Bjarmi - 01.04.1995, Blaðsíða 26
AF VETTVANGI
liilly Graham átakið
Um 800 manns sóttu samkomuna í Framheimilinu laugardagskvöldið 18. mars sl.
Mikill árangur víba um heim
A Indlandi
nam talan um
sjötíu púsund
manns.
Stundin var komin. 16. mars var genginn í
garð, upphafsdagur alþjóðlegs kristniboðs-
átaks Billy Graham samtakanna. Fjölmenni
var saman komið á íþróttaleikvanginum í
San Juan á Púertó Ríkó þar sem samkom-
urnar með Billy Graham fóru fram.
En fjölmennið var ekki aðeins á leikvanginum í
San Juan. Yfir 150 lönd tengdust Púertó Ríkó með
hjálp breiðtjalda, gervihnatta og þaulreyndra tækni-
manna. Á Madagaskar biðu 4000 manns í röð í
þrjá og hálfan tíma fyrir utan samkomustaðinn áður
en hægt var að hleypa þeim inn. Tuttugu þúsund
voru saman komnir á samkomunni í Dar es Salaam í
Tansaníu. í Addis Abeba í Eþíópíu komu um fjöru-
tíu þúsund manns á leikvanginn þar sem samkoman
fór fram. Á Indlandi nam talan um sjötíu þúsund
manns.
Þann 16. mars sl. var heitt í veðri á Púertó Ríkó.
Kórfélagar á íþróttaleikvanginum notuðu söngblöð
sín sem blævængi þrátt fyrir að komið væri kvöld.
Á Islandi var annað uppi á teningnum. Fjölmiðlar
hvöttu fólk á höfðuborgarsvæðinu til að halda sig
innandyra vegna óveðurs. Á Akureyri var fannfergið
þvílíkt að fresta þurfti samkomunni, enda ófært
innanbæjar. Eins og oft áður stóð landið undir nafni
og eitt var víst, að þörfin fyrir blævængi var tak-
mörkuð.
I Reykjavík voru samkomurnar haldnar í íþrótta-
húsi Fram við Safamýri. Um 400 manns sóttu sam-
komuna fyrsta kvöldið. Annað kvöldið jókst sá
fjöldi upp í u.þ.b. 600 og talið er að 800 manns hafi
verið þriðja og síðasta kvöldið. 36 manns tóku við
Jesú Kristi á samkomunum í Framheimilinu, auk
þess sem ráðgjafar báðu með fjölmörgum öðrum,
sem til þeirra leituðu.
Utan úr heimi berast einnig góðar fréttir af sam-
komunum. T.d. svöruðu nálægt eitt þúsund manns
kalli Krists á Madagaskar og í Bangladesh. Á Ind-
landi nutu 3500 manns ráðgjafar og um 500 manns
á Haiti.
Átakið Stundin er komin! náði ekki aðeins yfir
samkomurnar. Yfir daginn var haldin ráðstefna ætluð
leiðtogum og starfsmönnum í kristilegu starfi. Yfir
100 manns sóttu ráðstefnuna sem fór fram í aðal-
stöðvum KFUM og KFUK við Holtaveg og um 30
manns tóku þátt í henni á Akureyri (þó svo að hún
gæti ekki verið samdægurs vegna veðurs).
Mjög vel var látið af ráðstefnunni og var það mál
manna að hún hefði verið gagnleg, uppbyggileg og
komið skemmtilega á óvart.
26