Tíminn - 15.09.1995, Blaðsíða 6

Tíminn - 15.09.1995, Blaðsíða 6
„ ... ?oor wii«»vv» ? r iudi.Wij'í/í; : 6 WÍmÍIM Föstudagur 15. september 1995 Úr kvikmyndirmi Tár úr steini, lífssögu tónskáldsins )óns Leifs, sem fyrr á tíö var úthrópabur, en hefur fengib uppreisn œru í nútímanum. Ný íslensk kvikmynd, Tár úr steini, frumsýnd í dag um „einn mesta listamann sem ísland hefur aliö": „Tónlistin úthrópub sem hávaði og gauragangur" Höröur Torfa í Loftkast- alanum: Tónleikar vegna fjölda áskorana Vegna fjölda áskorana heldur trúbadorinn Hörbur Torfason tónleika í Loftkastalanum í Hébinshúsinu í kvöld, föstu- dagskvöld, og hefjast þeir klukkan 20. Nær húsfyllir var á árlegum hausttónleikum kappans í Borg- arleikhúsinu sl. föstudag, sem þóttu takast mjög vel. Meb Herbi á tónleikunum kemur fram valinkunnur hópur ungra hljóbfæraleikara, sem sönnubu ágæti sitt á fyrri tónleikunum. Mibaverb á tónleikana í kvöld er kr. 1400, en salurinn tekur yf- ir 400 manns í sæti. ■ Sýning á eldfornum leir- listaverkum frá Perú á Kjarvalsstööum: Nytjahlutir meö dular- fullum skreyt- ingum Leirlistaverkum frá því fyrir tíma Inkanna og sumum alit frá 5. öld fyrir Krist, verbur rabab upp á sýningu í Vestur- sal Kjarvalsstaba sem opnub verbur laugardaginn 16. sept. Leirmunirnir eru frá Þjób- minjasafninu í Lima í Perú, en þar hafa verib stundaðar rann- sóknir á menningar- og lista- sögu Perú sem spanna 6000 ára tímabil. Alls eru verkin 85 og hafa einkum fundist í strand- héruðum Perú þar sem forn- leifafræbingar eru sífellt ab gera nýjar uppgötvanir. Mörg verk- anna eru nytjahlutir ýmiss kon- ar, ker og vasar, sem gefa vís- bendingu um daglegt líf innan þessara samfélaga. En þau gefa um leib innsýn í trúarbrögb, gildi og heimssýn þessara þjóð- arbrota, sem byggbu strandhér- ub Perú fyrir mörgum öidum. Sýningin stendur frá 16. sept. til 15. okt. frá kl. 10-18. ■ Bæjarstjórn Kópavogs barst ný- lega í hendur bréf frá Hand- knattleikssambandi íslands. Þar fer HSÍ fram á að fá að halda landsleik í Smáranum, nýja íþróttahúsinu. Gott mál, sagði Jón Leifs var tónskáld sem ekki hefur fengib uppreisn starfsæru né persónulegrar æru fyrr en nú á síbustu árum, en hann lést árib 1968. Hilm- ar Oddsson hefur lokib vib ab leikstýra mynd um átakasögu Jóns, sem fer ab mestu fram í Þýskalandi nasismans. Tár úr steini tók þátt í keppni um Amandaverblaunin á nor- rænni kvikmyndahátíb og hlaut þar góbar vibtökur. Keith Keller frá Hollywood Reporter sagbi m.a. í grein um hátíbina ab Hilmari takist „ab kanna kröftuglega þab sem leikstjórum flestra kvik- mynda sem fjalla um ævi tón- skálda hefur mistekist ab kanna, þeirra á mebal Milos Forman (Amadeus), þ.e. hug- arheim tónskálds og hvernig tónverkin verba til í raun og veru." Tíminn hafði samband vib Hilmar og kannabi hug hans til myndarinnar og þessara orba Kellers. „Sko, ég dái Milos For- man mjög mikiö og mér finnst Amadeus frábær mynd, ég held ab hann hafi ekkert sérstaklega bæjarráb. En böggull fylgdi skammrifi. HSÍ vildi nefnilega ab bærinn héldi matarbob eftir leikinn. Nei takk, sagöi bæjar- stjórn og þá er leikurinn vænt- anlega út úr myndinni. ■ verið aö reyna þetta. Keller er aö tala um það að í Tári úr steini verði afskaplega skýrt úr hverju tónlist Jóns er sprottin. Hvaöa tilfinningar eru aö baki henni og af hverju semur hann tón- listina. Ég held þaö komi fram án þess að ég sé neitt aö rembast viö aö segja þab. Þaö er það sem honum finnst sérstakt." Aö sögn Hilmars er mesta áherslan lögð á fjölskyldu- og ástarsöguna. „Þetta er allt annaö en heimildamynd. Hún er byggö á ákveðnum atburðum, en algjörlega meö okkar for- merkjum. Svipaö og Amadeus var um Mozart, en var um leið skáldverk." Upphaflega hafði hópurinn ætlaö sér aö gera heimildamynd um ævi Jóns Leifs, en á 6 ára meögöngu breyttist hún í leikna og „safaríka" bíómynd. „Ævi þessa manns var svo atburðarík og dramatísk að okkur var ljóst að viö gætum aldrei gert þessu fullnægjandi skil í formi heim- ildarmyndar. Hann átti bara miklu meira skiliö, ef þaö átti að rétta hlut þessa manns og vinna úr ævi hans. Og ég sem leik- stjóri leikins efnis gerði mér grein fyrir því aö ég fengi aldrei betri efnivið upp í hendurnar." íslendingar höfnuöu lista- manninum Jóni Leifs og ýmsir aðdáendur hans telja að rétta þurfi hlut hans. „Þessi maður var svo til úthrópaður af samtíð sinni á íslandi, bæöi sem lista- maöur og manneskja, og þess vegna má segja að vib séum í flokki þeirra sem eru ab rétta hlut eins mesta listamanns sem ísland hefur aliö fyrr eöa síöar." Ein af ásökunum íslendinga í garö Jóns var aö hann aðhylltist nasismann. „Hann býr í Þýska- landi nasismans í stríöinu og hann var sakaður um það af ís- lendingum aö vera hallur undir nasisma á sama tíma og hann er giftur gyðingi, á tvær dætur sem eru gyðingar og þarf aö horfa á eftir tengdaforeldrum sínum í gasklefann. Slíkur maður getur ekki veriö mjög sannfæröur nas- isti. En íslendingar horföu alveg framhjá þessu og hann er svona maður sem hefur lent á dæmi- gerðan hátt í hinu svokallaða al- menningsáliti og Gróu og öllum þeim konum. Menn reyndu ekki að skilja list hans. Þaö var bara gert grín aö henni og hún úthrópuö sem hávaði og gaura- gangur." Aö sögn Hilmars eru um 10- 15 ár síðan menn fóru að endur- meta Jón Leifs og þá kannski mest fyrir tilstilli Hjálmars H. Ragnarssonar, sem hvað ötulast hefur unnið aö því aö kynna hann. „Menn hafa farið aö hugsa hvort viö ættum kannski þarna fjársjóð sem viö vitum ekki af. Þaö er sannfæring mín, og þessi mynd held ég að taki af allan vafa um það að hér var á ferð tónskáld á heimsmæli- kvaröa." Þar sem stefnan var tekin á leikna kvikmynd, segir Hilmar að nauðsynlegt hafi veriö að taka ýmis skáldaleyfi. „Við gerö- um það markvisst, en ég er ekk- ert viss um ab þessi mynd, þrátt fyrir öll sín skáldaleyfi, sé fjær svokölluðum sannleika heldur en ef ég heföi gert heimilda- mynd. Því aö í heimildamynd geturðu stillt hlutunum upp ná- kvæmlega eins og þér hentar. Þetta er bara mín útgáfa á sann- leikanum." Aðspurður hvort þau hafi haft einhverjar heimildir til aö byggja á, sagöi Hilmar: „Já, heldur betur. Viö fengum aö- gang, sennilega fyrstir manna fyrir utan fjölskyldu hans, að persónulegum bréfum og dag- bókum og þaö voru ómetanleg gögn. Nú þekkti ég hann ekki í lifanda lífi, en mér finnst ég hafa kynnst honum ákaflega vel og stundum óþægilega náiö í gegnum þetta." Hilmar segir aö þessar þekktu tónskáldamyndir hafi innblásið hann á vissan hátt, „en auövit- aö verð ég eins og aörir aö finna mitt eigið. Ég veit að þessi mynd er dálítið sérstök í mynd- stíl og frásögn. Myndmálið er úthugsaö og agað. Við lögöum mikiö upp úr því aö finna kjarna sögunnar, sem viö erum aö segja gegnum myndmálið. Ég þurfti t.d. ekki 20.000 statista í götusenum, vegna þess aö ég er aö einbeita mér að einhverju allt ööru. Ég er miklu frekar ab einbeita mér aö fólkinu sjálfu og sambandinu milli þess og til- finningum þess. Þarna er fólk í nærmynd." Hilmar er mjög ánægöur með útkomuna. „Já, ég er það. Þaö væri bara vanþakklæti og hroki að segja annað og ég er í raun og veru mjög hamingjusamur meö þetta." Tár úr steini er íslensk-sænsk- þýsk samframleiðsla og tekin í Þýskalandi og á íslandi. Hand- ritiö skrifuöu Hilmar Oddsson leikstjóri, Hjálmar H. Ragnars- son, sem einnig er tónlistar- stjóri, og Sveinbjörn I. Baldvins- son. Framleiðandi er Jóna Finnsdóttir, Ieikmyndahöfund- ur var Sigurjón Jóhannsson og kvikmyndatakan var aö mestu í höndum Siguröar Sverris Páls- sonar. ■ Böggull fylgdi skammrifi: Bæjarstjórn vildi ekki bjóða í mat

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.