Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 5

Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 5
LANGISJÓR OG NÁGRENNI 147 of brött hverju ökutæki. Þegar ég fann þenna steinboga, 30. júlí 1955, var fremur mikið í ánni og rann kvísl úr henni framhjá honum að vestan. Þá kvísl varð ég að vaða vel í mjóalegg, en að öðru leyti er þarna ágæt brú fyrir gangandi mann. Elzta lieimild mér kunn, sem getur urn Langasjó, svo að vart er um að villast, er fréttaspistill í ísafold 1878 (bls. 96): „Á Síðumannaafrétti í útsuðurhorninu á Vatnajökli hafa fund- izt tveir grösugir dalir. Norður af dölunum er vatn, sem lialdið er að Skaftá renni úr. Fjöll þau, sem þessir dalir liggja í, hafa áður verið kölluð Skaftárfjöll, eru nú kölluð Fögrufjöll. Virðast þau vera áföst við Vatnajökul, nema hvað Skaftá mun renna fram milli þeirra og höfuðjökulsins. Góð beit er þar fyrir fé, en að öðru leyti eru þessi fjöll og dalir ekki nægilega kannaðir. íslendingar bíða eftir því, að einhver Englendingur ráðist í það. Vatn það, sem hér er getið og „haldið er, að Skaftá renni úr“, er að öllum líkindum Langisjór, en gæti þó e. t. v. verið eitthvert lónið í Fögrufjöllum. Næst er getið um Langasjó í skýrslu eftir Ólaf Pálsson á Höfða- brekku um könnunarferð, sem liann og fleiri Skaftfellingar fóru inn á öræfi sumarið 1884. Þeir félagar nefndu vatnið „Skaftár- vatn“. Þeir gengu á Sveinstind (sem þá var nafnlaus), „hæsta tind- inn, sem til er í íjallgarðinum [þ. e. Fögrufjöllum], . . . og nefndum við hann Bjarnatind, af því fyrir nokkrum árum liafði Bjarni [Bjarnason] í Hörgsdal með fleirum farið norður yfir Skaftá og upp á þenna tind og hlaðið þar vörðu“ (Ólafur Pálsson: 1885 bls. 1). Einnig könnuðu þeir nokkurn hluta Fögrufjalla, sem Ólafur kallar ,,Skaftárfjallgarð.“ Þorvaldur Tlioroddsen kom tvisvar að Langasjó — eða a. m. k. svo nærri, að hann sá vel til vatnsins. í fyrra skiptið, 5. ágúst 1889, reið hann upp úr Botnaveri, sem hann hafði fundið og gefið nafn í þessari sömu ferð, upp á fjallgarðinn sunnan við Tungnárbotna. Og er hann sá suður af, gaf á að líta: „Þar við enda fjallgarðsins hefur jökullinn rakað saman miklu grjótrusli í háar öldur, og í hvilft við jökulinn er þar tjörn af uppi- stöðuvatni mjólkurhvítu. Skriðjökulröndin heldur áfram suður á bóginn eins langt og augað eygir. En fyrir sunnan okkur er tind- óttur hár fjallgarður [Fögrufjöll], jafnhliða þeim, er vér stöndum á, og ná þessir fjallgarðar eins langt suður eins og vér sáum, allt suður undir Torfajökul. í dældinni milli þessara tveggja fjall-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.