Tíminn - 23.09.1983, Blaðsíða 10

Tíminn - 23.09.1983, Blaðsíða 10
10 íþróttir umsjón: Samúel Örn Erlingsson Nýtt fyrirkomulag í úrvalsdeildarkeppninni Fjogurra liða úrslitakeppni - fyrir efstu liðin, en ekkert fyrir hin tvö ■ Nýtl fyrirkomulag verður í vetur á úrvalsdcildar- kcppninni í körfuknattleik. Fjögur efstu liöin í úrvals- deildinni, hvar 6 lið alls leika, munu leika úrslitakeppni, þannig að lið númer 1 og 4 leika saman uns annað hcfur unnið tvo leiki, og síðan nr. 2 og 3 á sama hátt. Sigurvegararnir leika síðan til úrslita þar til annað liðið hefur unnið tvo leiki. Liðin sem lenda í 5. og 6. sæti Ijúka keppni frá og með fjórfaldri umferð deildarinnar, og neðsta liðið fellur. Það lið sem sigrar í úrvalsdeildar- keppninni sjálfri fær ekkert fyrir sinn snúð. -SÖE Jafntefli hjá nágrönnunum Holland - Belgía Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn: ■ Sterkt hollenskt landslið í knattspyrnu gerði jafntefli við það belgíska í fyrrakvöld í vináttulandsleik. Hvort lið skoraði eitt mark, Van Basten kom Hollendingum á sporið með góðu marki, en Vordeckens jafnaði fyrir Belga. -MÓ Landsliðið tapaði fyrir Bayern Miinchen - í Kveðjuleik „Bombunnar“ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn: ■ Vestur Þýska landsliðið tapaði fyrir Bayern Múnc- hen í vikunni 2-4 í ágóðaleik fyrir „Bombuna" Gerd Múller, hinn fræga markaskorara sem lék með Bayern hér áður fyrr. Múller hefur nútekjur af knattspyrnu í Bandaríkjunum, en fékk aldrei kveðjuleik, sem er hefð hjá Bayern fyrir slíkar hetjur, þegar hann fór á sínum tíma frá félaginu til Bandaríkjanna. -MÓ/SÖE Vestur-Þjóðverjar í úrslit - í kvennaflokki EM í blaki Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn: ■ Vestur-Þjóðverjar stóðu sig með prýði í riðlakeppni lokakeppninnar í Evrópukeppni landsliða í blaki kvenna, en riðlakeppninni lauk í fyrrakvöld í A-Þýska- landi. Vestur- Þjóðverjar komust í úrslit ásamt 5 Austur-Evrópuþjóðum, Sovétmönnum, Tékkum, Búlg- örum, A-Þjóðverjum ogUngverjum. Kvennalið Vestur- Þjóðverja hefur komið mjög á óvart, því það kom á óvart að þær skyldu yfirleitt komast áfram í riðlakeppni úr undankeppninni. -MÓ/SÖE Svíar á uppleið á ný í borðtennis ■ Sænska landsliðið í borðtennis malaði það ung- verska í Ungverjalandi 7-0 í landskeppni sem lauk í fyrrakvöld. Ungverjarnir, sem eru fyrrverandi heims- meistarar, áttu aldrei möguleika gegn sterku sænsku liði, sem sýndi að sigurinn í Evrópukeppninni á dögunum var engin tilviljun. Vestur-Þjóðverjar sigruðu Frakka 4-3 í landskeppni í borðtennis, sem einnig lauk í fyrrakvöld -MÓ/SÖE Skot irnir unnu - Uniguay í vináttulandsleik Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn: ■ Skotar sigruðu Uruguay í vináttulandsleik í knatt- spyrnu 2-0 í Skotlandi í fyrrakvöld. Það voru Robertson úr vítaspyrnu og Dodda sem skoruðu mörk Skotanna. Körfuknattleikssambandid útilokaði atvinnumennskuna, en: ÚTILOKAÐI ALIA AfiRA ÚTLENDINGA Hvað gerist í máli Websters? Hvað gerist á þingi KKI? ■ Á síðasta ársþingi Körfuknattleiks- sambands Islands var gerð sú samþykkt að banna erlendum leikmönnum að leika með íslcnskum liðum. Var þetta gert til að útloka að atvinnumenn væru keyptir hingað til að leika körfubolta, undir því yfirskyni þó, að þcir væru þjálfarar. Betur tókst þó ekki til en svo, í meðferð þings KKI á málinu, að útilokaðir eru allir frá keppni í Islands- og meistaramótum sambandsins, nema þeir sem hafa íslenskan ríkisborgararétt, hvort sem þeir eru atvinnumenn á launum, ferðalangar, skiptinemar eða menn sem búið hafa á Islandi um margra ára skeið en hafa ekki öðlast íslenskan ríkisborgarrétt. Haukar í Hafnarfirði sendu stjórn Körfuknattleikssambandsins umsókn um leyfi til að DeCarsta Webster, sem leikið hefur með liðinu undanfarin tvö ár, og búið hér í mörg ár, fengi að leika V. ■ í ‘ með liðinu í vetur, þrátt fyrir ákvörðun þá sem tekin var á ársþinginu. Nefndu Haukar það til stuðnings máli sínu, að Webster væri heimilisfastur í Hafnar- firði, ætti íslenska.konu og barn og hefði unnið fyrir sínu brauði eins og hver annar íslendingur, og ekki fengið greiðslur sérstaklega sem leikmaður. Stjórn Kröfuknattleikssambandsins vís- aði málinu til formannafundar, og þar var fellt að Webster fengi að leika í vetur, á grunni áðurnefndrar ákvörðun- ar ársþings KKI. Þessi ákvörðun Körfuknattleikssam- bands íslands, eins og hún stendur. kemur í veg fyrir að allir þeir, sem ekki eru íslenskir ríkisborgarar, fá ekki að spila hér körfubolta. Einu gildir hvort um er að ræða ungling, sem hér væri um tíma, skiptinema, mormóna á brúboðs- ferð, eða eins og í tilfelli Websters, mann sem hér býr, vinnur og er gildur þegn í þjóðfélaginu að öllu leyti nema því, að hann þarf að bíða eftir ríkisborg- ararétti sínum í tiltekinn tíma, lögum samkvæmt. - Margir vilja reyndar meina, að ákvörðun KKÍ brjóti í bága við lög um mannréttindi og félagsfrelsi einstak- linga, og víst er að það mál verður fullkannað áður en lýkur. Þá er spurn- ingin, hvernig geta íslendingar ætlast til að þeir fái að leika körfuknattleik erlend- is, eins og reyndar margir ungir körfu- boltamenn gera í Bandaríkjunum og víðar, þegar útlendingar fá ekki að leika hér. - Enda vandræði að lög sem eiga að koma í veg fyrir atvinnumennsku skuli bitna svo á þeim sem ekki eiga það skilið. Samt serp áður stendur ákvörðun KKÍ óhögguð, og ekki Ijóst hvernig það mál fer. -SÖE Þórdís Anna Kristjánsdóttir form. KKÍ: Einungis ■ DeCarsta Webster, fxr ekki að spila, vegna skorts á ríkisborgara- rétti. breytmg” — áður mátti bara vera einn útlendingur, nú enginn ■ „Ég held að þessi lög brjóti ekki í bága við lög íþróttasambands Islands, og ég held að okkur sé frjálst að setja þrengri reglur en þar eru“, sagði Þórdís Anna Kristjánsdóttir formaður Körfu- knattleikssambands íslands í samtali við Tímann í gær, er hún var innt eftir ýmsu varðandi útilokun útlendinganna. „Við vorum vissulega með þrengri reglur áður, við leyfðum nákvæmlega einn útlending, og nú breytist einn bara í núll“, sagði Þórdis Anna. „Áður voru aðrir eins útilokaðir, ef útlendingur var hjá liði fyrir, svo þetta breytir í rauninni engu. Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri íþróttasambands íslands var þarna á þessu þingi, og hann sagði þá er hann var inntur eftir því, að þessar reglur stönguð- ust ekki á við lög ÍSÍ,“ sagði Þórdís Anna Kristjánsdóttir. - Hafið þið hjá KKÍ athugað hvort þessi lög stangast á við mannréttindalög eða slíkt? ' „Nei ég veit ekki til þess að slíkt hafi verið gert. - Mín skoðun er sú, að þetta sé ekki meira brot á mannréttindum en voru. Það voru útilokaðir þeir menn sem oft helst áttu heimtingu á að fá að spila, t.d. mormónar sem hér hafa verið, og fólk sem hér hefur verið við nám eða með foreldrum sínurn". Þannig fólk komst ekki að ef útlendingur var fyrir hjá félagi." ARABIUÆVINTYRH) VARBABENGU! KR og Valur fara ekki til Quatar og Kuwait ■ Arabíuævintýri KRog Valsíknatt- spyrnu, sem hefjast átti í kvöld, varð að engu í gær. Að sögn Halldórs Einarssonar, „alias“ Henson, gerðist það í gær, sem óhjákvæmilega gerði för KR og Vals til Quatar og Kuwait að engu, en Halldór hafði komið ferðum þessum í kring félögunum að kostnaðarlausu gcgnum umboðsmann sem sér um að skipuleggja keppnir og keppnisferðir víða um lönd. „Hann fékk svo lítinn tíma til að sjá um að lið kæmu í mótið, sem upphaf- lega átti að vera í dag, að hann reyndi að fá mótinu seinkað til laugardags, og hafði síðan samband við okkur“, sagði Halldór i gær í samtali við Tímann. - Það gekk ekki í Arabana, og því varð að afpanta allt saman. Þetta er mjög leiðinlegt að þetta skyldi koma fyrir, en það kemur dagur eftir þennan dag. Svona ferðir eiga að geta orðið til fvrir Islendinga, vegna þess að við keppum á þeim tíma ársins, að hvíldartími okkar hentar Aröbunum og þeim sem þeim megin eru á hnettinum mjög vel“. -SÖE RAGNAR HJA ÖRGRYTE? kannar adstæður — hollensk félög í myndinni Frá Þórði Pálssyni í Keflavík ■ Ragnar Margeirsson, Knattspyrnu- maðurinn knái úr Keflavík er nú við æflngar og keppni í æflngaleikjum með Örgryte, liðinu í Svíþjóð sem Örn Ósk- arsson lék með lengi. Ragnar hefur kannað aðstæður hjá félaginu, og virðist allt þarna úti í himnalagi, hvað varðar aðstæður, kaup og kjör. Ekki er þó víst að Ragnar skrifi undir sanming hjá Örgryte, því fleiri félög eru inni ■ myndinni, og hefur Holland verið nefnt í því sambandi. Mun Ragnar kanna aðstæður víðar en hjá Örgryte, Ragnar Margeirsson, leikur hann í Svíþjóð eða Hollandi í vetur? þess vegna, en væntanlega skýrist fljót- lega hvað hann mun gera í vetur. TóP/SÖE Einar Bollason þjálfari Hauka: ■ Einar Bollason: „Við gefumst ekki upp“. ■ „Forsvarsmcnn úrvalsdeUdarlið- anna komu á fundinn alveg ákveðnir í að koma í veg fyrir að Webster gæti spilað", sagði Einar Bollason, þjálfari Hauka í samtali við Tímann í gær. „Haukar sendu stjórn KKÍ beiðni um að Webster fengi að spila, stjórnin klofnaði í afstöðu sinni til málsins, og vísaði málinu til Stjórn KKÍ klofnaði í málinu” og vísaði til formannafundar þar sem allir mótherjarnir lögðust á eitt — formannafundar, þarsem allir mótherjar okkar lögðust á eitt“, sagði Einar. „Aftur á móti fékk máiið mjög jákvæðar undirtektir aUs staðar annars staöar." „Nú er eiginlega bara hjá okkur að bíða eftir því að Webster verði íslenskur ríkisborgari, hann hefur búið hér á landi TEL AÐ ÞETTA SE VAFASAMT HJÁ KKÍ” segir Gísli Gíslason körfuknattleiksmaður og lögfræðingur hægt að banna einum eða öðrum að taka þátt“. -SÖE um bannið á útlendingunum ■ „Ég tel að þessi ákvörðun Körfu- knattleikssambandsins eins og hún stendur sé ákaflega vafasöm“, sagði Gísli Gíslason, kunnur körfuknattlciks- maður í mörg ár og lögfræðingur í Reykjavík um ákvörðun KKI um útilokun útlendinganna. „Mér finnst félagafrelsi verða talsvert undir í íþróttum, ekki síst varðandi þetta mál, og reyndar líka vegna þessa gjalds sem byrjað er að taka fyrír félagaskipti viða“, sagði Gísli. Gísli sagði að menn mættu samkvæmt lögum vera í félagi hvar sem er, óháð þjóðerni og sér þætti gróft að útiloka menn frá keppni, vegna þjóðernis síns. „Að vísu verða menn að fá heimild frá íþróttasambandi Islands til að leika í keppni, og ég veit reyndar ekki hvort það rekst á við þessa ákvörðun KKÍ, en það kann að vera. Þá er spurning hvort nær lengra, lög ÍSÍ, eða sérsamband- anna. í lögum ÍSÍ er t.d. búsetuskilyrði, í 6 mánuði. - Mér finnst þetta satt að segja allt mjög vafasamt hjá Körfuknatt- leikssambandinu. Ég benti þeim á á sínum tírtia, að ef þeir ætluðu með þetta í gegn, yrði þetta að vera ansi vel orðað, og mér sýnist að þeir hafi ekki vandað sig nógu vel. -Það á ekki að vera hægt að útiloka menn frá keppni á þeim grundvelli að þeir séu útlendingar“, sagði Gísli. „Það að menn megi ekki taka þátt í íþróttum, sem eiga að vera af hinugóða, verður að vera byggt á einhverju stærra eða meira en að af sökum þjóðemis sé ■ Gísli Gíslason: „Tel málið vafa- samt hjá KKÍ“ í nægilega mörg ár, en ákveðinn tími frá því hann gifti sig hér er ekki liðinn. Þegar hann er liðinn, er ekkert því til fyrirstöðu að hann fái ríkisborgararétt." „Afstaða félaganna í úrvalsdeildinni til Websters er fáránleg, svo ekki sé meira sagt. Þeir hugsa bara um eigið skinn, og það hvarflar ekki að þeim hvað okkur vantar sárgrætilega miðherja í landsliðið. Webster er maður sem gæti skipt sköpum hjá okkur í því, því landsliðið hefur engan mikilhæfan mið- herja sem stendur." Einar Bollason sagði að tillögunni, sem segir að leikmenn í íslandsmótum skuli vera íslenskir ríkisborgarar hafi verið troðið í gegnum ársþingið til að koma í veg fyrir að tveir menn fengju að spila hér, þeir DeCarsta Webster og Stewart Johnson,“ sem báðir eru giftir íslenskum konum, og eiga íslensk börn og eru búsettir hér á landi. En andi laganna eins og upphaflega átti að setja þau fram var að stöðva launaða atvinnu- menn í körfuknattleik á íslandi, vegna þess að félögin stóðu ekki undir þessu fjárhagslega." „En við munum berjast í þessu máli, okkur finnst þetta hróplegt ranglæti, sem á ekki að viðgangast, og við munum leita allra leiða í þessu, þetta er ósann- gjarnt gagnvart Webster, sem býr hér og vinnur hér og greiðir hér sína skatta, og þetta er ósanngjarnt gagnvart öðrum sem kynnu að lenda í svipaðri aðstöðu síðar“, sagði Einar Bollason. -SÖE Hilmar var bestur — á Tékk-kristalmótinu í golfi - Frá Þórði Pálssyni í Keflavík: ■ Hilmar Þorbjörnsson GS sigraði í meistaraflokki karla á Tékk-kristalmóti Golfklúbbs Suðurnesja sem haldið var um síðustu helgi. Gamli jaxlinn Þor- bjöm Kjærbo fylgdi honum fast eftir, og annar gamall jaxl, Sigurður Albertsson varð þriðji. Tékk-kristall gaf öll verðlaun til mótsins, og ungfrú ísland, Unnur Stcinsson afhcnti verðlaunin. Úrslit urðu þessi í hinum ýmsu flokkum: Meistaraflokkur karla: 1. Hilmar Björgvinsson, GS ..........77 2. Þorbjörn Kjærbo, GS.................80 3. Sigurður Albcrtsson, GS.............82 1. flokkur karla: 1. Skúli Skúlason, GH..................80 2. Þorsteinn Geirharðsson, GS .........81 3. Rúnar Kjærbo, GS ...................81 2. flokkur karla: 1. Ragnar Magnússon, GN ....... 84 2. Hafsteinn lngvason, GS............84 3-4. Rúnar Gunnarsson. GS .............85 3-4. Rúnar Valgeirsson, GS ............85 3. flokkur karla: 1. Logi Þormóðsson, GS ..................83 2. Elías Kristinsson, GS ................87 3. Grétar Grétarsson, GS ................88 Kvennaflokkur: Með furgjöf: 1. Hildur Þorsteinsdóttir, GK ...........78 2. Kristín Sveinbjörnsdóttir, GS.......81 3. Hrafnhildur Gunnarsdóttir, GS ... 87 Án forgjafar: 1. Guðfinna Sigþórsdóttir, GS........ 94 2. Hanna Aðalsteinsdóttir, GK .... 102 3. Lóa Sigurbjörnsdóttir, GK ......... 104 -TóP/SÖE Ráðstefna um launamál kvenna á vinnumarkaðinum haldin í Félagsheiníilinu á Seltjarnarnesi, laugardaginn 24. september kl. 9.00. 2. 3. Formaður Sambands Alþýðuflokkskvenna Kristín Guðmundsdóttir setur ráðstefnuna. Ráðstefnustjóri: Kristín H. Tryggvadóttir Kl. 9.05—11.45: Erindi 1. Kristinn Karlsson, félagsfræðingur Launamisrétti kynjanna i Ijósi félags- fræðinnar. Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur Helstu niðurstööur vinnumarkaðskönn- unar Framkvæmdastofnunar viðvíkjandi launamálum kvenna. Björn Björnsson, hagfræðingur A.S.Í. Hversu ákvaröandi er eftirvinna, bónus, yfirborganir eða önnur hlunnindi í kjör- um kvenna i samanburði við karla á vinnumarkaðinum? — Á aö viðhalda bónuskerfinu eða fara nýjar leiðir? Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur V.S.Í. Viðhorf vinnuveitenda til launamisréttis kynjanna. Hvað er til úrbóta? 10. mín. kaffihlé. Kona i frystihúsi: Aðalheiður Franz- dóttir, B.Ú.R. Vinnan og kjörin í frystihúsinu. Láglaunakonan: Ragnhildur Vil- hjálmsdóttir, V.R. Að lifa af lægstu laununum. Ragna Bergmann, formaður Verka- kvennafélagsins Framsóknar Sigþrúður Ingimundardóttir, formaður Hjúkrunarfélags islands Er skýringa að leita á launamismun kvenna og karla vegna aðildar að kyn- greindum stéttarfélögum? Sigrún D. Elíasdóttir, formaður Al- þýðusambands Vesturlands Hvað hefur verkaiýöshreyfingin gert til að koma á raunverulegu launa- og kjarajafnrétti kynjanna? — Hvað er til úrbóta? 4. 5. 6. 7.-8. 9. 10. Ester Guðmundsdóttir, formaður Kvenréttindafélags íslands Hvernig er hægt að ná fram iaunajafn- rétti milli kynja á vinnumarkaðinum? 11. Erna Indriðadóttir, fréttamaður Getafjöimiðlargegnt hlutverki I aö uþþ- ræta launamisrétti kynjanna? Kl. 11.45—12.30 Fyrirspurnir og umræður Kl. 12.30- Matarhlé -13.45 Kl. 13.45—15.30 Pallborðsumræður og fyrirspurnir um viöhorf og stööuna í iaunamálum kvenna. Stjórnandi: Jóhanna Sigurðardóttir, alþm. Þátttakendur: 1. Aöalheiður Bjarnfreðsdóttir, form. Starfs- mannafélagsins Sóknar 2. Ásmundur Stefánsson, forseti A.S.Í. 3. Einar Árnason, lögfræðingur V.S.Í. 4. Guöríður Þorsteinsdóttir, fyrrv. framkvstj. B.H.M. og form. Jafnréttisráðs. 5. HrafnhildurSiguröardóttir, fulltrúi., Varafor- maður S.Í.B. 6. Kristján Thorlacius, formaður B.S.R.B. 7. Þorsteinn Geirsson, formaður Samninga- nefndar ríkisins Kl. 15.30- Kaffihlé. Ki. 16.00- Umræður. -16.00 17.30 Ráðstefnuslit um kl. 17.30. Ráóstefnugjald 250 kr. (innifalið m.a. léttur hádegisveröur og kaffiveitingar) Fjölmennum og leitum leiða til að upprceta launamisrétti kynjanna. Samband Alþýðuflokkskvenna Snjóruðningstæki: Framleiðum snjóruðnings- tennur fyrir vörubíla og dráttarvélar. Pantanir þurfa að berastsem fyrst svo hægt verði að afgreiða þær fyrri part vetrar StálIækni sf. Síðumúla 27, sími 30662

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.