Tíminn - 03.01.1989, Blaðsíða 11

Tíminn - 03.01.1989, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 3. janúar 1989 Tíminn 11 II..IIHIIII.III iÞRfVrTiR ....................... aiiiiiiiiiiiriiiiiii.. iiiiiiiUMiiiir IIIM^ Enska knattspyrnan: Arsenal á toppinn - Góöur sigur Manchester United á Liverpool Arsenal er nú í efsta sæti ensku 1. deildarinnar í knattspyrnu eftir 3-0 sigur á Astun Villa um helgina. Norwich, sem verið hefur á toppnum er heldur farið að lækka flugið. Liðið gerði markalaust jafntefli gegn Middlesbrough um helgina. Bæði lið hafa nú 37 stig, en Arsenal á leik til góða. Leikur helgarinnar var samt leikur Manchester United og Liverpool á Old Trafford. Eftir markalausan fyrri hálfleik, voru skoruð 4 mörk á 7 mín. kafla í síðari hálfleik og heldur fór að hitna í kolunum. Að viðstöddum 45 þúsund áhorfendum kom John Barnes gestunum yfir á 70. mín. en mínútu síðar svaraði Brian McClair fyrir United. Mark Hughes kom Manchester liðinu yfir með marki af 10 m færi 4 mín. síðar. Síðasta markið í þessari súpu kom á 77. mín. þegar Russel Beardsmore gerði þriðja mark United. Áhang- endur Manchester United geta nú litið björtum augum á nýja árið, því ekki er öll nótt úti enn, liðið er 10 stigum á eftir Arsenal. Manchester United varð síðast Englandsmeistari 1967. Arsenal Iék sér að Aston Villa á gamlársdag, eins og sjónvarpsáhorf- endur hérlendis sáu. Mörk liðsins gerðu þeir Alan Smith, David Ro- castle og Perry Groves. Paul Walsh kom Tottenham yfir á móti Newcastle, en Chris Waddle skoraði síðara mark liðsins. Guðni Bergsson lék með Tottenham í þess- um leik og stóð vel fyrir sínu. Sigurður Jónsson og félagar urðu að sætta sig við 0-3 ósigur gegn Nottingham Forest á heimavelli. Það voru þeir Tommy Gaynor, Neil Webb og Steve Hodge sem gerðu mörk Forest í leiknum. Derby County tapaði óvænt fyrir Millwall á heimavelli og þokast nú niður stigatöfluna eftir góðan sprett að undanförnu. Pað var Kevin Sheedy sem gerði sigurmark Millw- all í leiknum. Úrslit í 1. deild: Aston Villa-Arsenal .......0-3 Charlton-West Ham .........0-0 Derby-Millwall ............O-l Everton-Coventry...........3-1 Norwich-Middlesbrough .... 0-0 Sheff.Wed.-Nott.Forest.....0-3 Southampton-Q.P.R..........1-4 Tottenham-Newcastle........2-0 Wimbledon-Luton............4-0 Man.lftd.-Liverpool........3-1 Úrslit í 2. deild Brighton-Birmingham........4-0 Chelsea-West.Brom..........1-1 Hull-lpswich...............1-1 Leeds-Plymouth.............2-0 Leicester-Blackbum.........4-0 Shrewsbury-Bamsley.........2-3 Stoke-Oxford ..............1-0 Sunderland-Portsmouth .... 4-0 Swindon-Man.City ..........1-2 Walsall-Bradford ..........0-1 Watford-Boumemouth ........1-0 Oldham-C.Palace............2-3 Staðan í 1. deild: Arsenal......... 18 11 4 3 40-20 37 Norwich......... 19 10 7 2 28-19 37 Millwall........ 18 8 6 4 29-21 30 25-17 30 5 23-16 28 4 25-17 27 6 22-20 27 6 20-14 26 5 32-31 26 6 7 6 30-28 25 4 23-23 25 8 22-19 23 6 28-30 23 8 21-26 22 9 23-31 22 7 15-21 21 7 17-22 20 3 8 8 19-31 17 4 5 10 16-34 17 3 5 11 15-33 14 Staðan í 2. deild: Chelsea 23 11 8 4 44-24 41 West Brom. ... .. 23 11 8 4 33-21 41 Watford .. 23 12 5 6 35-22 41 Man.City .. 23 11 7 5 33-23 40 Blackburn .... .. 23 12 3 8 36-32 39 Bamsley .. 23 10 6 7 32-29 36 Portsmouth ... .. 23 9 8 6 34-29 35 Sunderland ... .. 23 8 10 5 34-26 34 Bournemouth . ..23 10 4 9 26-25 34 Stoke .. 23 9 7 7 26-33 34 Leeds .. 23 8 9 6 23-22 33 C. Palace .. 22 8 8 6 33-30 32 Leicester .. 23 8 8 7 30-31 32 Ipswich .. 23 9 4 10 30-30 31 Swindon .. 22 7 9 6 30-30 30 Plymouth .... .. 23 8 5 10 30-36 29 Bradford .. 23 6 10 7 24-28 28 Oxford .. 23 7 6 10 36-34 27 Hull .. 23 6 8 9 27-35 26 Brighton .. 23 7 3 13 32-39 24 Oldham .. 23 5 8 10 36-40 23 Shrewsbury .. .. 23 4 10 9 20-31 22 Birmingham .. .. 23 3 6 14 16-46 15 Walsall .. 23 2 3 13 19-34 14 BL Körfuknattleikur: Everton....... 18 8 6 4 Liverpool.......19 7 7 Man.utd.........19 6 9 Coventry........19 7 6 Derby...........18 7 5 Southamton .... 19 6 8 Tottenham ......19 Nott.Forest....19 5 10 QPR.............19 6 5 Aston Villa....19 5 8 Wimbleton ......18 6 4 Middlesbrough .. 19 6 4 Sheff.Wed......18 5 6 Luton...........19 4 8 Charlton .......19 Newcastle......19 West Ham.......19 Leikið gegn ísraelsku bikarmeisturunum í kvöld íslenska landsliðið í körfuknatt- leik, sem nýlega vann sigur á Smá- þjóðaleikunum á Möltu, leikur í kvöld gegn Hapoel Galil Elyon, ísraelsku bikarmeisturunum. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu í Grindavík og hefst kl.20.30. Annað kvöld kl.20 leika ísraelarn- ir gegn ÍBK í Keflavík, en sá leikur er til að afla fjár til nýrrar íþrótta- hússbyggingar í bænum. Síðasti leik- ur fsraelanna verður á miðvikudags- kvöld í Laugardalshöll kl.20.30 og þá á ný gegn landsliðinu. Lið Hapoel er án efa eitt af bestu félagsliðum Evrópu og því kærkom- ið tækifæri fyrir áhorfendur að sjá körfuknattleik eins og hann gerist bestur í Evrópu. Þess má geta að íslenska landsliðið hefur ekki leikið hér á landi í langan tíma og nú stjórnar nýr þjálfari, dr. Laszlo Nemeth, liðinu í fyrsta sinn hérlend- is. Sama lið verður í landsliðshópn- um nú og í leikjunum á Möltu að því undanskildu að Falur Harðarson ÍBK og Jóhannes Kristbjörnsson KR eru komnir í hópinn. Að sögn Laszlo Nemeth landsliðs- þjálfara munu þeir Teitur Örlygs- son, Helgi Rafnsson úr Njarðvík og Pálmar Sigurðsson úr Haukum verða valdir til æfinga með liðinu eftir leikina við ísraelska liðið. Þá mun Guðni Guðnason einnig hefja æfingar að nýju með landsliðinu, en hann er nú á heimleið frá Bandaríkj- unum. Því miður getur ívar Webster KR ekki tekið þátt í verkefnum lands- liðsins á næstunni vegna veikinda, en að sögn Laszlo Nemeths þá mun ívar hvorki leika með landsliðinu né KR fyrr en hann er að fullu orðinn góður af veikindum sínum. Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær það verður, en víst er að skarð er fyrir skildi í liði KR, ef fvars nýtur ekki við. BL kvenna í blaki, Kína, unnu góðan sigur á Perú á alþjóðlegu blakmóti í Englandi á Nýársdag. Kína, sem vann bronsverðlaun á ÓL í Seoul, vann Perú 3-0, 15-6, 16-14 og 15-5. Perú vann silfrið í Seoul, en þar sigruðu sem kunnugt er sovésku stúlkumar. Pólland vann 3-0 sigur á Englandi, en tapaði síðan fyrir Tékkóslóvakíu 3-1. Buenos Aires. Carlos Bilar- do þjálfari argentínska landsliðsins í knattspyrnu í gær að árið 1989 yrði betra en árið í fyrra, en það var ár vonbrigðanna fyrir argcntínska knattspyrnuáhugamenn. Á næsta ári, 1990, þá verður Heimsmeistara- keppnin haldin á Ítalíu og þar vonast Argentínumenn til þess að geta varið heimsmeistaratitil sinn. Kolbeinn Pálsson formaður KKÍ og Ámi Árnason forstjóri Austurbakka hf. gengu í gær frá samningi við Austurbakka hf, en fyrirtækið hefur styrkt KKÍ í 5 ár og gefið búninga á karlalandsliðið. Timam)T.d Ámi Bjama Brian Robson fyririiði Manchester United leiddi sína menn til sigurs um helgina. naesta faldur laugatdað Vinningstölurnar 30. desember 1988 Heildarvinningsupphæö: Kr. 4.016.941,- Þar sem enginn var með 5 réttar tölur á laugardaginn var, færist 1. vinningur sem var kr. 5.740.695.- yfir á 1. vinning á laugardaginn kemur. BÓNUSTALA + fjórar tölur réttar kr. 595.194,- skiptast á 6 vinningshafa, kr. 99.199,- á mann. Fjórar tölur réttar kr. 1.026.571,- skiptast á 203 vinningshafa, kr. 5.057,- á mann. Þrjár tölur réttar kr. 2.395.176,- skiptast á 6.456 vinningshafa, kr. 371,- á mann. Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt. Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.