Tíminn - 03.06.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminrv
Þriðjudagur 3. júní 1986
Flugvél stefnt til lendingar
á Reykjavíkurflugvelli:
Með drykkjulæti
í talstöðinni
Norræna húsiö:
Verk eftir
Jón Nordal
Á dagskrá Listahátíðar í dag verð-
ur flutningur tónlistar eftir Jón
Nordal í Norræna húsinu og hefst
dagskráin kl. 20.30.
Jón Nordal hefur samið fjölmörg
tónverk sem vakið hafa verðskuld-
aða athygli heima og erlendis. Meðal
þeirra er Choralis sem sellósnill-
ingurinn og hljómsveitarstjórinn
Rostropovich hlutaðist til um að
hann semdi. Var það verk flutt í
tengslum við norrænu menningar-
kynninguna Scandinavia To-day í
Bandaríkjunum 1982.
Jón Nordal hefur lagt mikið af
mörkum til íslensks tónlistarlífs og
er óneitanlega eitt af fremstu tón-
skáldunt þjóðarinnar. Tónleikarnir í
Norræna húsinu, þar sem eingöngu
verða flutt verk eftir Jón, eru haldnir
honum til heiðurs í tilefni sextugsaf-
mælis hans. Kennarar úr Tónlistar-
skólanum í Reykjavík flytja verkin,
en þar hefur Jón verið skólastjóri
um árabil.
Það sést hér á bak sigurvegarans á afmælismóti Landsbankans, en Hannes Hlífar á hér í höggi við Ingvar Ásmundsson.
(Tímamynd Sverrir)
Afmælisskákmót Landsbankans
Hannes Hlífar sigurvegari
Þann 1. júní sl. varhaldiðskákmót
Landsbanka Islands. Þar leiddu sam-
an hesta sína skákmenn sem voru
með bestu skákmönnum íslands á
árunum 1955-1960, yngstu og efni-
legustu skákmenn landsins í dag og
fjórir af fremstu skákmönnum
Landsbankans. Það var hinn efnilegi
skákmaður Hannes Hlífar Stefáns-
son sem sigraði á mótinu með 9 Vi
vinning, en Guðmundur Pálmason
varð annar með 9 vinninga.
Heildarverðlaun á mótinu voru
100.000 kr. og afhenti Lúðvík Jós-
epsson sigurlaunin í mótslok, fyrir
hönd bankaráðs Landsbanka
íslands.
Lögreglan færöi flugmann og farþega
til yfirheyrslu er flugvélin lenti
Flugvélinni TF-POP var gert að
lenda á Reykjavíkurflugvelli á laug-
ardaginn eftir að einn farþega henn-
ar hafði verið með drykkjulæti í
talstöðinni og truflað með því flug-
umferðarstjórn.
Þessi farþegi er einn af eigendum
flugvélarinnar og fékk hann þá hug-
mynd á laugardaginn að fylgjast
með kosningum á Akureyri. Þar
sem hann var ekki í ástandi til þess
að fljúga fékk hann kunningja sinn
til að skutla sér á vélinni. En þegar
uppí loftið kom varð maðurinn full
heimakær og vildi sjá um talstöðvar-
sambandið. Þetta áttu flugumferðar-
stjóra erfitt með að líða og endaði
það með þvf að flugvélinni var gert
að lenda.
Eftir að vélin hafði lent frekar
harkalega á flugbrautinni og flug-
manni verið vísað á flugskýli 1
þráuðust mennirnir í vélinni við og
vildu fara í annað skýli. Þá brá einn
af starfsmönnum flugmálastjórnar
sér upp í jeppa og ók fyrir vélin og
tókst að stöðva hana og leiða hana á
rétta leið. Lögreglan kom á flugvöll-
inn og hafði með sér flugmann og
farþega niður á stöð og flutti þá
síðan á sjúkrahús svo taka mætti af
þeim blóðprufu.
Flugmaðurinn reyndist allsgáður
en málið var sent til rannsóknarlög-
reglunnar og voru mennirnir yfir-
heyrðir. Rannsóknarlögreglan hefur
sent málið til umsagnar til loftferða-
eftirlitsins. ~gse
Kjarvalsstaöir:
Sundurleit
Reykjavík
Sýningin „Reykjavík í myndlist"
er ekki mjög góð sýning. Til þess er
hún alltof sundurleit og verkin of
misjöfn að gæðum. Hún er því
trauðla áhugaverð, og þó að á annað
hundrað verk hafi verið til að velja
úr, á ég bágt með að trúa því að hún
gefi nokkuð þversnið af því hvernig
íslenskir listamenn líta borgina.
En þó að sýningin sé að þessu leyti
misheppnuð, er auðvitað ekki svo
að ekki megi finna þar nokkuð til að
gleðja augað. Af öllum þeim mál-
verkum, þar sem Esju bregður fyrir
eru tvær sem skera sig úr hópnum.
N.A.T.O. eftir Hallgrím Helgason,
þar sem köld birta ríkir í myrkrinu
og Reykjavík, eftir Guðrúnu
Tryggvadóttur. Reykjavík er ólík
fyrri myndum Guðrúnar sem ég hef
séð og eru í henni stílbrigði í ætt við
fyrrnefndan Hallgrím og Luisu
Matthiasdóttur, auk þess sem surr-
ealiskum fótleggjum er brugðið þvert
yfir myndina. Myndir Ágústs Peter-
sen eru auðvitað jafn ásjálegar þó
þær deili plássi með sér lakari mynd-
um og sama gildir um myndir Daða
Guðbjörnssonar.
Hápunkt sýningarinnar er þó
sennilega að finna í tíu tréskúlptúr-
um Sæmundar Valdimarssonar, er
bera heitið f Laugardalslundinum.
Sem í flestum verkum naivista er
í Laugardalslundinum I.-X.
(Tímamynd Pétur)
innileikinn áberandi, en jafnframt
eru þessir skúlptúrar gæddir sér-
kennilegri klassískri fágun.
Það má kannski segja um þessa
sýningu að það hafi verið margir
tilkallaðir, en fáir frambærilegir gef-
ið sig fram og því ekki margir
útvaldir.
Er hugsanlegt að yrkisefnið,
Reykjavík, hafi ekki þótt nægilega
áhugavert, eða var það eitthvað
annað sem fældi frá? phh
Jón Nordal, tónskáld og skólastjóri
Umferðaróhapp í Dýrafirði:
Missti stjórn á bílnum
og endaði niðrí fjöru
Bíllinn mikið skemmdur en ökumaðurinn
minna meiddur en á horfðist
Ungur maður missti stjórn á bíl
sínum við Nauteyrarhlíð í Dýrafirði
í gærdag með þeim afleiðingum að
bfllinn fór útaf og rann niður hlíðina
og endaði í flæðarmálinu. Bíllinn,
sem er að Subaru-gerð, skemmdist
töluvert og ökumaðurinn var fluttur
með sjúkrabifreið til fsafjarðar þar
sem gert var að meiðslum hans.
Hann lá á sjúkrahúsinu í nótt en
mun að öllum líkindum fá að fara
heim í dag.
Maðurinn var á leið inn eftir
firðinum er hann missti stjórn á
bílnum og fór of utarlega í lausamöl-
ina. Þar rann bíllinn til og útaf
veginum og rann niður eftir grasivax-
inni brekkunni allt niður í fjöru þar
sem hann maraði í hálfu kafi í
flæðarmálinu. Greiðlega tókst að ná
manninum upp og hann reyndist
minna slasaður en á horfðist. -gse
Lítil endurnýjun
í Reykjavík
Mikil endurnýjun á sér stað í
sveitarstjórnum á landinu í kjölfar
kosninganna á laugardaginn. Það á
þó ekki við um Reykjavík. Aðeins
tveir fulltrúar sem aldrei hafa setið
borgarstjórnarfund náðu kjöri. Það
eru þau Árni Sigfússon (S) og Kristín
Á. Ólafsdóttir (Abl).
Aðrir borgarfulltrúar, sem nú
koma inn sem nýir aðalmenn hafa
setið sem varamenn í borgarstjórn
Reykjavíkur. Það er þau Jóna Gróa
Sigurðardóttir (S), Sigrún Magnús-
dóttir (F) og Bjarni Magnússon (A).
Þrír bílar í árekstri:
Ókí
veg fyrir
bíl
Missti stjórn á
bílnum og endaði
á Ijósastaur
Ökumaður Volgu-bifreiðar ók
í veg fyrir Lödu-bifreið er hann
hugðist beygja inn Hofsvallagötu
frá Hringbraut í gær. Ökumaður
Lödu-bifreiðarinnar var á leið
vestur eftir Hringbraut og ók inn
í hliðina á Volgunni með þeim
afleiðingum að ökumaður hennar
missti stjórn á bílnum og enda-
sentist upp Hofsvallagötu þar til
hún stöðvaðist á ljósastaur.
Ljósastaurinn beyglaðist og það
hrundi úr honum yfir Volvo-
bifreið er var á leið suður Hofs-
vallagötu. Enginn meiddist við
þetta en bílarnir eru töluvert
skemmdir og er Volgan sýnilega
verst farin og allt að því ónýt.
-gse
Harður árekstur á horni
Skúlagötu og Barónsstígs:
Tveirökumenn
á slysadeild
Bifreiðarnar mikið skemmdar
Harður árekstur varð á horni
Barónsstígs og Skúlagötu um há-
degisbilið í gær. Eins og flestir
kannast við er mikil umferð um
Skúlagötu á þessum tíma og getur
verið erfitt að komast frá Skugga-
hverfinu og yfir Skúlagötu. Öku-
maður á japönskum fólksbíl reyndi
í gær að smeygja sér frá Barónsstíg
yfir Skúlagötu á leið niður í bæ. En
hann virðist hafa misreiknað fjai
lægð á milli bíla því annar japansl
ur bíll á leið austur eftir Skúlagöt
skall á honum. Ökumenn beggj
bifreiðanna voru fluttir miki
skornir á slysadeild, en þeir mun
báðir hafa sloppið við alvarle
beinbrot. Báðar bifreiðarnar er
mikið skemmdar. -gs(