Tíminn - 25.09.1987, Blaðsíða 2

Tíminn - 25.09.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn Föstudagur 25. september 1987 Jón Baldvin segir Leifsstöð frysta á lánsfjáráætlun: Lántökur ríkissjóðs skornar niður um % Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra sagði í viðtali við Tímann í gær að mjög yrði dregið úr lántökum ríkissjóðs, til að jafna halla fjárlaga. „Við keyrum mjög niður lántökur ríkissjóðs sjálfs. Þær eru núna u.þ.b. þriðjungur þess sem var í áætlunum yfirstand- andi árs,“ sagði Jón Baldvin. Sagði Jón þetta skýrast aðallega af einum þætti, hætt verði við allar frekari framkvæmdir við flugstöð- ina í Keflavík. Það kosti ríkissjóð hins vegar um 820 milljónir króna í erlendum lánum á næsta ári, að fjármagna þær framkvæmdir sem þegar hefur verið lokið við á þessu ári. „Að öðru leyti byggir þessi áætlun á því að frekari fram- kvæmdir við þessa stöð verði stöðv- aðar. Húsið er nothæft í núverandi ástandi og við eigum ekki aur fyrir meiru,“ sagði Jón. Að sögn Jóns þýðir þessi láns- fjáráætlun að lántökur ríkisjóðs eru minni en afborganir af fyrri lánum, þannig að „þar er um að ræða skuldalækkun". Erlendum lántökum verði haldið í skefjum þannig að þær minnki að raungildi, en það þýði um leið aukið álag á innlendan lánamark- að. Það sé áhyggjuefni að aukin samkeppni opinbera geirans og atvinnulifsins leiði til hækkandi vaxta, en það sé hins vegar reynt að taka mið af því, eftir því sem tök séu á. Aðspurður hvort útgáfa ríkis- skuldabréfa yrði aukin, sagði Jón Baldvin að þar korni upp syndir fortíðarinnar. „Áætlaðar innlausn- ir eldri spariskírteina á næsta ári eru miklu mun meiri en í ár og er áætlunartalan um 2,7 milljarðar króna. Það er gert ráð fyrir spari- skírteinaútgáfu til að dekka þann útgjaldsauka," sagði Jón Baldvin. „En ef menn eru að spyrja um aðrar heildarstærðir, þ.e.a.s. hlut- fallið milli skulda í árslok 1988 samkvæmt þessari áætlun og svo landsframleiðslu, þá lækkar það hlutfall verulega eða úr 47% niður í 35,5%,“ sagði Jón Baldvin Hann- ibalsson. -ph Ráðstefna um illa meðferð á börnum 111 meðferð og vanræksla á börn- um verður efni samnorrænnar ráð- stefnu sem haldin er þessa dagana í Sandefjord í Noregi. Fjallað verður um hvort lög landanna verndi börnin, hvort samfélagið stuðli að illri meðferð, hvernig hægt sé að skipuleggja forvarnir og hvernig hægt er að standa að meðferð á börnum sem verða fyrir illri meðferð eða eru vanrækt. Um 60 aðilar halda erindi á ráðstefnunni um rannsóknir sínar og reynslu af svona málum. Að ráðstefnunni stendur starfs- hópur í samvinnu við barnageð- verndarsamtökin á Norðurlöndun- um. Norska félagsmálaráðuneytið hcfur einnig stutt þessa þriðju sam- norrænu ráðstefu sem haldin er um þessi mál. Ráðstefnur þessar eru haldnar annað hvert ár, hinar tvær hafa verið haldnar í Danmörku og Svíþjóð. Þátttakendur að þessu sinni eru 430, aðallega fagfólk sem hefur unnið að fyrirbyggjandi aðgerðum, meðferð eða rannsóknum á þessu sviði. Það eru því heilsugæsluhjúkrunar- fræðingar, uppeldisfræðingar, fél- agsráðgjafar, læknar, sálfræðingar, kennarar, fóstrur, þroskaþjálfar, lögfræðingar, lögreglan, blaðamenn og stjórnmálamenn. ABS Skákþing íslands á Akureyri Nú stendur yfir á Akureyri Skákþing íslands í landsliðsflokki hið 73. í röðinni. Fjórtán keppend- ur taka þátt í mótinu og hafa þeir allir hlotið yfir 2000 Elo stig og ku þetta vera sterkasta skákmót sem haldið hefur verið á Akureyri. Það er skákfélag Akureyrar sem hefur veg og vanda af framkvæmd móts- ins og er það að hluta til haldið af tilefni 125 ára afmælis Akureyrar- bæjar og styrkir Akureyrarbær mótshaldið. Reyndar virðist komin ákveðin hefð á að halda Islandsmót á Akureyri á 30 ára fresti, það var fyrst gert 1927 þá 1957 og nú loks 1987. Kostnaður við mótið er áætlaður um 800 þúsund krónur og þar af nemur verðlaunafé 250 þúsund krónum og mun Akureyrarbær gefa verðlaunaféð. Staðan í mótinu í gær að sex umferðum loknum var sú að Margeir Pétursson var efstur með 5 vinninga, Helgi Ólafsson og Davíð Ólafsson með 4 !ó vinning og þá Karl Þorsteins og Þröstur Þórhallson með 3 Vi vinning. Sjö- unda umferð var tefld í gærkvöldi, en skákum var ekki lokið þegar Tíminn fór í prentun. Mótinu lýkur föstudaginn 2. okt- óber. Þess má geta að laugardaginn 27. september er frí hjá skák- mönnunum. Þá kemur Jóhann Hjartarson og teflir fjöltefli í Al- þýðuhúsinu klukkan 13.30. Þorsteinn Pálsson í Berlín og Briissel Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra situr þessa dagana ráðstefnu alþjóðlegra samtaka lýðræðislegra hægri flokka sem haldin er í Berlín. Þorsteini var boðið til ráðstefnunnar sem áheyrnarfulltrúi. Þorsteinn er ekki væntanlegur til landsins fyrr en á miðvikudag í næstu viku, því að ráðstefnunni í Berlín lokinni, heimsækir hann aðal- stöðvar Atlantshafsbandalagsins í Brússel og mun þar eiga viðræður við aðalframkvæmdastjóra Nato. Aðeins einn ráðherra Sjálfstæðis- flokksins, Birgir ísleifur Gunnars- son, sinnir nú öllum ráðherraem- bættum flokksins. Friðrik Sophus- son iðnaðarráðherra verður við- staddur útför Einars Gerhardsen fyrrverandi forsætisráðherra Noregs í dag og Matthías Á. Mathiesen er á sjúkrahúsi um þessar mundir. Starfsmenn Gallerís Borgar að raða gömlum kortum og myndum frá íslandi í uppboðspakka, Listaverkauppboð í Gallerí Borg: Skrautleg mannamót og góð stemmning Olíumálverk af Hvítá og Hafnarfjalli frá 1932 eftir Gísla Jónsson. Gísli var fyrsti maðurínn sem Kjarval sá vinna með liti, en á uppboðinu verða fimm „Það eru nokkur eintök af þessari þjóð sem bjóða þvílíkar formúur í verk erlendis, sambærileg þeim sem hérna verða boðin upp, að það tekur engu tali. Nú síðast var slíkt uppboð í Danmörku. Þetta uppboð gæti orðið prófsteinn. Það verður for- vitnilegt að vita hvort þessi eintök eru til í að borga hér heima það sama og úti.“ Þetta voru orð Úlfars Þor- móðssonar þegar Tímamenn litu inn í Gallerí Borg að berja þau verk augum sem boðin verða þar upp nú á sunnudag. Þetta uppboð er fyrsta uppboðið sem haldið er eftir að hið háa Alþingi samþykkti að fella niður söluskatt af málverkum og listmun- um og setti þess í stað lög um að 10% gjald bættist ofan á uppboðsverðið. Gjald þetta mun renna ýmist til handhafa höfundarréttar eða í starfslaunasjóð myndlistarmanna. Úlfar sagði að ef bærilega tækist til með þetta uppboð yrði það til þess að uppboð yrðu haldin reglulega á sex til átta vikna fresti í framtíðinni. Afnám söluskatts gerði það að verk- um að seljendur fengju meira fyrir sinn snúð og kaupendur meira fyrir peningana. Feimnum listunnendum sem ekki vilja láta uppi að þeir bjóði í listaverkin er gert kleift að bjóða í einstök verk fyrir sýninguna. Þá geta þeir haft samband við aðstandendur Gallerís Borgar sem birta þá nafn- laus boð þegar að uppboði kemur. „Þetta eru skrautleg mannamót verk eftir Kjarval. og góð stemmning. Það eru oft þrjú til fjögurhundruð manns á uppboð- unum. Menn ganga oft á tíðum út af uppboðum með kúnst á alla veggi í húsi sínu og það fyrir lítinn pening. Jafnvel þó veggpláss sé gott.“ Þetta hafði Úlfar að segja um listaverk- auppboðin almennt. Uppboðið á sunnudag er á margan hátt merkilegt. Ekki aðeins sökum afnáms söluskatts, heldur eru tutt- ugu uppboðsnúmer þar sem finna má gamlar koparstungur af kortum og myndum frá íslandi. Kortin og myndirnar hafa ýmist birst í erlend- um kortabókum, tímaritum eða dag- blöðum frá 1522 til 1890 og eru hinar merkustu heimildir um búnaðar- háttu og fleira frá íslandi þátfðarinn- ar. Þá er að finna ein fimm verk eftir meistara Kjarval, þrjár myndir eftir Svavar Guðnason, æskuverk eftir Þorvald Skúlason, Þingvallamynd eftir Blöndal, textílverk eftir Bar- böru Árnason og olíumálverk eftir Jóhann Briem og Jón Stefánsson auk gifsafsteypu af „Fæðingu sálar“ eftir Einar Jónsson. Þá eru verk ýmissa listamanna sem nú ber mest á í myndlist og skúlptúr. -HM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.