Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 30

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 30
STJÖRNUMFTSTAR AR ÍSLANDS OG GULLGERÐARMENN Sögukennsla hins almenna ágceta menntakerfis skildi á sínum tíma við migmeð þœr hugmyndirað hér hafi fyrr á öldum einungis búið bcendur, sjómenn og embcettismenn. Það er að segja þar til ég rakst fyrir skömmu á lítinn bunka afgreinum um skrítna karla sem skrifuðu um halastjörnur og höfðu áhyggjur af sólmiðjukenningu Kópernikusar. Þar staðfestist reyndar lúmskur grunur menntaskólaáranna um að margt skemmtilegt ratar aldrei í íslenskar skólasögubcekur. Mikið hefðí það nú getað létt á þilskipaútgerðinni effengið hefðu að fljóta með kafli og kaflí um minni menníngarkíma og hugmyndír Islendinga um annað en fisk ogstjórnmál. Menningarkimar eru nefnilega skemmtilegir og gæða söguna ríkara lífi. Og þó að varla sé um stórfelldar heimsmyndaruppgötvanir eða fjölda fólks að ræða sem horfði spennt upp og beið eftir að rofaði til þá virðast hér nú samt hafa verið gerðar ýmsar tilraunir og verið hér menn sem þráuðust við að afhjúpa lögmál alheimsins - hver á sinn hátt. Ég ætla að deila með ykkur nokkrum brotum og frásögnum úr persónugalleríi íslensku raunvísindasögunnar. STJÖRNUTURNAR ÍSLANDS OG STJÖRNUMEISTARAR. Á seinni hluta átjándu aldar ákvað danska stjórnin að reisa á íslandi stjörnuturn og að hér skyldi starfa konunglegur stjörnumeistari. Stjörnumeistarar þessir stunduðu aðallega hnattmælingar sem voru mikilvægar við kortagerð og nýlenduherrar í útrás lögðu að sjálfsögðu mikið púður í. Fyrsti konunglegi stjörnumeistarinn var Eyjólfur nokkur Jónsson sem kallaðisigjónsoníusaðtískumenntamannaþesstíma. Eyjólfur hafði gegnt stöðu aðstoðarstjörnumeistara í Sívalaturninum og átti að reisa turn á Staðastað á Snæfellsnesi honum til hagræðis. Aldrei reis þó turninn og því framkvæmdi Jónsoníus mælingar sínar úr tugthúsinu á Arnarhóli en auk þess átti hann að gera veðurathuganir, athuga norðurljós, mæla hæð fjalla og fylgjast með sjávarföllum. Litlum sögum fer hinsvegar af störfum Eyjólfs enda dó hann fertugur úr myrkri og vosbúð áður en nokkur turnbygging hófst. Líklega hefur aðstaðan á Arnarhóli verið nokkur viðbrigði frá Sívalaturni. Danir hvikuðu þó hvergi frá áformum sínum og sendu nokkrum árum síðar Norðmanninn Lievog til að taka við kyndlinum og eftir nokkurt bras var reist lítil stjörnuathugunarstöð á Lambhúsum nálægt Bessastöðum. Þar harkaði Lievog í meira en tuttugu ár og framkvæmdi mælingar sínar af alúð, nótt sem dag, þegar veður leyfði. Eftir hann liggja nákvæmar dagbækur bæði um veðurfar og stjörnumælingar og hluti þeirra hefur komið út á prenti. Einnig gerði Lievog uppdrætti af Reykjavík og umhverfi sínu og þótti klár og vandvirkur. Eitthvað virðist fjárstreymi þó hafa háð Lievog og skrifar Sveinn Pálsson í ferðabók sína: „En til allrar ógæfu gátum við hvorki séð upphaf né endi myrkvans fyrir skýjaþykkni, er dró upp á himinn. Stjörnuskoðarinn skýrði mér frá því, að sólmyrkvinn 3. apríl hefði verið fullkominn hringmyrkvi (central) og veður hefði þá verið hið besta til athugunar á honum. Annars kvartaði hann mjög yfir því, að hann fengi engin nothæf rannsóknartæki, enda þótt hann beri sig árlega upp undan því.“ Launin virðast að mestu hafa falist í heiðrinum, áhugi Dana var farinn að beinast annað og höfðingjunum á Bessastöðum mun hafa fundist stjörnumeistarinn fátæki helst til druslulegur til fara og að honum lítil prýði. Staða stjörnumeistara á Lambhúsum lagðist því af um það bil er strandmælingar hófust um aldamótin 1800 og hinn hlédrægi Lievog flýtti sér burt á slitnum skóm eftir 26 ára fórnfúst starf. STEFÁN BJÖRNSSON STÆRÐFRÆÐIHEILI OG SKAPOFSAMAÐUR. Annar átjándu aldar maður var nokkru litskrúðugri karakter en Lievog og hét sá Stefán Björnsson. Hann var einn sá mesti stærðfræðingur sem um getur á þessum slóðum og eftir hann liggja fjölmörg vísindarit um halastjörnur, aflfræði og ýmislegt annað. Hann var um hríð skólameistari á Hólum og þótti mjög erfiður i skapi auk þess sem hann hagaði víst skólastarfi eftir dyntum sinum hverju sinni, dimmiteraði nemendur án prófa og gerði flest allt sem hann átti ekki að gera. Hann eldaði grátt silfur við flesta embættismenn og að lokum var honum vikið úr starfi vegna gruns um að hann hefði látið nemendur sína ráðast á stiftprófastinn í skjóli myrkurs. Stefán sigldi þá til meginlandsins vegabréfslaus og eyddi því sem eftir lifði starfsævi sinnar í Kaupmannahöfn við ágætan fræðilegan orðstír en sneri aldrei aftur til íslands. Á áttræðisaldri gerði hann sér lítið fyrir og vann tvívegis til verðlauna í stærðfræðikeppni Hafnarháskóla, bæði gull og silfur, en keppnin var hugsuð fyrir unga spræka raunvisindaheila. Bók hans um ferhyrningafræði er talin sérstaklega merkileg og fyrsta bók Islendings um æðri stærðfræði. BJÖRN GUNNLAUGSSON OG NJÓLA. Öllu fallegri sögur fara af kennslu Bjarnar Gunnlaugssonar annálaðs stærð- og stjörnufræðings sem var vinsæll kennari á Bessastöðum þótt kennsla í öðrum greinum en náttúru- og stærðfræði hafi stundumvikiðfyrirþvísemhonumþóttiáhugaverðara. Stærðfræðikennsla á íslandi hafði ekki verið upp á marga fiska áður en Björn kom frá námi og hélt innblásnar hvatningarræður um hagnýtingu hennar. Reyndar virðist hann hafa verið svo sérkennilegur og utan við sig að það truflaði skilning nemenda en viljann vantaði ekki og brá hann m.a. á það ráð að semja og gefa út trúar- og fræðiljóðið „Njólu" (1842) til að skýra lögmál alheimsins fyrir íslendingum sem virtust þá sem nú gefnari fyrir ljóðmæli en stærðf ræði. Þar birtist útgáfa Björns á heimsmyndinni byggð á helstu kenningum náttúrufræðinga þess tíma. Ekki voru allir þó sammála Birni sem blandar glaður inn guðfræði, heimspeki og lífi á öðrum hnöttum en ljóst er að um afar athyglisvert verk er að ræða og var Njóla mjög vinsæl meðal almennings. Áfram túnglin öll í hring um plánetur gánga, svo þær aptur sól í kríng sendast vegi langa. Sem þá mest er síldum af í söltum þorska lautum, alt eins morar uppheims haf ótal vetrarbrautum. Myndar agnir mótspyrna af mætti þínum snjalla; þú svo lætur þýngdina þessar saman kalla. Stjörnubúar þessir þar þannig sig til reiði undir kjörin eilífðar, á lífs tíma skeiði. Björn er kannski kunnastur í dag fyrir kortagerð sína en „spekingurinn með barnshjartað” var fyrsti alvöru kennari Islendinga í nútímalegum raunvísindum og kenndi m.a. Jónasi Hallgrímssyni að reikna. Hugur hans stóð jafnframt til þess að taka upp þráðinn þar sem Lievog sleppti mörgum árum fyrr en gömlu græjurnar frá Lambhúsum fundust ekki s vo Björn varð að láta sér nægja að fylgjast með ferðum halastjarna sem hér áttu leið um. Ymislegt hefur reyndar verið skrifað um sögu náttúruvísinda á íslandi og til dæmis hafa jarðfræðingar og læknar sinnt sínum greinum ágætlega. Mestmegnis eru slik skrif og samantektir þó stunduð af sérfræðingum hverrar greinar fyrir sig sem hafa vísindasögu að sérstöku áhugamáli og fást við það sér til heilsubótar að stoppa í eyðurnar. Þannig bæta grúskarar hinna ýmsu stétta smátt og smátt við víddir menningarsögu okkar og sjálfsmynd þar sem vísindasaga er af skornum skammti við háskóla landsins og engin sérstök staða henni til halds og trausts. Sá eini við Háskóla íslands sem hefur þetta að aðalstarfi er Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræðingur og er eitt námskeið í boði í almennri vísindasögu. Nú bíðum við bara spennt eftir að t.d. einhver efnafræðingurinn taki að sér að finna gullgerðarmenn íslandssögunar en mikið hefur verið skrifað um þá flóknu og spennandi sögu erlendis. Er eitthvað ólíklegra að þeir Merlínar efnafræðinnar hafi starfað hér en að menn hafi skrifast á við Tycho Brahe frá Hólum á 16. öld um hnattstöðumælingar. Fyrir áhugasama mágetaþessaðnæstaárer alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar og til stendur að setja upp litla sýningu um stjarnvísindaástundun Islendinga fyrr á tímum og opna þannig smá innsýn í raunvísindasögu okkar hér á norðurhjara. Það er kannski rétt að hér hafi í meginatriðum búið bændur, sjómenn og embættismenn en þeir hugsuðu ekki bara um rollur, fisk og guð. Heimildir: Einar H. Guðmundsson: Stefán Björnsson reiknimeistari. Fréttabréf íslenska stærðfræðifélagsins, 1. tbl., 7. árg., 1995, bls. 8 -27.; Einar H. Guðmundsson: Johnsonius og Lievog: Konunglegir stjörnumeistarar á íslandi á 18. öld. Eðlisfræði á íslandi IV. Reykjavk 1989, bls. 110-125.; Einar H. Guðmundsson: Björn Gunnlaugsson og náttúruspekin í Njólu. Ritmennt, 8 árg., 2003, bls. 9-78. ur ** 4« Otí, ^ 001. Teikningar eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.