Fréttablaðið - 11.08.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.08.2009, Blaðsíða 20
16 11. ágúst 2009 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is „Hugmyndin að kvikmyndinni vakn- aði þegar ég var að vinna að umfjöllun fyrir Kastljós um kvennalandsliðið í fótbolta. Ég vissi ekkert um fótbolta en heillaðist strax af þessum stelpum sem sannfærðu mig um að þær myndu komast á Evrópumeistaramót tveimur árum síðar,“ segir Þóra Tómasdóttir, fjölmiðlakona og kvikmyndagerðar- maður, sem frumsýnir kvikmynd sína Stelpurnar okkar í Háskólabíói fimmtudagskvöldið 14. ágúst. Mynd- in fjallar um leið kvennalandsliðs Ís- lands í fótbolta í úrslitakeppni á Evr- ópumóti, en þetta er í fyrsta sinn sem íslensku landsliði tekst það. Þóra hafði fulla trú á stelpunum og ákvað að fylgja þeim eftir. „Ég heyrði strax þegar ég hitti þær að mikil þrautaganga væri fram undan. Verkefni mitt snerist hins vegar ekki um það hvort þær kæmust á mótið eða ekki, heldur vildi ég skrásetja stelpur með þetta hugarfar,“ segir Þóra sem er menntuð í heimildarmyndargerð en Stelpurnar okkar er fyrsta mynd hennar í fullri lengd. „Þessar stelpur eru hörkutól en langt frá því að vera einhverjar stereótýpur. Ég vissi það frá fyrstu stundu að það yrði fyndinn og skemmtilegur tími að fylgja þeim eftir,“ segir hún. „Það hljómar kannski klisjukennt en það er heilmikill boðskapur á bak við þessa sögu,“ segir Þóra. Henni þykir mikilvægt að stelpur hafi sterk- ar og sýnilegar fyrirmyndir. En hvað þótti henni merkilegast við vinnslu myndarinnar? „Hvað þessar stelpur eru með brjálæðislegt hugar- far. Þær vaða eld og brennistein fyrir fótbola og þeim er dauðans alvara,“ segir Þóra og heldur áfram. „Þær hafa fórnað öllu en oft ekki uppskorið þá athygli sem þær eiga skilið.“ Þóra fylgdi landsliðinu í flestar ferðir þess á tveggja ára tímabili. Myndaði leiki þess í riðlakeppninni sem er undankeppni fyrir Evrópu- mótið og tók þátt í gleði stelpnanna þegar ljóst var að þær næðu takmark- inu og kæmust í úrslitakeppnina. Þóra leikstýrði myndinni og Hrafn- hildur Gunnlaugsdóttir framleiddi en hún er að sögn Þóru einnig gömul fótboltakempa. Önnur fótboltakona, Elísabet Ronaldsdóttir klippti mynd- ina en Barði Jóhannsson sá um tón- listina. „Ég er sannfærð um að það er ekki að ástæðulausu sem mikil aukning er í kvennafótbolta. Íslenskar stelp- ur sjá núna að það er töff að spila fót- bolta,“ segir Þóra og hvetur alla til að sjá myndina. solveig@frettabladid.is ÞÓRA TÓMASDÓTTIR: FRUMSÝNIR STELPURNAR OKKAR Á FIMMTUDAG Stelpunum er dauðans alvara KVIKMYNDAGERÐARKONA Þóra frumsýnir fyrstu kvikmynd sína í fullri lengd á fimmtudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÓLAFUR GAUKUR TÓNLISTAR- MAÐUR ER 79 ÁRA Í DAG „Ég verð annaðhvort að vinna til dauðadags eða bara segja mig á sveitina.“ Þetta sagði Ólafur Gaukur Þórhallsson í viðtali í Frétta- blaðinu í desember árið 2006. MERKISATBURÐIR 1580 Katla gýs. 1794 Sveinn Pálsson og maður með honum ganga á Ör- æfajökul. Var þetta önnur ferð manna á tindinn. 1938 Baden-Powell, upphafs- maður skátastarfs, og hópur skátaforingja frá Englandi koma til Reykja- víkur. 1951 Á Bíldudal er afhjúpað- ur minnisvarði um Pétur J. Thorsteinsson og konu hans Ásthildi, en Pétur rak þar verslun og þil- skipaútgerð og gerði síðar út frá Reykjavík. 1960 Tsjad hlýtur sjálfstæði frá Frakklandi. 1979 Flak af Northrop-flugvél sem nauðlenti á Þjórsá og sökk þar 1943 er tekið upp og gefið safni í Noregi. Síðasta kvöldgangan í Kvos- inni í sumar verður farin næstkomandi fimmtudags- kvöld. Gangan ber yfir- skriftina Komdu út að leika og býðst krökkum og fjöl- skyldum þeirra að taka þátt í skemmtilegum leikjum og þrautum. Farið verður yfir það hvernig börn léku sér þegar bærinn var minni en nú og jafnvel allt aftur til landnámstímans. Farið verður í einfalda leiki eins og að rísa upp frá dauðum og gengið yfir heljar brú. Þátttakendur í göngunni fá einnig að kynn- ast leggjum og skeljum og fræðast um líf barna á þessu svæði á fyrri tíð. Þema kvöldganganna hefur verið mismunandi þetta sumarið og boðið hefur verið upp á göngur tengdar hundadögum, kennileitum í Kvosinni og miðbæjarbrun- um í máli og myndum. Dagskráin hefst klukk- an átta við Grófarhús og er í boði Borgarbókasafns, Listasafns, Ljósmyndasafns og Minjasafns Reykjavíkur. Síðasta kvöldgangan LEIKIR OG ÞRAUTIR Farið verður yfir það hvernig börn léku sér þegar bærinn var minni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Húsdýragarður var nýlega opnaður að Hólmi á Mýrum í Hornafirði. Ábúendur þar eru Magnús Guðjónsson og Guðrún Guðmundsdóttir sem frá árinu 2005 hafa boðið ferðamönnum upp á gistingu, morgun- og kvöld- verð. Sem tómstundagamni hafa þau svo safnað að sér margs konar dýrum sem gestir ferðaþjónustunnar hafa sýnt mikinn áhuga. Því datt þeim í hug að opna garð þar sem fleiri gætu notið þess að skoða dýrin og hafa nú aflað sér tilskilinna leyfa. Hann er bæði utan- og innan- dyra og í stuttu göngufæri frá bænum. Meira að segja er reynt að hafa sem mest af staðnum með aðgengi fyrir fatlaða. Þarna getur að líta hænur, kálfa, hunda, fugla, lömb, fas- ana, skrautdúfur og margar gerðir af kanínum svo nokk- uð sé nefnt. Á vefnum www. vatnajokull.is er skemmti- leg lýsing á heimsókn að Hólmi. Þar kemur fram að grísinn Frekja hefur ákveð- ið að vera ýmist hundur eða lamb eftir því hvernig ligg- ur á honum. Stundum bregð- ur Frekja á leik og líkist þá litlum klunnalegum hvolpi, hleypur um og stríðir öðrum dýrategundum. - gun Opnuðu dýragarð í Hornafirði DÝRAGARÐUR Ferðafólk fylgist með geitunum í Hólmi, Degi og Kreppu. MYND/WWW.RIKIVATNAJOKUSL.IS Stjórnarskrá Weimar-lýðveldisins var tekin í gagnið í Þýskalandi þennan dag árið 1919. Weimar-lýðveldið er heiti sem sagnfræð- ingar nota yfir lýðræði og lýðveldi í Þýska- landi á tímabilinu 1919 til 1933. Lýðveldið var stofnað eftir þýsku byltinguna í nóvember 1918 og kom þjóðarráð saman í borginni Weimar þar sem stjórnarskrá fyrir Þýskaland var tekin upp. Stjórnarskráin var ekki numin úr gildi fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina en með lögum sem stjórn nasista setti í febrúar og mars 1933 þá var ekki lengur lýðræði í Þýska- landi og er það talið marka endalok Weimar- lýðveldisins og upphaf Þriðja ríkisins. Hitler varð kanslari Þýskalands 30. janúar 1933 og þinghúsið brann 27. febrúar. Eftir brunann voru afnumin ýmis mannréttindi sem Weimar-stjórnarskráin kvað á um. ÞETTA GERÐIST: 11. ÁGÚST 1919 Weimar-stjórnarskráin tekin upp WEIMAR Söguleg stjórnarskrá var samin í þýsku borginni Weimar. 100 ára afmæli Í dag, 11. ágúst, er Irene Gook 100 ára. Hún býr á Dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Hlíð á Akureyri. Irene tekur á móti gestum milli klukkan 15 og 17 í dag í hátíðarsalnum á Hlíð. Hún afþakkar blóm og g jafi r en biður um að sumarbúðirnar Ástjörn og/eða Gídeonfélagið njóti góðs af. Banka- og reikningsnúmer Ástjarnar er: 0162-26-18363. Kt. 580269-0609. Banka- og reikningsnúmer Gídeonfélagsins er: 0525-26-103. Kt. 510571-0109. Láttu hólminn heilla þig er yfirskrift á skemmtigöngu sem boðið er upp á í Stykkis- hólmi hvern laugardag í sumar. Göngurnar eru með sögu- legu ívafi og eru farnar í fylgd heimamanna. Hver ferð er óvissuferð enda ekki gefið upp hvert haldið verður. Gengið verður alla laugardaga frá íþróttamiðstöðinni í bænum. Gangan hefst klukkan 10 og tekur um eina og hálfa klukkustund. Gangan hentar öllum og kostar einungis 300 krón- ur, en frítt er fyrir 13 ára og yngri. Óvissa í hverri gönguferð NORSKA HÚSIÐ, STYKKISHÓLMI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.