Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 295
BÚNAÐARRIT 291
margar ær, að hafa íleiri en eitt, að minsta kosti í
fyrsta skifti.
Þetta merki er og gott fyrir þá, sem eiga kollótt
íé og vilja merkja það á málmplötu festa í eyrað, því
að ekki er meira en mínútu verk að höggva svona stafi
á plötuna með fínum meitli; en þá verður að gæta þess,
að merkja það á einhvern hátt, sem niður á að snúa,
þegar númerið er lesið.
Eg vil sterklega hvetja fjáreigendur, sem hafa ekki
enn auðkent ær sínar með tryggu merki, að gera til-
raun til að merkja þær með þessari aðferð. Það kost-
ar að eins nokkra aura og lítinn tíma, og mun flestum
brátt lærast, að hafa ýms not af því við fjárgeymsluna.
Enda ættu sem flestir að hefjast handa og gera tilraun
með að bæta fjárkynið hjá sór. Það margborgar sig.
Aldrei verður ofmikill arðurinn.
Þá vil eg og gefa bendingu um tilhögun á notkun
númeranna, þá sem eg tel haganlegasta.
Gimbrar skulu ávalt merktar það sumar, sem þær
verða ársgamlar, annaðhvort að vorinu eða haustinu.
Númerunum er bezt að skifta niður á árin þannig,
að á hverju ári sé notuð eingöngu þau númer, sem enda
á sarna tölustaf og ártalið. Endi ártalið á 0, eru not,-
aðar tölurnar: 0, 10, 20, 30, 40, 50, 60, 70, 80, 90,
100, 110 o. s. frv., og er þannig jafnan bætt við næstu
tölu, sem endar á sama staf, eftir því sem hver þarf.
Aftur á móti endi ártalið á 1 eru notaðar tölurnar: 1,
11, 21, 31, 41, 51, 61, 71, 81, 91, 101, 111, 121 o.
s. frv. Endi ártalið á 2, eru hafðar tölurnar: 2, 12, 22,
32, 42, 52, 62, 72, 82, 92, 102, 112, 122 o. s. frv.
Þannig skiftir árlega um síðasta staf númersins eftir
síðasta staf ártalsins, og stendur sú umferð yfir í 10 ár.
Eru því þær ær dauðar, sem fyrst voru merktar, áður
en ný umferð byrjar, því ær ætti aldrei að lála verða
yfir 10 vetra gamlar. Er því engin hætta á, að 2 ær
19*
L