Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 57
11 MENNING
G
óðu dagarnir sundruðu
sálinni, afskræmdu
líkamann, þurrkuðu
út mörkin milli manna
og drýsla. Á leynilegri
sjúkrastofnun hefst endurhæfing-
in, leitin að nýrri manneskju með
heilbrigða sál í hraustum líkama.
En það getur verið erfitt að venja
sig af gulláti og saurugum hugs-
unum, og ekki er víst að alltaf
búi flagð undir fögru skinni – eða
öfugt.“
Svo er leikritinu Ufsagrýlum
eftir Sjón lýst í tilkynningu frá
Lab Loka. Það er sterk hrunsteng-
ing í verkinu, segir Rúnar. „Nálg-
unin er fyrst og fremst í gegnum
gróteskuna og kynjaheim hryll-
ings- og þjóðsagna, eins og við
könnumst við úr verkum Sjóns,
en engu að síður má finna þarna
sterka samtímaskírskotun.“
Þetta er fyrsta leikrit Sjóns í
fullri lengd og er skrifað sérstak-
lega fyrir Lab Loka. Rúnar segir
það hafa staðið lengi til. „Mér
hefur alltaf fundist hann skemmti-
legur höfundur, fyrsta sýning Lab
Loka frá 1992 byggði til dæmis á
textum Sjóns. Það má segja að
þetta hafi ríkt gagnkvæm hrifn-
ing í gegnum tíðina – hann hefur
hrifist af því sem við erum að gera
og við af því sem hann hefur verið
að gera. Þetta hefur verið lengi á
prjónunum og nú var bara kominn
tími til að láta slag standa.“
Lab Loki hefur verið á góðu
flugi undanfarin misseri; sýning-
in Steinar í Djúpinu, sem sýnd var
í Hafnafjarðarleikhúsinu síðast-
liðinn vetur hlaut góðar viðtökur
og vann meðal annars til þrennra
Grímuverðlauna. Rúnar segir að
eftir hrunið hafi frjáls leikstarf-
semi blómstrað. „Ég veit svo sem
ekki hvort efnahagsástandið hafi
eitthvað að segja með mín verk;
það hefur hvort eð er verið eilífur
barningur að halda úti sjálfstæðri
leiklistarstarfsemi, sérstaklega ef
hún er í tilraunakenndari kantin-
um eins og raunin er hjá okkur. En
því er ekki að neita að eftir hrun
er hlaupin gróska í sjálfstæða leik-
listarstarfsemi, sem má til dæmis
sjá á hátíðum eins og Art Fart og
Lókal, auk þess sem ungt leikhús-
fólk hefur ráðist í að setja upp
verk í Batteríinu og úti á Granda.
Þetta er sjálfsagt ágætt dæmi um
hvernig neyðin kennir naktri konu
að spinna.“
Helstu leikarar í verkinu eru
Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Árni
Pétur Guðjónsson. Birna Haf-
stein, Erling Jóhannesson, Hjálm-
ar Hjálmarsson og Orri Huginn
Ágústsson. Verkið verður frum-
sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu
föstudaginn 5. febrúar.
JAÐARLEIKHÚS
blómstrar eftir hrun
Rúnar Guðbrandsson hefur
verið á góðu flugi með Lab
Loka undanfarin misseri, en
sýningin Steinar í Djúpinu
fékk góðar viðtökur í fyrra
og hlaut meðal annars
þrenn Grímuverðlaun.
Ufsagrýlur heitir nýtt íslenskt leikrit eftir Sjón sem frumsýnt verður í uppsetn-
ingu leikhópsins Lab Loka í Hafnarfjarðarleikhúsinu eftir viku. Að sögn Rúnars
Guðbrandssonar leikstjóra tekur verkið á málefnum líðandi stundar með aðferð-
um gróteskunnar og karnivalsins.
LEIKLIST BERGSTEINN SIGURÐSSON
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
Í tilefni áttræðisafmælis Hótels Borgar býður Silfur upp á
tilboðsmatseðil með ljúffengum afmælisréttum þar sem
val er milli tveggja forrétta og tveggja aðalrétta og endað á
578 2008