Hlín - 01.01.1933, Blaðsíða 119
Hlin
1.17
að biðja himnaföðurinn miskunsama um náð, kraft
og hjálp til þess aö við getum æ meir og meir likst
jólabarninu Jesú Kristi í auðmýkt, elsku og kærleika
til guös og manna.
Ingibjörg Hóseasdóttir
frá HöskuldSst. í Breiðdal, nú í Mosart, Sask. Can. Ameríku.
Ávarp.
Síðastliðið sumar var frú Elínu Briem Jónsson sent
vandað útvarp ásamt ávarpi frá gömlum nemendum
(Ytrieyjarstúlkum).
Ávarpið samdi frú Björg C. Þorláksson, sem er ein
af nemendum frú Elínar.
Ávarpið var svohljóðandi:
Kæra frú Elin Briern Jónsson.
»Geymt er ekki gleymt« segir eitt af okkar fornu
spakmælum. Og nú langar okkur til að sýna lit á að
sanna þjer þetta.
Ef mannssálin væri búin að ná þeim þroska, að hún
gæti skynjað allar þær kærleiksríku hugsanir, sem að
henni er beint frá vinum fjær og nær, þá mundir þú
hafa nóg að hlusta á frá morgni til kvölds, því vertu
viss um það, altaf minnumst við þín með ást og virð-
ingu og þakklæti fyrir alla þína umhyggju fyrir okkur
á skólaárum okkar hjá þjer, fyrir allan þann fróðleik,
sem þú miðlaðir okkur, og fyrir allan þinn brennandi
áhuga sem brautry&javdi í mentamálum kvenna. Og
enda þótt þú heyrir ekki hugsanir vorar úr. fjarlægð,
þá trúum við því og treystum, aö dulvitund þín segi
þjer til um þær, og að vern\andi yl og unaðsþrunginn
frið geti staíað frá þeim eins og geislar stafa frá sól