Sumarblaðið - 17.06.1917, Blaðsíða 13
SUMARBLAÐIÐ
drifnir. En allir voru þeir lirifnir yfir
ferðinni, þótt eríið væri.
Af fjöllunum í grend við Reykjavík
er Hengillinn einna bezt fallinn, ef
menn ætla að skemta sér um helgar.
Má hæglega komast fram og aftur frá
laugardagskvöldi til sunnudagskvölds.
Það borgast hverjum ómakið, sem legg-
ur það á sig, því að auk þess sem út-
sýnið er ljómandi fagurt, er sjálfur
Hengillinn svo margbreytilegur og fall-
egur, að það eitt er nóg til þess að
borga fyrirhöfnina. — — —
Myndir frá Hengilförinni verða til
sýnis í glugga Isafoldar í dag, 17. júni.*
X.
„Sportsfélag Reykjavikur11.
k-
Ekki verður oss Islendingum brugðið
um það, að vér séum eigi félagslyndir
menn og félagsfúsir. Ekki heyrum vér
fyr nefndan nýjan félagsskap, en vér
þjótum upp til handa og fóta til að taka
þátt í honum, ef það að eins er nefnt
við oss með einu orði. Afleiðingin af
þessu hefir eðlilega orðið sú, að hér á
landi hefir að undanförnu verið og cr enn
stofnaður mesti aragrúi af félögum í
öllum mögulegum og stundum jafnvel
ómögulegum tilgangi, og margir eru þeir,
ininsta kosti hér í höfuðstaðnum, sem
litla hugmynd hafa um það, i hve mörg-
um félögum þeir eru meðlimir. Þeir
telja á fingrum sér, en ein umferð á
fingrunum nægir hvergi nærri. Er því
sízt að furða, þó að slíkir menn vinni
ekki af kappi fyrir öll þau félög, sem
þeim ber skylda til að sinna samkvæmt
félagslögum, verða þá sum þeirra eðii-
lega út undan, enda cr það kunnugra
►— en frá þurfi að segja, að félög eru liér
oft engu síður íijót að lognast út af en
7
að fæðast, þó að fá hafi að likindúrfi
orðið skammlífari en félag það, sem liér
er gert að umtalsefni, sumpart til þess
að sýna og sanna, hve snögglega fé-
lagsskapur getur hér myndast og horfið,
sumpart mönnum til viðvörunar, að flana
ekki út í að stofnsetja nýjan félagsskap
án þess að nokkur trygging sé fyrir
hendi um þroskunannöguleika.
»Sportsfélag Rvíkur* var stofnað
þriðjudaginn 17. marz 1896 kl. 8*/2 öíð*
degis í Good-Templarahúsinu, samkvæmt
fundarboði útgefnu sama dag, er
getur þess, að hið væntanlega félag eigi
að »stunda meðal annars knattleiki,
þreyta róðra og hraðgöngur m. fl.«. Á
fundinum mættu 17 bæjarbúar, »er allir
tjáðu sig fúsa til að taka þátt í slíkri
félagsstofnun«. Ekki stóð á því fremur
en vant er. Stjórn var kosin á fund-
inum og lög félagsins samþykt. Undir-
búningur hafði verið góður. Samkvæmt
1. gr. laganna var fyrirætlun félagsins:
»að glæða áhuga á líkamlegum íþróttum
og aflraunum, fyrst og fremst með þvi,
að láta menn temja sér reglubundna
íþróttaleiki undir berum himni, veita
tilsögn í þeim og stjórna þeim«. Á
þessum stofnfundi voru ennfremur
kosnir endurskoðendur og lcsið upp bréf
til bæjarstjórnar um að mega nota
norðurreiti Austurvallur ti'l íþróttalegra
leikja félagsins. Það loyfi var vcitt með
bréfi bæjarfógeta, dags. 20. s. mán. 18.
marz, daginn eftir stofnfundinn, kom
nýkosin stjórn hins nýstofnaða félags
saman og skifti mcð sér verkum. Þvi
næst var tekið fyrir að safna mönnum
í félagið til þess að efla það og styrkja.
Gekk sú söfnun svo grciðlega, að á 1—2
dögum voru félagsmenn orðnir 90 og af
þeim 13 æfimeðlimir, er guldu 10 kr.
hver í félagssjóð. Tillag annara var
2 kr.
Það kom nú fijótt í ljós, að þessir 2
fcngnu reitir Austurvallar voru alls-
endis ónógur leikvöllur fyrir félagið og