Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 22
Sæunn Axelsdóttú; fiskverkandi í Ólafsfirði,
segir úthlutun byggðakvótans hafa verið kornið
sem fyllti mælinn:
„Nú er nóg komið
af óréttlætinu“
Strax og Ijóst var hvernig byggða-
kvótanum svokallaða yrði úthlut-
að dundu yfir uppsagnir starfsfólks í
fiskvinnslu Sæunnar Axels ehf. í
Ólafsfirði, burðarfyrirtœkis fiskiðn-
aðar á staðnum. Forsvarsmenn fyrir-
tœkisins hafa gagnrýnt harðlega að
Ólafsfjörður skuli ekki hafa verið
inni í myndinni við úthlutunina og
boðar Sœunn Axelsdóttir, eigandi fyr-
irtcekisins, að látið verði á það reyna
fyrir dómstólum livort úthlutunin
standist samkeppnisreglur. fía'ði út-
hlutun byggðakvótans og í raun alla
þróun kvótakerfisins segir hún vera
dœmi um hrópandi óréttlœti sem
fyrst og fremstgeri þá stóru stœrri og
ríkari en hina minni veikari og van-
máttugri.
„Ég er rétt að byrja í baráttunni
enda hef ég engu að tapa úr því sem
komið er. Ég vil láta reyna á það fyrir
dómstólum hvort úthlutunin á
byggðakvótanum geti staðist allar
samkeppnisreglur og sömuleiðis verð-
ur að taka kvótalögin öll til vandlegrar
skoðunar. Okkar aðgerðir eru mótmæli
vegna hróplegs óréttlætis sem kvóta-
kerfið hefur fest í sessi í þjóðfélaginu
og einhver verður að vera í því hlut-
verki að stöðva þessa vitleysu. Nú er
nóg komið af óréttlætinu," segir Sæ-
unn Axelsdóttir.
Engin rök
til að sniðganga Ólafsfjörð
Sæunn segist ekki sjá nokkur rök fyrir
því í úthlutun Byggðastofnunar að
Er
byggðakvótinn
framfór eða
afturhvarf?
Fiskur unnin hjá Sasunni Axels ehf. í
Ólafsirði.
22 MAU
ganga framhjá Ólafsfirði. Bæjarfélagið
hafi tapað kvóta til vinnslu úti á sjó og
á sama tíma hafi verið barist í bökkum
í vinnslunni í landi á meðan niður-
sveiflan hafi varað í þorskveiðunum.
Full ástæða hafi því verið til að fá
hlutdeild til baka þegar kvóti var auk-
inn á nýjan leik.
„Við búum við þau lög að fiskimið-
in eru sameign þjóðarinnar en þrátt
fyrir það er kvótinn aðeins í höndum
fárra aðila. Baráttan um kvótann er
barátta um völd og við getum t.d. séð
þetta kristallast í því sem gerst hefur á
Skagaströnd undanfarnar vikur. Þar
eru tveir risar í sjávarútveginum að
berjast um völd í Skagstrendingi hf. og
milli þeirra er algert viðskiptastríð þar
sem menn hika ekki við að rífa hvern
annan á hol. Og svo horfum við upp á
að þeir stóru í sjávarútveginum kaupa
nú orðið fyrir hundruðir milljóna nær
daglega. Þetta getur ekki talist eðlilegt
og engin furða þó fólki ofbjóði," segir
Sæunn.
Peningavaldið hefur öll tök
„Ég hef fengið mikil viðbrögð við um-
ræðunni um byggðakvótann og sjáv-
arútvegsmálin að undanförnu en mér
finnst eftirtektarvert að margir eru
hræddir við að láta til sín taka og
koma fram með gagnrýni af ótta við
að það komi niður á þeim í atvinnu-
legu eða viðskiptalegu tilliti. Sé þetta
raunin þá er illa fyrir þjóðfélaginu
komið og peningavaldið ógnvænlegt."
- Telurðu vandann fólginn í því að
sjófrysting sé orðin óeðlilega stór þátt-
ur í vinnslu sjávarfangsins?
„Auðvitað hefði átt að setja einhver
mörk og hugsa um að fólkið sem býr í
sjávarplássunum verður að lifa eins og
hinir. Vandinn er líka sá að stjórnvöld
_ eru búin að missa þræðina úr höndum
| sér og ráða ekki lengur við gerðir
s þeirra stærstu í sjávarútveginum í dag.
í Frelsið í sjávarútveginum kemur
| þannig út að það er engu hlíft og að
auki hafa nýverið komið fram þau
sjónarmið frá þeim stóru að nú beri að