Tíminn - 14.08.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 14.08.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn Konur sýna myndlist að sumri til í Reykjavík Föstudagur 14. ágúst 1987 Félag íslenskra myndlistamanna: BIRNA SÝNIR í GARDASTRÆTI6 í FÍM- salnum, Garðastræti 6 opnar í dag klukkan 17:00 myndlistasýning Birnu Kristj- ánsdóttur. Birna er fædd í Reykjavík þann 11. nóvember 1956. Eftir að hafa lokið stúdcnts- prófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1976 fékk Birna styrk til frönskunáms og dvaldi í Frakklandi um nokkurra mánaða skeið. Hún lagði því næst stund á frönsku við Háskóla íslands en komst, að eigin sögn, að raun um að hún væri ekki búin að fá nóg af flakki og hélt því aftur til Frakklands, þar sem hún dvaldi í eitt ár við nám. Birna kom því næst og lauk hjúkrunarnámi frá Háskóla íslands en hélt svo út til Þýskalands þar sem hún segir að „alvarlegt galleríhopp“ sitt hafi byrjað. Árið 1982 hélt Birna til Bandaríkjanna þar sem hún hóf faglegt myndlistarnám sitt. Hún lauk BFA - gráðu(Bachelor of Fine Arts) frá listadeild Háskólans í lowa vorið 1986 með textíllist sem aðalgrein og hefur síðan lagt stund á framhaldsnám í myndlist í Kaliforníu. Sýningin í FÍM - salnum er fyrsta einkasýning Birnu hér á landi, en hún hefur jafnframt tekið þátt í samsýningum í Bandaríkjunum. Birna telur myndsköpun sína til textíllistar, þótt hún sé komin töluvert langt frá þeim greinum eða því handverki sem lengst af hefur þótt liggja til grundvallar tcxtíl. Margt er í vcrkunum sem virðist gcra þau að „málverkum", en blönduð tækni þcirra vísar þó út fyrir þann ramma. Auk þess að mála, klippir Birna, litar og límir efni sem mynda lagskipta fleti. Þannig er leitast við að skapa litum rúm en jafnframt að láta það efni sem unnið er á vera meira en flöt sem hverfur undir litum verksins. Tólf vcrk eru á sýningunni, öll unnin á síðustu tólf mánuöum. Þau eru til sölu. Sýningin er opin frá kl. 14:00 -19:00 alla daga og aðgangur er ókeypis. Birna Kristjánsdóttir við eitt verka sinna. Tímamynd: Pjelur Ragna í góðra vina hópi í Sundlaugunum með citt verka sinna. Ásmundarsalur: 0LÍU ■ 0G VATNSUTA- MYNDIR RÖGNU BJARGAR í Ásmundarsal stendur yfir sýning Rögnu Bjargar Sigrúnardóttur, á olíu- og vatnslita- myndum. Ragna Björg er fædd í Reykjavík þann 3. júlí 1964. Tíu ára gömul sótti Ragna sitt fyrsta námskeið í Myndlista- og Handíða- skólanum. þar sem hún eyddi mörgum stund- um næstu árin. Eftir að hafa lokið stúdcnts- prófi í Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1983 hélt hún til Bandaríkjanna þar sem hún hóf leiklistarnám við Lee Strasberg skólann í New York. Þar stundaði hún nám í hálft ár en innritaðist því næst í New York University þar sem hún lagði stund á leiklist og myndlist í hálft annað ár. Síðasta haust flutti Ragna til Los Angeles og hóf leiklistarnám í Institute of the Art, hinum virta skóla sem Walt Disney stofnaði og rak á sínum tíma. Þar hyggst Ragna dvelja næstu tvö árin, eða þar til hún hefur lokið námi. Sýningin í Ásmundarsal er þriðja einkasýn- ing Rögnu. Fyrsta sýningin var haldin á Vík í Mýrdal og önnur sýning hennar var í Ásmund- arsal fyrir tveimur árum. Jafnframt hefur hún tekið þátt t' einni samsýningu. Á sýningunni í Ásmundarsal eru 20 myndir, bæði olíu- og vatnslitamyndir. Að sögn Rögnu er myndefnið mjög sótt í kvikntyndir og til Los Ageles, þar sem kvikntyndaiðnaðurinn er svo stór þáttur í lífi fólks. Myndirnar á sýningunni eru allar til sölu. Hún er opin virka daga frá klukkan 16:00 - 22:00 og um helgar frá kl. 14:00 - 22:00. Sýningin stendur til 23. ágúst n.k. Margrét horfir ásökunaraugum á þann sem steytir hnefana framan í hana. Tímamynd: brf.in Kjarvalsstaöir: SÝNING Á LISTA- VERKUM MARGRÉTAR ELÍASDÓTTUR Næstkomandi laugardag hefst á Kjarvals- stöðum sýning á verkum listakonunnar Mar- grétar Elíasdóttur. Hún hóf myndlistarnám sitt við forskóla Myndlista og handíðaskólans í Reykjavík árin 1967 - 1969, en starfaði svo eitt ár sem flugfreyja í bið eftir að keramikdeild skólans yrði sett á laggirnar og útskrifaðist þaðan árið 1971. Síðan vann hún hjá fyrirtæk- inu Funi við rennslu einn vetur og fór því næst í tveggja ára framhaldsnám í Konstfackskolan í Stokkhólmi við hönnunardeild í keramik og gleri. Eftir burtfararpróf þaðan tók hún þátt í nokkrum samsýningum hérlendis, þá með glermuni og lágmyndir í leir, m.a. í Norræna húsinu og Gallerí Sólon Islandus. Margrét hefur haldið eina einkasýningu hér á landi áður, í Norræna húsinu fyrir 10 árum. Þar sýndi hún skúlptúr og lágmyndir í steinleir ásamt textílmyndum. Eftir það dvaldist Mar- grét erlendis og ferðaðist um heiminn, auk þess sem hún vann við fatahönnun og innrétt- ingar í Stokkhólmi þar sem hún er búsett og kenndi módelteikningu og skúlptúr við lista- skóla. í Stokkhlómi hefur Margrét haldið eina einkasýningu og tekið þátt í ýmiskonar sam- sýningum, nú síðast í fyrrasumar í Kulturhus- et. Verkin á sýningunni á Kjarvalsstöðum eru máluð á tæplega tveggja ára tímabili, er listakonan helgaði sig eingöngu að því að mála. Verkin á sýningunni eru blönduð tækni. Sýningin verður opin alla daga vikunnar frá kl. 14:00 - 22:00 til 30.ágúst n.k. Gallerí Borg: JAPÖNSK LISTAKONA SÝNIR PAPPÍRSVERK Listakonan Taeko Mori við eitt verka sinna. f Gallerí Borg við Austurvöll stendur yfir sýning á pappírsverkum Taeko Mori. Taeko er fædd þann 12. júní árið 1952 í borginni Shizuoka í samnefndu héraði í Japan. Hún hóf listnám í heimaborg sinrii á menntaskólaárun- um. þá undir handleiðslu fyrsta kennara síns M.Okamura. eins af fremstu listamönnum héraðsins. Átján ára gömul fluttist Taekó til Tokyo og innritaðist í Suibata - Bijutsugakuin listaskólann þar sem hún stundaði nám næstu tvö árin. Því næst stundaði hún nám við Nýlistaskólann í Tokyo en hélt árið 1973 til Frakklands þar sem hún stundaði nám við Ecole National Superieur des Beaux Arts í París næstu fimm árin. Eftir að hafa útskrifast þaðan vann Taekó mest að vefnaði og naut þá handleiðslu kennara síns, Gion Silvestri. Árið 1981 snéri hún aftur til heimalands síns þar sem hún hefur ofið, málað og gert pappírsverk sín til þessa dags. Taeko er gift Halldóri Stefánssyni, sem kennir mannfræði við Osaka- Gakuin háskólann í Osaka. Sýningin í Gallerí Borg er sjöunda einkasýn- ing listakonunnar en hún hefur jafnframt tekið þátt í fjölda samsýninga í Frakklandi og Japan.Sýningin er opin virka daga frá kl. 10:00 - 18:00 og frá kl. 14:00 - 18:00 um helgar. Henni lýkur 22. ágúst. IDS IDS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.