Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 39
ÞRIÐJUDAGUR 5. janúar 2010 23
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Fram undan er úrslita-
keppni Evrópumeistaramótsins í
handknattleik sem haldin verð-
ur í Austurríki í lok mánaðarins.
Guðmundur Guðmundsson lands-
liðsþjálfari hefur verið búsettur í
Danmörku síðan í sumar þar sem
hann hefur þjálfað úrvalsdeildarlið
GOG. En þó svo að hann hafi staðið
í ströngu með liðinu í haust hefur
hann varið miklum tíma í undir-
búning landsliðsins fyrir EM.
„Það má segja að nánast allur
minn frítími og allar helgar fari
í að sinna rannsóknarvinnu fyrir
landsliðið. Ég er stanslaust að
horfa á handbolta og velta fyrir
mér hinu og þessu,“ segir Guð-
mundur í samtali við Fréttablað-
ið.
„Ég hef til að mynda farið yfir
alla leiki okkar á Ólympíuleikun-
um sem og í undankeppninni fyrir
EM og skrifað hjá mér hin ýmsu
atriði. Ég hef einnig verið að skoða
andstæðinga okkar í riðlakeppn-
inni í Linz og mynda mér skoðun
á því hvernig við ætlum að spila,
með hvaða leikmönnum, hvern-
ig vörn við ætlum að spila og þar
fram eftir götunum. Þetta er því
nokkuð langur ferill og mikil rann-
sóknarvinna á bak við þetta.“
Hann segir að hann sé sífellt að
mynda sér skoðun á öllu því sem
viðkemur leikstíl landsliðsins. „Ég
hef til dæmis skoðað hvernig við
vorum að spila á Ólympíuleikunum
og punktað niður það sem vel var
gert, því sem ég vil breyta, því sem
ég vil passa að gerist alls ekki og
það sem var í lagi. Það eru miklar
pælingar í gangi og þessi vinna er
sérstaklega mikilvæg þegar tekið
tillit er þess hve lítinn tíma við
fáum til undirbúnings með leik-
mönnum,“ bætir hann við.
Leikmenn koma saman hér á
landi skömmu eftir áramót og 19.
janúar hefst keppnin svo í Linz í
Austurríki. Andstæðingar Íslands
í riðlakeppninni verða Serbía (19.
janúar), Austurríki (21. janúar) og
Danmörk (23. janúar). Aðeins eitt
lið kemst ekki áfram í milliriðla og
komist Ísland áfram taka við þrír
leikir í milliriðlakeppninni í Vín-
arborg.
Guðmundur hefur verið og mun
áfram sanka að sér myndefni af
mótherjum Íslands. „Þá koma
þeir Óskar Bjarni [Óskarsson] og
Gunnar [Magnússon] inn í þetta
með mér og hjálpa mér við að leik-
greina andstæðinginn.“
Sautján leikmenn hafa verið
valdir í íslenska landsliðið og þó
svo að fáeinir leikmenn hafa átt
við meiðsli að stríða samanstendur
liðið af flestum okkar bestu hand-
boltamanna í dag – þar af þrettán
af þeim fjórtán sem unnu silfrið
fræga í Peking. Guðmundur vill
þó lítið segja um sínar tilfinning-
ar fyrir mótið í Austurríki.
„Það er í raun ekki fyrr en ég
er búinn að sjá leikmenn á gólf-
inu og við búnir að æfa eitthvað
saman að ég get metið hver stað-
an er á liðinu. Langflestir okkar
leikmanna hafa verið að spila stór
hlutverk með sínum liðum en það
segir þó ekki alla söguna. Það er
undir leikmönnum sjálfum komið
að skila sér í sem bestu standi og
er landsliðsþjálfarinn algerlega
háður því. Því var öðruvísi hátt-
að fyrir Ólympíuleikana þar sem
við höfðum mikinn tíma til und-
irbúnings og ég gat brugðist við
þeim vandamálum sem komu upp.
Nú get ég lítið gert ef einhverjar
brotalamir eru á liðinu.“
En hann neitar því ekki að
ástand leikmanna í hópnum er
nokkuð gott. „Ég held að við getum
verið nokkuð sáttir. Það er jú allt-
af þannig að sumir eru að stíga
upp úr meiðslum og aðrir enn að
glíma við einhver smámeiðsli. Það
er ekki hjá því komist.“
Ísland mun alls leika fimm
æfingaleiki áður en átökin hefj-
ast í Austurríki en þá verður rúmt
hálft ár liðið frá síðasta landsleik.
Liðið kom þó saman í lok október
og æfði saman og segir Guðmund-
ur að það hafi gert mönnum gott.
„Ég tel að það hafi hentað okkur
mun betur að æfa en að spila ein-
hverja æfingaleiki. Við fengum
miklu meira úr æfingunum.“
eirikur@frettabladid.is
Nánast allur frítími fer í landsliðið
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur ekki setið auðum höndum undanfarna mánuði enda unn-
ið að undirbúningi landsliðsins fyrir EM í Austurríki samhliða þjálfun úrvalsdeildarliðs GOG í Danmörku.
LÍFLEGUR Á HLIÐARLÍNUNNI Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari lætur vel í sér heyra á hliðarlínunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Arnór Atlason kórónaði mjög góðan bikarúrslitaleik sinn um helgina
með því að tryggja FCK danska bikarmeistaratitilinn með sínu sjö-
unda marki í leiknum. Arnór fór síðan strax til Íslands og var mættur
á fyrstu landsliðsæfingu í gær.
„Þetta var flottur leikur, fullt hús og virkilega gaman. Kvennaliðið
var líka í úrslitum og spilaði á undan okkur. Þær urðu líka bikar-
meistarar í fyrsta skipti,“ sagði Arnór. „Það voru tvær mínútur eftir
af leiknum þegar ég skoraði sigurmarkið.
Bæði lið fengu sóknir eftir það. Ég fattaði
það ekki fyrr en einhvern tímann seinna
að ég hafði skorað sigurmarkið því það
var svo langt eftir af leiknum,“ sagði Arnór
í léttum tón. Arnór hefur verið í áhættuhópi
fyrir Evrópumótið í Austurríki enda að berjast við
hnémeiðsli. „Ég hef bara verið að spila sókn í vetur
með FCK og get ekki ennþá spilað heilan leik því það er
fullmikið fyrir hnéð á mér að spila heilan leik
í sókn og vörn,“ sagði Arnór en það hefur
gengið vel hjá FCK í vetur.
„Við erum í 2. sæti, fimm stigum á eftir Bjerringbro/Silkeborg sem
við unnum í úrslitaleiknum. Við töpuðum fyrir þeim á heimavelli í
síðasta leik fyrir jól og það var svolítið áfall fyrir okkur. Þetta var því
ennþá sætari sigur að vinna bikarinn því þetta snýst um að vinna
titlana,“ segir Arnór sem var að vinna sinn annan stóra titil í Dan-
mörku en hann varð einnig Danmerkurmeistari með FCK 2008.
Arnór fékk litla hvíld eftir úrslitaleikinn því hann fór strax til
móts við íslenska landsliðið sem hóf í gær undirbúning sinn
fyrir EM. „Við æfum stíft, tvisvar á dag í tvo tíma og það verður
allt gert til þess að allt verði á hreinu. Ég veit bara það að ég
þarf að passa mig. Ég þekki hnéð á mér það vel að ég veit
hvenær ég þarf að halda aftur af mér. Guðmundur veit það
líka,“ segir Arnór ákveðinn. „Ég er alveg ákveðinn í að láta
reyna almennilega á þetta og gera allt til þess að vera með.
Þá þarf ég samt að vera skynsamur á einhverjum tímapunkti á
þessum tveimur vikum. Ég krossa fingur og vona að þetta haldi
en veit að ég þarf að vera skynsamur,“ segir Arnór og bætir við
í meira gríni en alvöru: „Ég verð að pakka mér inn í bómull fram
að EM,“ segir þessi snjalli leikmaður.
ARNÓR ATLASON: TRYGGÐI FC KAUPMANNAHÖFN DANSKA BIKARMEISTARATITILINN UM HELGINA
Verð að pakka mér inn í bómull fram að EM
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Íþróttamað-
ur ársins 2009 verður valinn í
kvöld á Grand Hótel Reykjavík
og er þetta í 54. sinn sem Samtök
íþróttafréttamanna velja þann
íþróttamann sem hefur skarað
fram úr á árinu.
Atkvæðagreiðsla félagsmanna
í Samtökum íþróttafréttamanna
er leynileg og fer þannig fram að
hver félagsmaður SÍ setur saman
lista með nöfnum tíu íþrótta-
manna sem honum þykja hafa
skarað fram úr á árinu.
Kjörinu verður lýst í kvöld
klukkan 19.40 í beinni útsendingu
í Ríkissjónvarpinu. Áður en kjöri
íþróttamanns ársins verður lýst
mun ÍSÍ afhenda viðurkenningar
til þeirra íþróttakarla og -kvenna
hjá sérsamböndum sínum sem
þótt hafa skarað fram úr á árinu
2009. Þetta verður í fimmtánda
sinn sem Samtök íþróttafrétta-
manna og ÍSÍ standa að sameig-
inlegri hátíð sem nær hápunkti
þegar Íþróttamaður ársins 2009
verður útnefndur.
Á aðfangadag var gefið út
hvaða tíu íþróttamenn urðu efstir
í kjörinu. Íþróttamaður ársins
2008, Ólafur Stefánsson, er einn
af þremur á topp tíu listanum
sem hafa verið kosnir Íþrótta-
maður ársins en Ólafur getur í
kvöld orðið aðeins annar mað-
urinn í sögu kjörsins til þess að
verða Íþróttamaður ársins í fjórða
sinn. Hinir tveir á topp tíu listan-
um sem hafa verið kosnir Íþrótta-
menn ársins eru knattspyrnumað-
urinn Eiður Smári Guðjohnsen
(2004 og 2005) og handboltamað-
urinn Guðjón Valur Sigurðsson
(2007).
Aðrir sem koma til greina
sem Íþróttamaður ársins 2009
eru Björgvin Páll Gústavsson
(handbolti), Helena Sverrisdóttir
(körfubolti), Helga Margrét Þor-
steinsdóttir (frjálsar íþróttir),
Hólmfríður Magnúsdóttir (knatt-
spyrna), Jakob Jóhann Sveins-
son (sund), Jón Arnór Stefánsson
(körfubolti) og Þóra Björg Helga-
dóttir (knattspyrna). - óój
Íþróttamaður ársins verður útnefndur í 54. skipti á Grand Hótel Reykjavík í kvöld:
Þrír af tíu hafa fengið titilinn áður
ÓLAFUR MEÐ BIKARINN Ólafur
Stefánsson í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Gunnar Sverrisson
tók í gær við þjálfun Iceland
Express-deildarliðs félagsins
af Jóni Arnari Ingvarssyni sem
hætti með liðið fyrir áramót.
„Ég er yfirþjálfari yngri flokka
og er sjálfur með þrjá flokka
þannig að það var annað athug-
að fyrst. Það gekk síðan ekki upp
og það var áhugi hjá mönnum að
plata mig í þetta sérstaklega þar
sem það er gott og gaman að hafa
ÍR-ing,“ segir Gunnar. „Þegar ÍR
á hluti þá er erfitt að segja nei,“
bætti Gunnar við en hann hefur
tvisvar verið aðstoðarþjálfari
hjá ÍR (aðstoðaði John Rhodes
1994-96 og Jón Örn Guðmunds-
son 2005-06) og þjálfaði síðan lið
Þórs tímabilið 1997-98.
„Ég er búinn að vera alltof
lengi í þessu félagi og hugsa það
vel um það að líta á þetta sem ein-
hverja reddingu. Vonandi gengur
það vel að þetta gæti gengið upp
og orðið framhald á,“ segir Gunn-
ar. - óój
Gunnar Sverrisson þjálfar ÍR:
Erfitt að segja
nei við ÍR
HJÁLPAR SÍNU FÉLAGI Gunnar Sverris-
son er nýr þjálfari ÍR-liðsins.
> Engin venjuleg vika hjá Helenu
Helena Sverrisdóttir hafði greinilega gott af Íslandsheim-
sókninni um jólin því hún hefur farið á kostum í síðustu
tveimur leikjum TCU í bandaríska háskólaboltanum.
Helena var líka kosin leikmaður vikunnar í Mountain
West-deildinni í gærkvöldi eftir að hafa verið með 21,5
stig, 8,5 fráköst og 6,5 stoðsendingar að meðaltali í
tveimur sigurleikjum á Houston (26 stig) og Texas A&M-
Corpus Christi (17 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar).
Helena endurskrifaði í seinni leiknum sögu
kvennaliðs TCU með því að verða fyrsta
konan til þess að ná 1.000 stigum, 500
fráköstum og 300 stoðsendingum á ferli
sínum í skólanum. Helena á enn eftir
eitt og hálft ár í skólanum og getur
því bætt vel við þessar tölur.
HANDBOLTI Sunneva Einarsdóttir
gleymir örugglega ekki tvítugs-
afmælisdeginum sínum í bráð því
varamarkvörður toppliðs Vals-
manna í N1 deild kvenna varð
fyrir því að ökklabrotna á æfingu
á sunnudaginn.
„Þetta er svakalegt. Þetta er
annar sjúkrabíllinn sem við fáum
á æfingu í vetur,“ segir Stefán
Arnarson, þjálfari Valsliðsins.
„Hún var að teygja sig eftir bolta
og fór svona illa. Það var engin
nálægt henni. Liðböndin eru slit-
in og stærra leggbeinið er brot-
ið,“ sagði Stefán en Sunneva fór í
aðgerð í gær.
Sunneva hefur verið varamark-
vörður Valsliðsins á tímabilinu en
stóð sig mjög vel þegar hún fékk
tækifærið í forföllum Berglinar
Írisar Hansdóttur í undanúrslit-
um deildarbikarsins. -óój
Sunneva Einarsdóttir hjá Val:
Ökklabrotnaði á
afmælisdaginn
EFNILEGUR MARKVÖRÐUR Sunneva
Einarsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM