Veðrið - 01.09.1970, Blaðsíða 3

Veðrið - 01.09.1970, Blaðsíða 3
VEÐRIÐ TÍMARIT HANDA ALÞYÐU UM VEÐURFRÆÐI KEMUR ÚT TVISVAR Á ÁRI - VERÐ ÁRG. KR. 125,00 2. HEFTI 1970 15. ÁRGANGUR RITNEFND: JÓNAS JAKOBSSON FLOSI H. SIGURÐSSON PÁLL BERGÞÓRSSON HLYNUR SIGTRYGGSSON AFGREIÐSLUSTJÓRI: GEIR ÓLAFSSON DRÁPUHLÍÐ 27 . SÍMI 15131 Ur ýmsum áttum Kápumyndin. Kápumyndin er aí Snæfellsjökli og tekin a£ liinum kunna Ijósmyndara Páli Jónssyni bókaverði. Fremst á myndinni er sæluhús Ferðafélags íslands, sem stendur á Jökulhálsi skammt frá jökuljaðrinum í 825 metra hæð yfir sjó. Það var einmitt á þessum stað, sem dansk-svissneskur rannsóknaleiðangur gerði merkar veðuratliuganir um nær eins árs skeið, frá því i september 1932 til loka ágústmánaðar 1933. Var hús leiðangursmanna að lokinni dvöl þeirra gefið Ferðafélagi íslands. Mjög vindasamt og veðurhart reyndist í hlíðum Snæfellsjökuls, og við lá, að allt fyki um koll á veðurstöðinni í fárviðri þ. 12. nóvember 1932. Húsið stóðst þó raunina, en stagaðir loftnetsstaurar kubbuðust sundur, og margt fleira varð vindinunt að bráð. Nokkrum árum síðar fauk húsið þó í ofsaveðri, en sæluhúsið, sem sést á myndinni, var reist á sama stað. Tveir leiðangursmenn, Svisslendingurinn dr. T. Zingg og Daninn P. J. Jen- sen, höfðu vetursetu í veðurstöðinni og gerðu þar margháttaðar athuganir, þótt ísing, stormar og skafrenningur torvelduðu ýmsar mælingar og hindruðu jafnvel notkun sumra mælitækja vetrarlangt. Hefur dr. Zingg, en á lionum mæddu veður- athuganirnar mest, gert grein fyrir starfseminni og niðurstöðum mælinga í ritinu Année Polaire Inlernationale 1932—1933, Participation Suisse, Ziirich 1941 Sem sýnishorn af athugunum leiðangursmanna skal hér aðeins drepið lítið eitt á úrkomumælingar þeirra, en hvergi á íslandi hefur úrkoma verið mæld í meiri hæð yfir sjó, nema þá með óbeinum aðferðum sem ákoma á jöklum. Úrkomumjælingarnar voru gerðar í 11 mánuði, en allmarga daga voru þær þó með öllu óframkvæmanlegar vegna veðurs, og marga aðra daga var talið víst, að of lítið hefði mælzt, en einkum var það, þegar snjóaði í hvassviðri. Engu að síður var úrkomumagnið, sem mældist þessa ellefu mánuði hvorki meira né minna en 3118 mm, en á sama tímabili mældust 1339 mm á Arnarstapa, næstu veður- stöð á láglendi. Má af þessu og öðrum úrkomumælingum á Arnarstapa draga þá ályktun, að meðalúrkoma á Jökulhálsi sé að minnsta kosti 3300 mm á ári, VEÐRIÐ --- 39

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.