Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 267
BÚNAÐARRIT
263
gróðurlaust, og ánum varð Jón að gefa í inni-
stöðu í hálfan mánuð um sauðburðinn og talsvert
þar að auki. Og af því að lambær þurfa tvöfalt fóður
við það, sem ær þurfa að vetrinum, þá ’telst svo til, að
gjafatími sauðfjár samsvarar 34 vikum. Fyrningarnar
vinnast nú allar upp, og þar að auki sem svarar 2/s pört-
um af nýju heyjunum. Fyrnir Jón þá s/s parta af nýju
heyjunum. Um sumarið verður grasbrestur og ill nýting,
og telur Jón nýju heyin um haustið ekki meiri en 3/s
parta af vanalegum heyfeng. Um haustið á hann þá
alls hey, sem svarar vanalegum heyskap, og x/5 Part af
vanalegum heyskap að auki.
Nú fækkar Jón fénaði til muna, en setur þó á nokk-
uð fleira en á nýju heyin. Harðindin haldast, og vetur-
inn verður nærfelt jafn-langur og grimmur sem hinn
fyrri. En hafísinn fer burt í maí, svo að vorið verður
betra en næst á undan. Samt þarf að gefa lambfé all-
mikið um sauðburðinn, og innistöðutími verður alls sem
svarar 29 vikum. Þennan vetur eyðir Jón fyrst nýju
heyjunum, því þau voru hrakin, en geymir lengst fornu
heyin, sem voru góð. A hann nú eftir um vorið hey,
sem svarar fóðri þess fénaðar, sem hann fækkaði um
haustið.
Jón heflr nú staðið af sér 2 harðindaár, og stendur
jafnréttur eftir, því það tel eg honum ekki tilfinnan-
legan baga, þó að hann fækkaði nokkuð meira síðasta haust
en hann var vanur. Hann fékk fult verð fyrir það. Það
er ekkert sérlega sjaldgæft, að 2 harðir vetrar fylgist að,
og slæmt sumar á milli. Og stundum hafa þeir komið
margir í röð. Hitt er líka alltítt, að fleiri en 4 góð ár
fylgist að, og þegar það kemur fyrir, gætu fyrningarnar
orðið meiri, ef ávalt væri sett gætilega á. Og þá væru
líkur til, að geta staðið af sér fleiri en 2 harðindaár í
einu.
En þó að í hverri sveit væru mjög margir bændur,
jafnvel meiri hluti bænda, sem höguðu sér eins og Jón,