Heimir : söngmálablað - 01.06.1939, Blaðsíða 35
H E I M I R (J3
leik söng stór blandaður kór,
með undirleik Hljómsveitar
Reykjavikur undir stjórn dr.
Urbantschitch kórverk eftir
Brahms og Strauss og tiljómf
sveitin lék hljómdrápu eftir
Schubert og strengjasveit lék
einnig verk eftir Mozart. Var
gerður góður rómur að hljóm-
leikunum.
Emil Thoroddsen píanóleik-
ari fékk verðlaun fyrir bezta
lagið við sjómannaljóð Magnús-
ar Stefánssonar: „íslands
Hrafnistumenn". í dómnefnd
voru þeir Árni Kristjánsson
píanóleikari, Jón Halldórsson
söngstjóri og Halldór Jónasson,
sem safnaði og bjó undir prent-
un „ísl. söngvasafn" ásamt Sig-
fúsi Einarssyni. Lag Emils er
fagurt og haglega gert, en
reynslan mun skera úr því,
hvort það er að alþýðuskapi. —
í jjessu sambandi vil eg minn-
ast á það, að árið 1930 fékk
Emil 2. verðlaun fyrir Alþingis-
hátíðarkantötu, en Páll ísólfs-
son 1. verðlaun. Tónskáldið
fræga Carl Nielsen, sem var í
dómnefndinni, fann þá hvöt hjá
sér til að taka það fram í sér-
stakri greinargerð, að kantata
Emils væri bæði frumleg og fög-
ur, en með lilliti til þess að
kantata Páls væri betur fallin
til flutnings, þá greiddi hann
henni atkvæði sitt.
Norræn kirkjutónlistarráð-
stefna var haldin í Kaupmanna-
höfn í júnibyrjun. Páll ísólfs-
son mætti þar sem fulltrúi ís-
lands og talaði um liið nána
samband milli danskrar og ís-
lenzkrar kirkjutónlistar. Minnt-
ist hann Sigfúsar heitins Ein-
arssonar og hins merkilega
starfs hans.
Páll ísólfsson hélt Bachs-
hljómleika í Emauskirkjunni í
Kaupmannahöfn, og var dóm-
ur blaðanna á þann veg, að
orgelleikur hans befði verið
meistaralegur.
Margrét Eiríksdóttir píanó-
leikari, dóttir Eiriks Hjartar-
sonar rafmagnsfræðings, vann
1. verðlaun í allherjarsam-
keppni í píanóleik í London í
vor. Vann hún vandaðan silfur-
bikar — svonefndan Beetho-
vensbikar. I fyrravor vann hún
einnig 1. verðlaun i pianóleik og
fékk þá heiðurspening úr silfri.
Margrét stundaði fyrst nám við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
skaraði fram úr, hélt síðan
hljómleika í Reykjavík við góð-
an orðstír. Síðan hefir hún
stundað framhaldsnám i Lond-
on. Það mun öllum vera gleði-
efni, þegar landar vorir verða
])jóð sinni þannig til sóma.
Björn Olafsson, Björnssonar
heitins ritstjóra, hefir lokið
prófi við hljómlistarskólann i
Vínarborg með ágætiseinkunn.
Hann er 22 ára, og hefir stund-
að nám í Vínarborg síðan haust-
ið 1934, en þar áður við Tón-
listarskólann í Reykjavík.