Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING AFTUR; titillinn getur ekki annað en minnt á bók Marcel Proust sem Pétur Gunnarsson þýddi, Í leit að glötuðum tíma. Setningin lýsir inn- taki sýningar Einars Fals ljós- myndara í Listasafni Reykjanes- bæjar. Viðfangefni Einars er einmitt þetta samspil fortíðar og nútíðar, nútíðar sem á hverju augnabliki breytist í fortíð. Aftur; þetta er tregafullur titill, óhjákvæmilega. Hvernig getur heimsókn á breyttar æskuslóðir verið öðruvísi? Fæstir óska sér að upplifa æsku sína aftur en syrgja hana þó, horfið sakleysi, horfið al- gleymi augnabliksins, meðvitund fullorðinsáranna um hverfulleika lífsins og sífelldar breytingar hefur tekið yfirhöndina. Roland Barthes hefur kannski haft áhrif á Einar Fal sem lagði stund á ljósmynd- anám eitthvað um það bil á þeim tíma þegar kenningar hans voru í hávegum hafðar, en bók hans, Roland Barthes par Roland Barth- es fjallar m.a. um ljósmyndir úr bernsku þar sem hann veltir fyrir sér hvað lifir í minningunni og hvernig. En Einar Falur segir ekki frá atriðum í eigin lífi heldur segir sýning hans margar sögur. Mynd- irnar eru allar teknar á þessu ári og sjónarhornið hefur yfirbragð skrásetningar. Rammarnir eru sér- stakir og minna á kassa sem geyma safngripi, þeir fara vel við þann lestur sem Einar ætlar myndum sínum. Í þeim dregur hann fram sjónræn atriði umhverfisins á borð við litadýrð málaðra veggja, en myndirnar einkennast einnig af jafnvægi, vissri fjarlægð, skerpu og kyrrð. Sögurnar sem myndirnar segja eru jafn margar áhorfendum, en í forgrunni er líka saga sjávarþorps sem stundum virtist nær Ameríku en Reykjavík, „mótað af vindum og Ameríku“ eins og Jón Kalman Stef- ánsson rithöfundur orðar það í inni- haldsríkum formála að sýningunni. Þar sem töluð er sjarmerandi keflvíska og enn í dag get ég varla talað um Reykjanesbæ, nei, „Kebblaíg“ heitir það. Einar Falur segir ekki síst sögu áhorfandans sjálfs sem skáldar frjálslega í yfirlætislausa bakgarða, andlit unglingsáranna, eða augna- tillit þeirra sem eitt sinn voru börn. Með liðinn tíma í huga eru blokk- irnar í bakgrunni allt í einu eins og fótósjoppaðar inn á þorpsmyndina, Snæland vídeó út úr kú, Flennistór ísauglýsingin tilheyrir einnig nú- tímanum, en undir henni, bak við rúðuna: bambi, vísun til bernsku. Veggurinn í gagnfræðaskólanum segir sína sögu og málað múr- steinamynstur gefur til kynna blekkingu, ekkert er eins og það virðist. Sýningin er vandlega hugsuð og framsett frá upphafi til enda og nýtur sín vel í landfræðilegu og sögulegu samhengi, á tíma sem er tímamótatími í sögu bæjarfélagsins. Einar Falur kann þá list að segja mikla sögu án orða eða umbúnaðar, sannleik um lífið og tímann, sem ekki verður færður í orð. Sannleikur um lífið og tímann Ljósmynd/Einar Falur Ingólfsson Ragna Sigurðardóttir MYNDLIST Listasafn Reykjanesbæjar Til 14. október. Opið alla daga frá kl. 13.- 17.30. Aðgangur ókeypis. Aftur, Einar Falur Ingólfsson Aftur Gatnamót Vatnsnesvegar og Hafnargötu, 2007. ÞAÐ er ótrúlegt að við skulum eiga tvær alvöru stórsveitir um þessar mundir og þó að margir í Stórsveit Samma Jagúars spili af og til með Stórsveit Reykjavíkur er aðeins um fjórðungur þar fastamenn. Það er skemmst frá því að segja að Stór- sveit Samma blés af slíkum fítons- krafti að dauðir hefðu risið upp væru þeir grafnir undir sviðinu í NASA. Brassið var alveg geggjað, sér í lagi trompetarnir, og Óskar Guðjóns, Jó- el Pálsson og Haukur Gröndal trylltu í sólóum sínum og hafði gest- urinn, Jimi Tenor frá Finnlandi, ekkert í þá kappa að gera. Tónlistin var í bland eftir Samma og Jimi, sem var flottur er hann fékkst við raftól- in og söng samstiga með hljóm- borðsleik sínum. Mér segja fróðir menn að hann sé flottur í raftónlist- inni en ekki er hann litríkur sem ten- óristi. Ekki tók verra við eftir að Sammi og félagar luku leik sínum. Antibalas frá New York héldu uppi stuðinu fram eftir nóttu. Þetta eru fjórir blásarar og sjö manna hryn- sveit, þar af söngvarinn Amayo. Þarna var aldrei slegið af og færni sólistanna mikil – sér í lagi fannst mér básúnuleikarinn Aaron Johnson magnaður. Það er gaman að lífs- gleðin skuli enn ríkja í djassinum, ekki síður en þegar Louis Jordan og Lionel Hampton og allt það gengi tryllti lýðinn. Þessi djasshátíð er ein sú skemmtilegasta sem haldin hefur verið hérlendis og það má aldrei gleyma því að listin verður líka að gleðja. Framkvæmdastjórinn, Pétur Grétarsson, stóð sig eins og hetja við skipulagninguna og troðfullt var alls staðar og þegar eitthvað smávegis vantaði upp á að listin væri fjögurra stjörnu bætti sjóvið og leikgleðin það margfalt upp. Lúðra- sveitafönk af bestu sort Vernharður Linnet Tónlist NASA Laugardagskvöldið 1.9. Jazzhátíð Reykjavíkur: Stórsveit Samma, Jimi Tenor og Antibalas  Í RIGNINGARSUDDANUM standa nokkrar hræður á Austurvelli í regnkápum að taka myndir af Alþingishúsinu. Síðan er Austurvöllur auður. Er klukkan nálgast fimm á föstudagseft- irmiðdegi fjölgar á Austurvelli þar sem fólk hef- ur safnast saman til að fara í dansgöngur á veg- um Reykjavík Dance Festival 2007. Val var á milli tveggja leiða og varð dansganga A fyrir val- inu. Gangan leiddi að helli einum við Ingólfstorg, þar sem tvö sgwímsli sátu sofandi í stól. Þetta er heimilislegur hellir, þar sem lampar varpa mjúk- um bjarma á gula veggi. Búningar eru svolítið bangsalegir en virka mjúkir og hlýir. Lag fyrir lag hverfur ytra byrðið og hið innra með okkur verður sýnilegt. Verk þeirra Margrétar og Sögu hafði góða uppbyggingu og skýrt „concept“, jafn- framt því sem verk þeirra var einlægt og þær trúverðugar í hlutverkum sínum. Nú hélt gangan áfram og leið lá upp Banka- strætið, en í búðarglugga uppi á annarri hæð sat ung stúlka og beið. Samkvæmt dagskrá var dansverk Kötlu Þórarinsdóttir um þær ýmsu myndir sem ástin tekur á sig. En fyrir áhorfand- ann var eins og hún væri að bíða, annaðhvort eftir einhverjum (ástinni) eða bara lífinu sjálfu. Verkið var ágætlega unnið, en sumir kaflar náðu ekki athygli áhorfandans. Kannske vegna fjar- lægðar dansarans við áhorfendur er stóðu í rign- ingunni og horfðu upp í gluggann. Að lokum var gengið að Hressingarskálanum og sest inn í hlýjuna. Hugmynd Damians Gmu- ers og Ritu Aozane Bilibio var um tilraunasýn- ingu þar sem áhorfendur samlöguðust gestum staðarins, sem svo blönduðust aftur dönsurum. Verkið var sett upp í ýmsa kafla sem sumir hverjir vöktu kátínu á meðal áhorfenda. Það hafði stytt upp er gengið var út eftir sýn- inguna. Þessi hugmynd að færa nútímadans nær almenningi með dansgöngu virkaði vel og undir hatti Reykjavík Dance Festival fengu þessir ungu danshöfundar tækifæri til að koma dans- sköpun sinni á framfæri. Það verður spennandi að fylgjast með þeim í framtíðinni. Dansganga A frá Austurvelli DANS Reykjavík Dance Festival 2007 Miðbær Reykjavíkur, laugardaginn 1. september 2007. Sgwímsli: Margrét Bjarnadóttir og Saga Sigurðardóttir. Ég hef það fínt takk!: Katla Þórarinsdóttir. Guerilla- improvisations: Damian Gmuer og Rita Aozane Bilibio. Margrét J. Gísladóttir SAFNAÐARHEIMILI Vídalíns- kirkju í Garðabæ, Kirkjuhvoll (ekki að rugla við samnefnt fyrirtæki í Reykjavík), var umgjörð vel sóttra einsöngstónleika á laugardag. Fram komu mezzosópransöngkonan Rann- veig Fríða Bragadóttir og hennar fas- tapíanisti hérlendis hin síðari ár, Ger- rit Schuil. Rannveig hefur nú lengi verið búsett í Austurríki, og lék því nokkur forvitni um viðburðinn þar eð hún hefur ekki látið í sér heyra hér- lendis síðan 2004, að því er bezt er vit- að. Dagskráin var að því leyti óvenju- leg að vera valin eftir ákveðnu þema. Það kom ekki fram af yfirskriftinni „Ljóðasöngvar á hausti“ heldur skrif- um söngkonunnar í tónleikaskrá, „Konur í lífi og verkum skáldsins“, þ.e. J.W. von Goethes. Fóru hér m.ö.o. tónsetningar ofangetinna klassískra kompónista á völdum ljóð- um Goethes um konur, er sum hver áttu sér raunverulegar fyrirmyndir úr lífi hans, eins og fram kom af fróð- legri úttekt söngkonunnar. Óneitanlega frumleg formúla, enda man ég ekki í svipinn eftir neinu sams konar lagavali tengdu þessu höf- uðskáldi Þjóðverja fyrr á hérlendum söngpalli. Í því sambandi var þó óneitanlega leitt að geta ekki haft söngtextana fyrir sjónum svo bera mætti saman ólíka nálgun tónskáld- anna, með því að heil 6 ljóð af 20 birt- ust í tveimur útgáfum – og eitt (Freudvoll und leidvoll) m.a.s. í þrem- ur – jafnvel þótt inntak ljóðanna væri lauslega tilfært í tónleikaskrá. Hinu hnitmiðaða efnisvali fylgdi óhjákvæmilega sá böggull skammrifi að þurfa að bregða birtu á ólíka með- ferð tónskáldanna á sama texta. Og þar stóð hnífurinn í kúnni. Hvað fyr- irmyndarfylginn píanóleik Gerrits varðar heyrðist mér fátt út á setjandi, enda voru höfundareinkennin yf- irleitt augljós og vel undirstrikuð í röggsömum en oftast þjálum og blæ- brigðaríkum leik hans. Öðru máli gegndi um sönginn, því að frátöldu Freudvoll … Liszts og allheillandi túlkun á Gretchen am Spinnrade Schuberts fannst mér meðferðin í heild einum of keimlík. Tilfinningaleg innlifun Rannveigar var að vísu oft talsverð. En einsleit raddbeiting hennar, ásamt fullveiku brjósttónsviði sem varð til að toppn- óturnar skáru sig of mikið úr heild- inni, verkaði hins vegar þreytandi til lengdar, jafnvel þótt undirtektir væru afbragðsgóðar. Þar virtust þó einkum eldri hlustendur eiga í hlut, og stemmir það á sinn hátt við hug- boð mitt um að kröfur til m.a. ví- bratótemprunar hafi aukizt verulega í kjölfar vaxandi upphafsstefnu síð- ustu áratuga. Konur Goethes Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Kirkjuhvoll Verk eftir Beethoven, Mendelssohn, Schumann, Schubert, Liszt og Wolf. Rannveig Fríða Bragadóttir mezzosópr- an, Gerrit Schuil píanó. Laugardaginn 1. september kl. 17. Einsöngstónleikar  HILDUR Bjarnadóttir heldur sínu striki á sýningu sem nú stendur yfir í Listasafni ASÍ, þar sýnir hún í Ar- instofu og Gryfju. Viðfangsefni hennar er líkt og á undanförnum ár- um togstreitan milli handverks og fagurlista, milli miðlægrar karllægr- ar listar aldanna og heimilisiðnaðar og handverks kvenna. Þetta kemur skýrt fram í verkum Hildar í Arinstofu þar sem ofnir dúkar minna á viskustykki, nema efnið er handofið úr málarastriga og litasamsetningar lúta annarri fag- urfræði en þeirri sem ríkir í Rúm- fatalagernum. Dúkarnir, – eða högg- myndirnar miðað við framsetningu þeirra, eru samanbrotnir og komið fyrir á stöplum en framsetningin er til þess ætluð að vekja athygli á aldagömlum skilgreiningum og við- horfi til listaverka sem ekki hefur verið í takt við þróun innan mynd- listar um alllangt skeið. Í arinstofu er Hildur síðan á öllu ósýnilegri mörkum fagurlista og handverks og mætti túlka titil sýn- ingarinnar, Innifalið, sem undir- strikun á þessu. Það mætti allt eins skilgreina veggverk hennar sem hefðbundinn vefnað, nema fyrir þá vitneskju að þau eru ofin úr mál- arastriga. Hér kemur fram sama þema og hefur einkennt list Hildar um nokk- urt skeið en sýningin gengur ágæt- lega upp þó að þeir sem þekki verk hennar sjái þar ekki beinlínis verk sem koma á óvart. Listamenn sem þróa lista sína hægt og íhuga verk sín vel eru gulls ígildi, því hlýtur líka að vera mikilvægt að haga sýning- arhaldi í samræmi við slík vinnu- brögð og á það bæði við um stefnu sýningarsala og sýningarhald lista- mannanna sjálfra. Hagan- lega ofnir þræðir Ragna Sigurðardóttir MYNDLIST Listasafn ASÍ Til 23. september. Opið alla daga nema mán. frá kl. 13-17. Aðgangur ókeypis. Hildur Bjarnadóttir: Innifalið Morgunblaðið/Sverrir Dúkar „Framsetningin er til þess ætluð að vekja athygli á aldagömlum skilgreiningum og viðhorfi til listaverka,“ segir Ragna í umsögn sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.