Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1997, Blaðsíða 32

Ægir - 01.03.1997, Blaðsíða 32
TÆKNI OG ÞJÓIMUSTA „Skemmtilegir og spennandi tím- ar framundan í landvinnslunni segir Björn Jóhannsson, tæknilegur framkvæmdastjóri Landssmiðjunnar hf. í Garðabæ „Frá árinu 1992 höfum vib veriö að sérhæfa okkur í þjónustu við sjávarútveg- inn og ab undanförnu höfum við í vaxandi mæli fært okkur inn á þá braut aö bjóba heildarlausnir fyrir skip og fiskvinnslur," segir Björn Jóhannsson, tækni- legur framkvæmdastjóri Landssmibjunnar hf. í Garbabæ. Fyrirtækið kom sér í byrjun árs fyrir í nýju húsnæði ab Lyngási 1 í Garbabæ og er starfsemin nú öll á einni hæb og abstaban gjörbreytt. Markmið fyrirtækisins er ab sækja enn frekar inn á sjávarútvegssvibib, ekki síst erlendis. Björn segir að síðustu verkefni hafi t.d. snúist um lobnuvinnslu og má þar nefna sjálfvirka pökkunarlínu fyrir ísfé- lag Vestmannaeyja hf. Þá var á dögun- um lokið smíði vinnslulínu fyrir smokkfisk en hún fer til fyrirtækis í Mexíkó sem er í eigu Granda- og Þor- móbs ramma hf. Þetta var um 10 millj- óna króna verkefni en Landssmiöjan hefur í vaxandi mæli verið að sækja sér verkefni út fyrir landssteinana og má t.d. nefna smíbi vinnslukerfa í fisk- vinnslu í Noregi, smíði gámafrystihúss og vinnslubúnabar í togara fyrir UTRF á Kamtsjatkaskaga, vinnslulínu í hús SWC í Namibíu, íran og víðar. „Framleibsla búnaðar fyrir sjávarút- veginn er meira en helmingur af heild- arframleiðslu Landssmiðjunnar og við vonum ab vöxtur verði áfram í útflutn- ingnum. Vib horfum til þess að sókn- arfærin eru erlendis og því kynnum við okkur meira og meira þar. í þessu skyni höfum við nýverið ráðið Þorstein Óla Sigurðsson sem sölu-og markaðsstjóra og mebal hans verkefna er sölustarf er- Iendis og það starf er þegar að byrja að skila sér inn. Við ætlum okkur ab vera með í sókninni erlendis og þar eru nægir möguleikar, svo fremi að staðið sé rétt að málum," segir Björn. Byggjum á þekkingargrunni Aukning í verkefnum tengdum sjávar- útvegi varð hjá Landssmiðjunni þegar hún yfirtók fyrirtækið Eðalstál árið 1992 en þab framleiddi ýmis konar búnab fyrir fiskvinnsluna úr rybfríu stáli. Björn segir að Landssmiðjan vinni gjarnan verkefni með öbrum fyrirtækj- um á þessu sviði, til að mynda Samey hf, Marel hf. og þetta samstarf fer vax- andi samhliba því að farið er meira inn á brautir heildarlausna. Flestar af þeim vinnslulínum, t.d. pökkunarlínum og flæðilínum, sem Landssmiðjan hefur unnið eru byggðar á stablaðri framleibslu frá fyrirtækinu en Björn segir ab alltaf þurfi þó ab gera breytingar til að aðlaga búnaöinn þörf- um hverrar vinnslustöðvar. „Við höfum ákveðinn þekkingar- grunn hjá okkur sem vib erum ab ganga í og byggjum ofan á hann sér- óskir viðskiptavinanna á hverjum stað. Vib teljum okkur hafa safnað mikilli reynslu í gegnum árin og hún er okkar grunnsöluvara," segir Björn. Áhuginn að vaxa innanlands „Mér finnst að áhuginn í fiskvinnsl- unni sé ab vaxa á nýjan leik hér innan- lands. Það hefur litið verið ab gerast ef frá er talin loðnuvinnslan og raunar öll vinnsla á uppsjávarfiski. Núna er að byrja ný þróun í landvinnslunni enda Björn fóhannsson við fœriband í húsakynnum Landssmiðjunnar í Garðabœ. Hann segir nú að byrja ný þróun í landvinnslunni á íslandi, nýtt breytingatímabil sem fyrirtœkin muni taka sér til að rífa vinnsluna upp úr þeim öldudal sem hún hefur verið í. 32 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.