Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 22

Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 22
18 SAMTÍÐIN Ingólfur Davíðsson: náttúrunnar * Ur dagbttkum J«na§ar Tlallgrímissionar 10. júlí 1839 kom Jónas Hallgrímsson skáld að Skriðu í Hörgárdal og gisti hjá Þorláki Hallgrímssyni dannebrogsmanni. Jónas segir svo frá (þýtt úr dönsku): Á þessum fagra bæ býr Þorlákur Hallgríms- son, alkunnur fyrir vel heppnaðar tilraunir til eflingar garðyrkjunni. Hann er nú gamail maður, 85 ára, en mjög fjörugur og kvikur. Hann sýndi mér garða sína, fullur áhuga. Einkum var hann ánægður með reynitrén sín, enda eru þau mjög gróskumikil. Þau eru öll sprotar af hinni frægu Möðrufellshríslu, sem er ævagömul og stór, villt hrísla. Um hana eru til þjóðsögur. Rétt er að geta þess, að reynii þrífst mjög vel þar, sem reynt hefur verið að rækta hann á íslandi, en hingað til hefur aðeins verið reynt að rækta einstaka tré. Hryggur í huga sýndi Þorlákur mér aftur á móti nokkrar vesælar greniplöntur, krækl- ur, sem eiga auðsjáanlega ekki hér heima. Þorlákur hafði líka gróðursett dálítil bjarka- trjágöng. Virtust bjarkirnar í góðum vexti, en eru allar mjög kræklóttar og verða aldrei bolfagrar. Allar bjarkirnar eru teknar úr niðurníddum, deyjandi kjarrskógi. Munu trén þar naumast annað en rótarsprotar upp af gömlum stúfum. Væri eflaust miklu betra að sá birkifræi, helzt innlendu eða frá norð- urhéruðum Noregs, ef menn vilja reyna að rækta birkiskóg á íslandi. Ég sá líka íslenzk jarðarber í hinum fallega garði Þorláks. Þau hafa verið flutt þangað úr Miðhálsaskógi. Þar eru nú aðeins kjarrleifar eftir í austurbrekku Bakkahálsins nyrzt, þar sem Hörgárdalur og Öxnadalur koma feaman. Það er unun að sjá með hve mikilli natni, reglusemi og varúð þessi gamli ágætismaður annast garða sína. Hann bæði gefur. öðrum gott fordæmi og hefur með tilraunum sínum MINJAGRIPIR DG GJAFAVÖRUR VIÐ ALLRA HÆFI. Skartgripaverzlunin EMAIL HAFNARSTRÆTI 7 - SIMI 2-D4-75 sannað, að hægt er að stunda garðrækt á ís- landi með góðum árangri. Þorlákur talaði, þótt gamall væri, með miklum áhuga um þá fyrirætlun sína að breyta rúmlega 4000 fer- álna bletti í skóglendi handa komandi kyn- slóðum. Það er gott að mæta slíkum manni, sem vinnur hress í huga og trúir á betri tírr.a, segir Jónas að lokum. . Ýmsar sögur ganga um Þorlák og trjárækt hans. Heldur kvaðst hann vilja missa kú úr fjósinu en hríslu úr garðinum. Vinnukonum sínum harðbannaði hann að hengja þvott á hríslurnar, en þær höfðu eitt sinn freistazt til þess. Ættmóðir reynitrjánna í Skriðu og Fornhaga, Möðrufellshríslan fræga, lifir enn a. m. k. sprotar, sem vaxið hafa upp af hinni gömlu hríslu. Og afkomendur hríslanna hans Þorláks í Skriðu hafa verið gróðursettir víða um land. Trjágarðurinn í Skriðu mun vera hinn elzti á landinu. Gömlu hríslurnar þar eru nú 11 m á hæð og mjög gildvaxnar. Fjöldi rót- arsprota vex upp kringum þær. En gömlu bjarkirnar eru fallnar, aðeins reyniviðirnir lifa. Álíka gamlir reyniviðir lifðu í „Fjörunni“ á Akureyri fram undir 1930. Við kirkjuna í Laufási við Eyjafjörð voru gróðursett reyni- tré á árunum 1849—1853. Féll aðalstofn eldra trésins í ofsa krapaveðri í ársbyrjun 1947. Sunnan lands var lengi fræg reynihríslan í Nauthúsagili. Hún er fallin, en nýir sprotar vaxa upp til endurnýjunar. Þegar eiginmaðurinn eignaðist þríbur- ana, varð honum að orði: ,,Æ, nú held ég, að ég hætti alveg að tako.\ pilluna.“ 4 MUNIÐ að tilkynna SAMTÍÐINNI undir eins búslaðaskipti til að forðast vanskil. Vestur-þýzk útvarps- og sjónvarpstæki frá Schaub-Lorenz. Hagstætt verð. GELLIR sf., Garðastræti 11, sími 17412.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.