Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 4

Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 4
Alaskalúpína á íslandi Alaskalúpína (Lupinus nootkatensis Donn ex Sims) vex villt í strandhéruðum norðantil í vesturhluta N-Ameríku, í Alaska, á Aljúta- eyjum og í Kanada. Samkvæmt Flóru Alaska (Eric Hultén 1968) vex hún í þurrum brekk- um og á malareyrum. Hvergi er þess getið sérstaklega þar að hún sé fyrst og fremst landnemategund sem síðan hörfi undan öðrum tegundum. En eins og margar aðrar plöntutegundir heldur hún þó illa velli í sam- keppni við hávaxnari og sterkari plöntur, eins og ýmsar runna- og trjátegundir. Árið 1945 voru fræ af alaskalúpínu flutt hingað frá Alaska og næstu árin var henni sáð á nokkrum stöðum á landinu. Hún þreifst hér strax mjög vel og var smám saman farið að nota hana til að græða upp lítt gróið land. Mörgum fannst þessi harðgerða planta strax nokkuð framandi í íslensku landslagi og ágeng við þær villtu plöntur sem hér uxu fyrir. Aðrir töldu fullvíst að hún þrifist hér aðeins á lítt grónu landi og hjálpaði til að mynda gróðurþekju. Síðan myndi hún hörfa fyrir íslenskum tegundum, einkum grasteg- undum, og hún myndi alls ekki sækja inn á gróðið land. Notkun lúpínu til landgræðslu hefur aukist mjög síðustu árin og nokkrar rannsóknir á líffræði hennar hafa farið fram, einkum á vegum Rannsóknastofnunar land- búnaðarins. Menn vita því orðið allmikið um vaxtarhætti hennar hér og háttalag gagnvart villtum íslenskum plöntum. Alaskalúpínan er harðdugleg við að mynda gróðurþekju á lítt grónu landi, en fer allharka- lega að því. Á hálfgrónum melum er varla hægt að orða það svo að hún gangi í lið með þeim mörgu smávöxnu tegundum sem þar vaxa, heldur yfirgnæfir hún þær og drepur á nokkrum árum. Á stöðum þar sem áður uxu einar 20 tegundir ýmissa blómplantna hefur hún sums staðar myndað samfelldar breiður Eyþór Einarsson (f. 1929) lauk mag.scient.-prófi í grasafræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1958. Hann hefur verið deildarstjóri grasafræðideildar Náttúru- fræðistofnunar Islands frá 1958 og var forstöðumaður stofnunarinnar í 12 ár. Eyþór átti sæti í Náttúru- verndarráði 1959-1990 eða í 31 ár og var formaður ráðsins 1978-1990. þar sem allar aðrar tegundir eru horfnar og fjölbreytnin því rokin út í veður og vind. Þannig hefur t.d. holtasóley, sem margir hafa viljað gera að þjóðarblómi íslendinga, fækkað nokkuð í nágrenni Reykjavíkur. Á allstóru svæði umhverfis gömlu skógartorfumar í Bæjarstaðarskógi, sem hefur verið að gróa upp undanfarin 30-40 ár, hefur alaskalúpína líka kæft og drepið ungar birkiplöntur hundmðum eða þúsundum saman og þannig tafið mjög fyrir endurnýjun skógarins. Þá hefur það komið í ljós að hér á landi veður lúpínan víða inn í og yfir algróið land eins og lyngmóa. Þannig geta berjalönd lent á kafi í lúpínubreiðum og eyðst. Allt bendir því til þess að menn hafi hér vakið upp þann draug og magnað á landið sem erfitt gæti reynst að kveða niður. Alaskalúpínu þarf því að nota með mikilli gát og hafa strangt eftirlit með henni. Henni þarf að stjórna harðri hendi en ekki láta hana taka öll völd og drepa flestar aðrar plöntur sem á staðnum vaxa og ógna ýmsu því sem einkennir íslenska náttúru og landslag. Þar sem mikið liggur á að græða upp land til ákveðinna nota er lúpínan ágætt verkfæri ef henni er stjómað. En að „græða upp“ með henni land sem þegar er gróið er algjör óþarfi og mestu landspjöll, ekki síst á meðan gróð- urinn er enn að eyðast annars staðar á landinu og tilfinnanlegur skortur er á mannafla og fé til að snúa þar vörn í sókn. Loks skal bent á að við íslendingar höfum skuldbundið okkur til þess með staðfestingu alþjóðlegra samþykkta að vemda fjölbreytni okkar náttúm og hafa strangt eftirlit með innflutningi erlendra tegunda og dreifingu þeirra og notkun úti í náttúmnni. Viðhorf manna í þessum efnum hafa líka gjörbreyst víða um heim, enda eru dæmin um ófyrirséð- ar afleiðingar af gálausum fiutningi tegunda milli ólíkra landa mýmörg og svo sannarlega víti til varnaðar. Eyþór Einarsson 234
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.