ■■ Mm0?íh- -■■-■ , og var þá reiknað út að hún hefði siðast komið fyrir 16 þúsund árum. Ýmsar kenningar uppi Halley gerðin er ekki lengi að þessu, miðað við West stjörnurnar. Halley stjörnur eru taldar vera sextán og þær fara einn hring á 20-200 árum. Engin þeirra fer ýkja langt út fyrir Neptúnus áður en þær snúa til baka. Pons-Winnecke: um það bil hundrað stjörnur sem skjótast fram og aftur á milli 5 og 20 árum. Pons-Winnecke sjálf fer leiðina á rúmlega sex árum og mun næst komast í námunda við sólu árið 1983 og verður það í 19. sinn sem hún sækir okkur heim. Halastjörnur af ára, og svo framvegis. Vinsæl kenning var og er að ský geimryks sé upphaf halastjarnanna: þyngdarafl sólar dragi hluta þess smátt og smátt til sín og er nær dregur sólu eykst hraðinn svo að ýmsar agnir dragast aftur úr og mynda halann góðkunna. Kveikti halastjarna líf á jörðinni? Upp á siðkastið hefur mjög verið um það rætt hvort ýmis efni i halastjörnum geti haft áhrif hér á jörðinni. Sumir telja til að mynda að sjúkdómar geti brotist út i kjölfar halastjörnu en þær kenningar eru ekki hátt skrifaðar. Á hinn bóginn taka ýmsir vísindamenn ekki illa i að efni í halastjörnum geti hafa orðið til þess að flýta fyrir eða jafnvel kveikja lif á jörðinni. Of lítið er þó vitað um samsetningu halastjarna til að nokkur þori að fullyrða um slíkt en nú ber svo vel í veiði að Halley er á leiðinni. Bandaríkjamaður nokkur, Donald Yeomans hjá Jet Propulsion Labratory hefur reiknað út braut Halleys mjög nákvæmlega og hann hefur komist að þeirri niðurstöðu að á leið sinni til sólar verði Halley fyrst sjáanleg með berum augum i janúar, en stjaman mun fara fram hjá jörðinni alllöngu fyrr, eða í nóvember. Undir lok desember ætti svo að vera unnt að sjá stjörnuna með sterkum sjónauka en þriðju vikuna i janúar ætti sem sagt að vera unnt að sjá hana á vesturhimninum eftir sólarlag. Þá mun halastjarnan þó ekki verða bjartari en hvaða fastastjama. Skömmu síðar æðir Halley svo fram hjá sólinni og týnist þá i allri birtunni. Er Halley verður komin framhjá sólu verður stjarnan sýnileg frá jörðu skömmu fyrir dögun. Undir lok febrúar gerir Yeomans ráð fyrir að hún muni sjást allvel um það klukkustund áður en sólin kemur upp en siðan „risa“ sífellt fyrr á hverri nóttu um leið og hún færist sunnar á himininn. 7. mars mun hún vera komin á hæð við tunglið og um miðjan mars ætti halinn, ef hann sést á annað borð, að teygja sig yfir einn sjötta hluta himinsins. Sést ekki frá íslandi Þann 11. april verður Halley næst jörðu og verður hátt á himninum yfir Ástralíu, Nýja Sjálandi og Argentínu, fremur björt. Svo illa vill hins vegar til fyrir okkur íslendinga að við munum ekki sjá Halley, fremur en aðrir á norðurhveli jarðar, nema e.t.v. sunnar- lega en þar verður stjarnan þó aðeins mjög lágt á himninum. Gera má ráð fyrir, ef einhver hefur áhuga, að skiputagðar verði hópferðir á suðurhvel jarðar til að sjá stjörnuna... Besta tækifæri norðurhvelsins til að líta Halley augum verður i lok apríl en snemma i maí má reikna með að stjörnuhröpum fjölgi stórkostlega en þá fer jörðin inn á sjálfa braut Halley, en að visu sjö vikum eftir að hún sjálf er farin hjá. Þá verður aðeins hægt að sjá hana i sterkum sjónaukum. Árið 1910 gerðist það að önnur og óvænt halastjarna skyggði á Halley þar sem hún var bjartari. Jafnvel þó það sama yrði uppi á teningnum nú er varla hætta á að Halley tapi nokkru af frægð sinni. Á eftir sólinni og tunglinu er Halley-halastjarnan liklega frægasti „hnötturinn" i sólkerfinu og engin ástæða til að hún glati þeirri stöðu. Halastjörnur hafa nefnilega áhrif á imyndunaraflið... -ij endursagði lauslega

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.