Vikan - 24.07.1941, Blaðsíða 1
Æfintýri
Eftir
D&smond ■tfjoílcbiLdbj.e.
Desmond Holdridge landkönnuður
og rithöfundur hefir nýlega ferð-
azt um meginland Suður-Ameríku
og eru ferðalýsingar hans sendar
ýmsum skólum. Á fyrri ferðum sín-
um hefir hann lifað með Indíána-
flokkum, gert uppdrætti af lítið
þekktum landsvæðum og ferðazt
um afskekkta hluta Brasilíu og
Venezuelu fyrir Brooklyn-safnið.
Árið 1939 var hann meðlimur
brezk-amerísku nefndarinnar, sem
rannsakaði möguleika á að senda
landflóttamenn til brezku Guiana.
Holdridge hefir skrifað f jórar bæk-
ur, sem byggðar eru á rannsóknum
hans í Suður-Ameríku, þar á meðal
skáldsöguna ,,End of the River“,
sem út kom á síðast liðnu ári.
Fyrir tólf ánim tilkynnti Henry Ford,
að hann hefði í hyggju að rækta
gúmmí handa fyrirtæki sínu á ekrum
í Brasilíu. Öllum nema Ford fannst þetta
ómerkilegt — mjög einkennandi fyrir
Ford, sem var gramur yfir brezk-hollenzku
einokuninni og verðlaginu. Þegar mesta
nýjabrumið var af fregninni, gleymdi al-
menningur henni. En nú snertir fram-
leiðslugeta þessi alla Ameríku.
Hvað hefir Ford gert í Brasilíu öll þessi
ár? Það hefir ríkt dauðaþögn um málið.
Átti þögnin að hylja, að allt hefði mis-
heppnast? Það virtist mikilsvarðandi að
vita það, svo að ég fór til að sjá þetta með
mínum eigin augum.
Ég kom aftirr fullur aðdáunar á geysi-
legum framkvæmdum. Inni í miðjum frum-
skóginum, 700 mílur inni í landinu, vaxa
3 milljónir ungra gúmmitrjáa. Þau munu
byrja að gefa af sér gúmmi 1 stórum stíl
árið 1943. Árið 1948 ættu þau að minnsta
Framhald á bls. 3.
Fords í Brasilíu.
í grein þessari er sagt frá gúmmíframleiðsl-
unni í heiminum og hinum geysi þýðingar-
miklu tilraunum með rœktun gúmmítrjáa í
héruðunum kringum Amazon-fljótið.