Fálkinn


Fálkinn - 14.11.1941, Blaðsíða 4

Fálkinn - 14.11.1941, Blaðsíða 4
4 F Á L K I N N RÚNIR GULLHORNANNA Gullhornin eru frægasti fornmenjafund- urinn í Danmörku. Þessum dýrgripum var stolið cg nú eru þeir ekki framar til. En hvert mannsbarn í Danmörku kannast við gullhornin, ekki síst af hinu fagra kvæði Adams öehlenschlágers. NÁ'LEGA eru 300 ár liðin síðaii eldra gullhornið fanst við þorpið Gallehus i Suður-Jótlandi og enn þekkir hvert danskt niannsharn söguna uni litlu prjónastúlkuna, sem á leið í kaupstaðinn datt um gullhornið, einn sumardag árið 1639, og um fátæka hjáleigubóndann, sem nær liundrað árum siðar, vorið 1734, var að grafa upp leir og sá þá lýsigullið hlika í jörðinni. Miklir fjársjóðir. Þetta eru dýrmætir fjársjóðir. Hornin vógu til samans um 7 kíló og voru úr mjög skæru gulli, 12—22 karata. Málmverð þeirra svaraði til 20.000 króna. En það var þó ekki málmverðið sem mestú skifti, þó mikið væri, heldur hinar merkilegu myndir og ristur, sem voru á hornunum. Bæði voru hornin tvöföld. Ulan á innra horninu, sem var heilt og sljett, voru hreiðir haugar sem smeygt var upp á í röð og á þessum baugum voru allskonar myndir og útflúr, bæði steypt og grafið. Alt úr hreinu gulli. Hornin voru samstæður. Þó að nærfelt hundrað ár liðu milli þess að hornin fundust er þó engin vafi á, að þau liafa verið sámstæður. Myndirnar segja skýrl frá þessu; því að þó að ekki sjeu sömu myndirnar á báðum hornunum, ])á svara þær þó hver til annarar og eru auðsjáanlega skyldar. Þannig koma fyrir á báðum horn- unura myndir af bogaskyttunni og mannin- um sem snýr tveimur spjótum niður (mynd A,2 og B,5) ennfremur hestmaður (kentaur) og samvaxnir menn (A,3 — B,3). Á háðum liornunum er einnig riddari (A,2 —. B,3) og höggonnar (A,l,3 B,2,3) og fleiri líkindi mætti nefna. Hinsvegar er líka margt ólíkt með liorn- unum. 1 grunninum á A eru mestmegnis nöðrur og ormar en á B stjörnur. Og aðeins á B eru rúnirnar efst. Gáta gullhornanna. Hvað tákna allar þessar myndir? Eru ]iær aðeins skraut, sem sett hefir verið á hornin af handahófi, eða eiga þær að tákna ein- liverja ákveðna hugsun? Um það hafa lærðir menn og ólærðir deilt lengi og deila enn. Túlkanir þeirra og þýð- ingar eru svo sundurleitar og flóknar, að ef leikmaður í þeim efnum fer að lesa það, sem vísindamenn hafa skrifað um gullhornin þá sundlar hann. Hjer skal aðeins sagt lauslega frá lielstu skýringunum. ímynd mannlífsins. Þegar fyrra gullhornið fanst var uppi hinn kunni vísindamaður Ole Vorm, sem kunnur er íslendingum fyrir áliuga sinn á íslenskum fræðum. Eiginlega var liann læknir — það voru fleslir náttúrufræðingar þeirra tima en hann ljet sjer engar vísindarannsóknir óviðkomandi. Vorm rannsakaði liornið og skrifaði síðan lærða ritgerð um það á latínu. Þar slær hann því föstu, að hornið sje herlúður frá tíð Fróða konungs friðgóða (á hans tímum var nóg til af gulli, segir sag- an). Myndirnar skýrir hanii sem táknmyndir úr mannlífinu. Höggormarnir sem vefjast um manninn (A,l) eru ímynd liins illa, sem maðurinn á jafnan að verjast. Dýrið með mannshausinn (A,l) sýnir manninn sem gerst liefir dýrslegur, en fugl sem kroppar fisk (A,l) nautnasýki og græðgi. Tveir menn sem lialda einskonar fjöl á milli sin tákna þá, sem skoða sig í spegli sannleikans (A,5) og loks sjesl liljugras dygðarinnar á A,(5 og lilið dauðans á A,7. ---- Fórnarhorn Svantevits. En þessi skýring fjekk ekki að standa lengi. Prófessorinn Hendrik Ernst í Sórey, dirfðist að bera fram þá tilgátú, að hornið væri ef til vill komið úr hofi Svantevits á Rúgen og að myndirnar stæðu í sambandi við dýrkun þessa lieiðna goðs. Taldi liann líklegt, að Valdimar konungur I. liefði liaft með sjer liornin er hann kom úr ránsferð sinni til Rúgen. — Ole Vorm varð afarreið- ur þessari skýringu og þótti það goðgá af dönskum manni, að láta þá skoðun í ljós, að liornin væri ekki dönsk að uppruna. Síðar fóru lderkar og kennimenn að leggja orð i belg og túlka áletranir hornsins frá kriststrúarsjónarmiði. E. N. Randulf prestur í Hróarskeldu og Winstrup biskup í Lundi telja það báðir guðlega forsjón, að liornin skvldu liggja svona lengi í jörð og finnast einmitt á þeim tíma sem þau gerðu. Win- strup biskup þykist geta lesið spádóm um skánska stríðið á öðru horninu. En Tragillur Arnkiel prófastur í Asbenraa reynir hins- vegar að skýra myndirnar á hornunum út frá norrænni goðafræði og kemst að þeirri niðurstöðu, að cembriskur prestur hafi not- að það til að kalla lýðinn til þinga. Heilagt almanak? Biskupinn Ðirkerod í Odense skrifaði stór „Hornarit", en mintist þar aðeins litillega á gullhornið frá Gallehus. En sira .1. .1. Sorte- rup í Lyderslev á Sjálandi, sem var stærð- fræðingur góður, ])óttist geta sannað, að Iiornið væri helgisiðaalmanak, sem sýndi á hvaða tima árs tigna hæri hina ýmsu guði. Þannig sýnir maðurinn með upprjettu hend-

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.