Tíminn - 02.08.1996, Blaðsíða 17
Föstudagur 2. ágúst 1996
17
IVI cð sínu nefi
í þættinum í dag veröa gefnir hljómar viö gamla söngperlu,
sem oft er sungin á mannamótum eins og þeim sem stunduö
eru um verslunarmannahelgi. Þetta er lagiö „Þú ert" eftir þá
Gest og Þórarin Guðmundsson.
Góöa söngskemmtun! C nm
ÞÚ ERT
C Dm
Þú ert yndið mitt yngsta og besta,
G C
þú er ástarhnossið mitt nýtt,
E Am
þú ert sólrún á suöurhæðum,
D G
þú ert sumarblómið mitt frítt.
C Dm
Þú ert ljósið, sem lifnaði síðast,
G C
þú ert löngunar minnar Hlín.
C Dm
Þú ert allt, sem ég áður þráði,
C F G C
þú ert ósk, — þú ert óskin mín.
i > >
4 >
4 * < »
•
* 3 < ; : "
-I- A N D L Á T
Anna Þóröardóttir,
Hrafnistu, áður Barmahlíð 23, lést 12. júlí sl. Útförin hefur
farið fram.
Brynja Reykdal Henrysdóttir
er látin. Bálför fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Elínbjörg Gubjónsdóttir (Ella Wennerberg),
Svíþjóð, er látin.
Gísli Jóhannsson
andaðist á hjúkrunardeildinni Víðihlíð, Grindavík, mið-
vikudaginn 31. júlí.
Gubjón K. Gubmundsson
bifvélavirki, Laugarnesvegi 108, Reykjavík, lést 29. júlí.
Haukur Helgason
ritstjóri, Lundarbrekku 6, Kópavogi, varð bráðkvaddur á
heimili sínu sunnudaginn 28. júlí sl.
ísafold Kristjánsdóttir,
lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöldi laugardagsins 27.
júlí.
Margrét Gubjónsdóttir
hjúkrunarfræðingur, Bólstaðarhlíð 45, Reykjvík, lést í
Landspítalanum 28. júlí.
Margrét Sveinsdóttir
lést í Skjóli aö kvöldi 27. júlí.
Sólveig Fribfinnsdóttir,
Ásholti 10, Reykjavík, andaðist á heimili sínu þann 28. júlí
sl.
Sveinbjörg Gubmundsdóttir,
áður til heimilis á Kleppsvegi 40, Reykjavík, andaðist á
hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 30. júlí.
Valborg Syre,
Hátúni 10A, andaðist á heimili sínu þann 28. júlí sl.
Þórunn Ásgeirsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 30. júlí.
Ca. 12-14 stk.
250 gr hveiti
2 tsk. lyftiduft
125 gr smjör
2 msk. sykur
1 dl sýrbur rjómi
Smávegis sultutau
Egg til ab pensla meb
Perlusykur
Blandið hveiti og lyftidufti
og myljið smjörið saman við.
Bætið sýrða rjómanum og
sykri út í og hnoöið saman í
mjúkt deig. Fletjið út tvær
kringlóttar kökur. Skerið
hverja köku í ca. 12 stykki út
frá miðju. Setjið smá sultutau
á hvert horn og rúlliö saman
frá breiðari endanum. Setjið
hornin á plötu, penslið þau
meö eggi og stráið perlusykri
yfir. Bakið í ca. 15 mín. við
200”.
Horn.
Bfóéerja mfáins
1 egg
5 msk. sykur
50 gr brætt smjör
2 dl hveiti
1/2 tsk. lyftiduft
Ca. 2 dl bláber
Eggið og sykurinn þeytt í
þykka eggjahræru. Bræðið
smjörið og kælið aðeins, bætið
því út í ásamt hveitinu og
lyftiduftinu. Síðast er berjun-
um bætt út í hræruna. Ef ekki
eru notuð ber, má bara nota
bláberjasultutau. Deigið sett í
pappírsform og bakað við 200°
í miðjum ofni í ca. 8 mín.
Bᣣaéað/~
tttarenjjœilöilajr'
4 eggjahvítur
250 gr sykur
1 tsk. kakó
Muffins.
Eggjahvíturnar eru þeyttar
mjög stífar, 4 msk. af sykri
bætt út í og þeytt áfram. Af-
ganginum af sykrinum bland-
að saman við kakóið og hrært
varlega saman við eggjahvítu-
hræruna. Marengsinn settur
með sprautu á smurða eða
bökunarpappírsklædda plötu.
Bakað við 130” í ca. 30 mín.
eða þar til kökurnar eru lausar
við plötuna/pappírinn.
Sælgætiskökur, mjög góðar
með ís.
/kád^ina
250 gr rækjur
2 bollar sobin hrísgrjón
3 epli, skorin í smábita,
skræld og kjarnar fjar-
lægbir
1 græn paprika, skorin í
smábita
1 dós sýrbur rjómi
2 harösoöin egg
Sett í skál, eggin sett efst,
skorin í bita. Sýrða rjómanum
hellt yfir. Boriö fram kalt,
ristað brauð haft með.
Viö brosum
A: Hvað sagði konan þín þegar þú komst svona fullur heim í
gær?
B: Ekki eitt orð. Og þessar tvær framtennur þurfti hvort sem
er aö taka.
Á bílaverkstæðinu.
Konan: Ég vil gjarnan láta laga flautuna á bílnum mínum.
Viðgerðarmaðurinn: Það er nú líka eitthvað að bremsunum á
bílnum.
Konan: Já, auðvitað. Hversvegna heldur þú að ég þurfi að láta
laga flautuna?
Kennarinn: Kristín mín, ef þú hefur tvær kjötbollur á diskn-
um þínum og borðar þær báðar, hvað er þá eftir?
Kristín litla: Kartöflurnar.
Lögfræðingurinn: Þetta gekk vel hjá okkur, við unnum mál-
ið. En eftir á að hyggja, varst það ekki þú sjálfur sem tókst
peningana?
Skjólstæðingurinn: Ja, ég hélt það alveg þar til þú fluttir
þessa stórkostlegu ræðu í réttarsalnum.
Forstjórinn spurði skrifstofumanninn hve margir ætluðu
með í sumarferðina. Skrifstofumaðurinn svaraöi hálf hik-
andi: „30 ef þú ferð með okkur, en 50 ef þú kemur ekki með."
Þrír menn voru að ræða saman um hjónabandið. Einn þeirra
grobbaði af því að hann og konan hans hefðu verið ham-
ingjusöm í þrjú ár, en því miður skildu þau.
Annar sagðist geta sagt að hann hefði átt 14 hamingjusöm ár
með sinni konu áður en hún því miður dó.
Sá þriöji hafði þetta að segja um sína lífsreynslu: „Við vorum
gift í 24 hamingjusöm ár — en svo kynntumst við."
Vissir þú ab ...
1. Brigitte Bardot seldi
skartgripina sína á upp-
boði árið 1987 til að stofna
dýraverndunarsjóö, sem
skal bera nafn hennar.
2. Harvardháskóli er elsti
háskóli Bandaríkjanna.
3. Knéfiðla er í daglegu tali
kölluð selló.
4. Golfklúbbur Akureyrar
hélt fyrst alþjóðlegt golf-
mót, Arctic Open, í mið-
nætursól árið 1987.
5. „Posungur" er reifabarn.
6. Sólarhringur er 23
klukkustundir og 56 mín-
útur.
7. Fimm af tíu hæstu tind-
um Norður-Ameríku eru í
Alaska.
8. „Leginn" lax er þegar
langt er síðan fiskurinn
gekk úr sjó.
9. Hálfsjötugur maður er
65 ára.
10. Tókíó er á eyjunni
Honsjú.
Ák