Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 105
BÚNAÐARRIT.
101
fæi l þyki að halda þeim öllum undic hann, þá hafa þær
hryssur forgangsrétt, sem hafa folaseðil. Allar hryssur,
sem leiddar eru undir graðhestinn, á eigandi hans að
færa á skrá, er hann fær jafnframt verðlaununum, og er
hver hryssa þar tilgreind með nafni, lit og hæð, svo og
nafn og heimili eiganda hennar. Afrit af þessari skrá
er skylt að senda til Búnaðarfólags íslands, í síðasta
lagi fyrir lok septembermánaðar sama sumar.
Ef folaeigandi fuiinægir ekki þessum skilyrðum, og
ekki verða færðar gildar ástæður fyrir misfellunum, þá
verða folaverðlaunin að endurborgast aftur í sýningar-
sjóð héraðsins.
Að sjálfsögðu má selja verðlaunaðan graðhest, en þó
að eins með því skilyrði, að kaupandinn uppfylli fram-
angreindar skuldbindingar, og verði misfellur á því, þá
verður sá eigandi graðhestsins, sem tók á móti verð-
laununum, að borga þau aftur.
Hryssur eru sýndar í einum flokki á aldrinum 4—15
vetra, eldri en 10 vetra þó því að eins, að þær só með
folaldi eða veturgömlu tryppí, eða fullgilt vottorð fáist
um, að þær hafi verið með folaldi á síðastliðnu vori.
Þessi varnagli er sleginn sökum þess, að eidri hryssur
eru mjög vandgæfar með að fyljast, þegar langt er liðið
frá því að þær hafa verið fylfullar.
Verðlaun á hryssum gætu verið t. d.: I. 9,00 kr.,
II. 6,00 kr. og III. 3,00 kr. Þrjár krónur af hryssu-
verðlaununum útborgast þó ekki á sýningarstaðnum,
heldur fá eigendur hryssanna í þess stað seði), undir-
skrifaðan af sýningarstjóra, sem þeir geta borgað með
folatoll, ef þeir halda hryssunni á næsta vori undir verð-
launaðan eða viðurkendan graðhest. Þessir seðlar eru
því nokkurskonar aðgöngumiðar að graðhesti og mætti
nefna þá „folaseðla". Sá hluti sýningarfjárins, sem svar-
ar til þessara folaseðla, er geymdur hjá einhverjum til-
teknum manni í sýningarhéraðinu, t. d. oddvita sýslu-
nefndar, formanni búnaðarsambands eða einhverjum úr