Tíminn - 09.06.1990, Blaðsíða 9
Laugardagur 9. júní 1990
Tíminn 17
Verk eftir fulltrúa íslands, Helga Þ. Fríðjónsson.
Helgi Friðjóiisson
sýnir í Feneyjum
27. maí síðastliðin var opnaður 44.
myndlistartvíæringurinn i Feneyj-
um. Hveiju sinni er ein aðalsýning
á vegum tvíæringsins, auk sýninga
í sérstökum þjóðarsýningarskálum.
Að þessu sinni bar aðalsýningin yf-
irskriftina „Ambiant Berlin", og er
það úttekt á þeirri list sem hefúr
verið að geijast í Berlín-vestur og
austur- undanfarin ár. Þá voru
nokkrar merkar sýningar í tengsl-
um við Feneyjartvíæringinn, þó svo
að þær væru utan svæðisins.
Inni á sýningarsvæðinu eru 45
þjóðir með sérstaka sýningarskála.
Fulltrúi íslendinga að þessu sinni
er Helgi Þ. Friðjónsson. Sýning
Helga vakti geysimikla athygli og
seldust öll verk hans á fýrstu dög-
um sýningarinnar, þá hefúr hann
fengið tilboð um að sýna í Torino,
Milano og fleiri borgum.
Gert er ráð fyrir að 300.000-
400.000 manns sæki þessa stór-
brotnu listsýningu.
Yfirlitssýning á höggmyndalist
Að Kjarvalsstöðum stendur yfir í
öllu húsinu yfirlitssýning á íslenskri
höggmyndalist fram til ársins 1950.
A sýningunni eru verk eftir: Einar
Jónsson, Asmund Sveinsson, Sigur-
jón Ólafsson, Gunnfríði Jónsdóttur,
Guðmund frá Miðdal, Rikharð Jóns-
son, Magnús Á. Ámason, Nínu Sæ-
mundsson og Martein Guðmunds-
son.
Þetta er fyrsta yfirlitssýning á ís-
lenskum höggmyndum frá þessu
tímabili.
Hver listamannanna á 4-5 verk á
sýningunni, styttur eða lágmyndir.
Állir eiga ofangreindir listamenn það
sameiginlegt að hafa stundað ein-
hvers konar nám erlendis. Þeir
sökktu sér í ólíka menningarstrauma
og snéru aftur heim með afar ólíkar
hugmyndir um lífið og listina. Má
fúllyrða að allir þessir listamenn hafí,
hver á sinn hátt, reynt að túlka is-
lenskan veruleika og íslenskar fyrir-
myndir.
Sýningin er ffamlag Kjarvalsstaða
til Listahátíðar.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega frá
kl. 11:00-18:00 og er veitingabúðin
opin á sama tíma.
Um 100 nýir STORNO farsimar
hafa selst n 8 vihum
- það köllum við
góð meðmœli
Vegna mikilla vinsælda nýju STORNO 440 farsímanna og
hagstæðra innkaupa getum við boðið STORNO 440
farsíma í bíl á aðeins 83.788 kr. staðgreitt m. vsk og
STORNO 440 bíla- og burðatæki á aðeins 99.748 kr.
staðgreitt m. vsk.
> ^ Fyrstu sendingar seldust upp, en vegna
— ««■* ** ^ frábærra viðtaka tókst okkur að fá enn eina
r'íS'.'Sfe'
sendinguna á þessu góða verði. Símarnir
eru tilbúnir til ísetningar og innifalið í
verðinu er móðurstöð, talfæri, billoftnet,
kaplar, hljóðnemi og hátalari fvrir handfrjálsa notkun.
STORNO farsímarnir eru v.-þýsk gæðavara og búa yfir öllum fullkomnustu eiginleikum farsíma og með STORNO 440
getur þú notað þjónustu tölvubanka og boðkerfisins.
Gríptu tækifærið því við eigum takmarkaðar birgðir af þessum vönduðu og
ódýru farsímum. Komdu í söludeildir Pósts og síma og staðfestu pöntun PÓSTUR OG SÍMI
hið fyrsta. Söludeildir í Kirkjustræti, Kringlunni, Ármúla 27
og á póst- og símstöðvum um land allt
Verö miðað við suðgreiðslu og gengi 28.5.1990.