Melkorka - 01.12.1946, Blaðsíða 18

Melkorka - 01.12.1946, Blaðsíða 18
Listakonan Nína Tryggvadóttir Ejtir Driju Viðar Það er ekki oft að slíkur viðburður skeður í listalífi bæjarins sem málverkasýning Nínu Tryggvadóttur. Hún er ung listakona, sem stund- að hefur nám hjá beztu kennurum og hefur náð föstum tökum á efninu. Myndir liennar sýna, að þar er listamaður að verki, sem stefnir ótrauður fram á leið. List allra tíma hefur verið torskilin megninu af samtímamönnum, en þótt skilningsleysi sé að mæta víðast hvar, lætur listamaðurinn ekki segja sér fyrir verkum, heldur bendir hann á veginn. Það er að vísu svo, að málverkin segja mest sjálf og eiga ekki að þurfa neinna skýringa við ann- arra en þeirra, sem litir og form láta í té, en hins vegar tekur oft langan tíma fyrir augað að venj- ast nýjungum, og orðið getur hjálpað til að skýra það, sem augað ekki skilur. En orðið er hjómið tómt, ef málverkin sjálf. eru ekki athuguð. Tíminn krefst þess, að haldið sé áfram leitinni hugann að því, hver og ein, hvar þið eruð á yegi staddar í þessu efni. Verði niðurstaða þeirrar sjálfsrannsóknar sú, að málkunnáttu ykkar sé ábótavant eða málvenjur ykkar ekki sem beztar, þá hefjið þegar í stað alvarlegt starf til lagfær- ingar þessu. Minnizt þess, að undir yður er það fyrst og fremst komið, hvort móðurmál íslenzkra barna framtíðarinnar verður þrungið kynngi og orðgnótt þeirrar tungu, sem varðveitzt hefur frá kyni til kyns fyrst og fremst fyrir atbeina ís- lenzkra mæðra. Munið, að fegurra mál á ei veröldin víð, né varðveitt betur á raunanna tíð; og þrátt fyrir tízkur og lenzkur og lýzkur það lifa skal ómengað fyrr og síð. An þess týnast einkenni og þjóðerni mannsins, án þess glatast metnaður landsins. að nýjum úrlausnum og sannindum, en hvert listaverk verður að vera dæmt eftir því tímabili, sem það er málað á. Það efni, sem málarinn hefur til að vinna úr er ferhyrndur flötur, 5 litir og pensill. Það virðist ef til vill vera fábreyttur efniviður, en gefur ó- endanlega möguleika. Það, sem skiptir mestu máli er, hvernig byggt er inn á myndflötinn. Hann krefst þess, að rúmið sé byggt upp með hrynjandi lita og forms í jafnvægi og samstill- ingu, en ekki eftir tilviljunum, sem verða á vegi málarans í gerfi fyrirmyndanna. — Listaverkin verða ekki til vegna fyrirmyndanna, heldur þrátt fyrir þær. Eins og hljómlistin talar ómenguðu máli hljóma og tóna, eins ætti málaralistin að tala máli forms, lita og uppbyggingar þeirra. Það, sem málað er eftir, skiptir þá minnstu máli, aðal- atriðið er myndflöturinn og hvernig byggt er inn á hann. Þá hefur málarinn frjálsari hendur. Nína Tryggvadóttir hefur unnið sig í gegnum bamstUling meö guítar 50 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.