Fréttablaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 60
40 3. apríl 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Julia Demirer, miðherjinn öflugi hjá Hamar, gat aðeins
spilað í 8 mínútur í þriðja leik KR og Hamars í lokaúr-
slitum Icleand Express-deildar kvenna og munaði um
minna því hún var fyrir leikinn með 23,6 stig og 12,7
fráköst að meðaltali í leik í úrslitakeppninni.
„Það var vissulega mjög erfitt að horfa á síðasta
leik en ég vissi að þetta væri ekki síðasti leikurinn
í seríunni. Við ákváðum að það væri betra að taka
þá áhættu með að hvíla mig og það myndi svo
aftur hjálpa mér í leiknum á laugardaginn (í dag)
og svo í fimmta leiknum á þriðjudaginn ef við
komumst svo langt,“ segir Julia en hún glímir við
álagsmeiðsli á hné.
„Ég veit ekki hvernig ég verð á morgun (í dag). Ég
er bara að reyna að hvíla mig. Ég fór á sjúkrahús og lét
athuga hnéð á mér. Þeir töppuðu af hnénu og spraut-
uðu mig,“ segir Julia og bætir við: „Fimm leikja serían
á móti Keflavík var mjög erfið og ég fann til í hnénu í fyrstu tveimur
leikjunum á móti KR,“ segir Julia. „Ég fékk litla sem enga hvíld milli
seríanna og þetta versnaði alltaf og versnaði. Það eina sem var hægt
að gera var að hvíla hnéð,“ segir Julia sem ætlar að reyna að spila
fjórða leikinn í dag. „Ég er þegar búin að fórna heilsunni hvort
sem er og því ekki að láta allt vaða í einn eða tvo leiki til við-
bótar. Það verða ekki fleiri leikir þannig að ég veit að ég get
fengið nokkrar vikur í hvíld eftir úrslitin,“ segir Julia. Hamar
var í sömu stöðu í undanúrslitunum á móti Keflavík.
„Við vorum góðar í sömu stöðu á móti Keflavík og ég
hef trú á því að við verðum góðar í leiknum á morgun (í
dag) því þetta er mikilvægasti leikur tímabilsins til þessa.
Það hjálpar stundum okkar liði að undirbúa sig þegar stelpurnar
vita að þær fá engin önnur tækifæri,“ segir Julia. „Mér líst betur
á liðið en stöðuna á mér og mínum meiðslum. Ég er sannfærð
um að við spilum betur í þessum leik en við höfum gert í und-
anförnum tveimur leikjum,“ sagði Julia að lokum.
JULIA DEMIRER: STIGA- OG FRÁKASTAHÆSTI LEIKMAÐUR HAMARS GAT LÍTIÐ VERIÐ MEÐ Í LEIK ÞRJÚ Á MÓTI KR
Það eina sem var hægt að gera var að hvíla hnéð
> Geta stigið skref í átt að EM í dag
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Bretum
klukkan 14.00 í Laugardalshöllinni í dag í undankeppni
EM en Ísland vann 27-16 sigur í leik þjóðanna í London
á miðvikudaginn. Frakkar eru efstir í riðlinum með 6
stig, Ísland er með fjögur og Austurríki er með tvö stig.
Tvær efstu þjóðir hvers riðils komast
áfram á EM en það ræðst allt í lok maí
þegar liðið mætir Frökkum hér heima
og Austurríki ytra. Íslensku stelpurnar
eiga mjög góða möguleika á því að
komast áfram í lokakeppni EM í fyrsta
sinn en keppnin fram fer í Danmörku og í
Noregi í desember.
KÖRFUBOLTI Unnur Tara Jónsdótt-
ir hefur farið á kostum með KR
í úrslitakeppninni og það er ekki
síst hennar framlagi að þakka að
liðið er búið að vinna fimm af sex
leikjum sínum í úrslitakeppninni
og getur orðið Íslandsmeistari
í fyrsta sinn í átta ár með sigri í
fjórða leiknum á móti Hamri sem
fer fram í Hveragerði í dag.
Unnur Tara hefur skilað miklu
meiru til KR-liðsins í úrslita-
keppninni en hún gerði fyrir KR-
liðið í deildinni og er sem stendur
efst hjá liðinu í framlagi, stigum,
stolnum boltum, fengnum vítum og
varnarfráköstum í úrslitakeppn-
inni. Unnur Tara var með 33 stig
og 68 prósent skotnýtingu í síðasta
leik og var þá aðeins einu stigi frá
því að jafna stigamet íslensks leik-
manns í lokaúrslitum kvenna.
Það er magnað að bera saman
tölur Unnar í úrslitakeppninni við
tölur hennar í deildinni því flestir
leikmenn lækka sig aðeins þegar
kemur í spennuþrungna leiki í
úrslitakeppninni. Unnur Tara
hefur hins vegar tekið risastökk,
hún hefur meira en tvöfaldað bæði
framlagið og fráköstin, hefur
hækkað skotnýtingu sína um 10,1
prósent og þá er hún að skora 9,2
fleiri stig að meðaltali í leik.
Fjórði leikur KR og Hamars
hefst klukkan 16,00 í dag í Hvera-
gerði. KR-liðið hefur unnið alla
þrjá leiki sína í húsinu í vetur og
vinni þær í dag verða þær Íslands-
meistarar í fyrsta sinn síðan 2002.
Vinni Hamar ná þær að jafna ein-
vígið í 2-2 og tryggja sér odda-
leik sem fer fram í DHL-höllinni
á þriðjudaginn. - óój
Unnur Tara Jónsdóttir hefur verið frábær með KR í úrslitakeppninni en KR-konur geta orðið meistarar í dag:
Eins og nýr leikmaður í úrslitakeppninni
TVÖFALDAR TÖLURNAR KR-ingurinn
Unnur Tara Jónsdóttir hefur verið allt
í öllu í sóknarleik KR-liðsins í úrslita-
keppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TÖLFRÆÐI UNNAR TÖRU
(Deildarkeppni - úrslitakeppni)
Framlag í leik 10,8 - 23,0
Breyting: +12,2
Stig í leik 9,8 - 19,0
Breyting: +9,2
Fráköst í leik 4,3 - 8,8
Breyting: +4,5
Skotnýting 44,7% - 54,8%
Breyting: 10,1%
KÖRFUBOLTI Jakob Örn Sigurðar-
son og félagar í Sundsvall Dra-
gons eru úr leik í úrslitakeppni
sænsku úrvalsdeildarinnar í
körfubolta eftir 1-3 tap á móti
Uppsala í átta liða úrslitunum.
Sundsvall vann fyrsta leikinn
en síðan ekki söguna meir og nið-
urstaðan er mikil vonbrigði en
liðið varð meistari í fyrra og end-
aði í 3. sæti í deildarkeppninni í
vetur. Helgi Már Magnússon og
félagar í Solna Vikings eru komn-
ir í undanúrslit þar sem þeir
mæta Norrköping. - óój
Jakob og félagar í Sundsvall:
Óvænt í sumarfrí
TÓLF STIG Jakob Örn Sigurðarson var
næststigahæstur hjá Sundsvall í lokaleik
tímabilsins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL