Morgunn - 01.06.1944, Blaðsíða 91
MORGUNN
87
„Vörðubrol44
Sú forvitni er höfuðdyggð, sem knýr mennina til þess að
lesa um og íhuga þau dýpri rök tilverunnar, sem ekki liggja
á almannafæri og liggja fyrir utan vort daglega lif. Sú for-
vitni hefir mjög orðið á vegi „Vörðubrota", sem Jónas
Guðmundsson, fyrrv. alþm., tók saman eftir erlendum
heimildum og kom út í Rvík á liðnum vetri. Bókin seldist
óvenjulega ört og vakti mikið umtal, ekki sízt eftir að inn-
rás Bandamanna í Norður-Frakkland 6. júní síðastl. lét
spádóm þann rætast, er bókin flutti mörgum mánuðum áð -
ur um stórtíðindi, er áttu að gerast einmitt á þeim tíma.
„Vörðubrot" er merkileg bók, sem segir frá merkilegum
staðreyndum um spádóma, sem erlendir fræðimenn hafa
lesið úr hinum fræga Kheops-pýramída í Egyptalandi og
Ritningunni. Forspáin er staðreynd, sem MORGUNN hef-
ir oft og með mörgum dæmum sýnt fram á, og margir af
spádómunum, sem „Vörðubrot“ greina frá, og komu fram,
voru birtir almenningi löngu áður í bókum og tímaritum.
Hér er ekki rúm til að rekja efni þessarar bókar, en
MORGUNN vill eindregið hvetja menn til að lesa hana
og íhuga vandlega. Menn munu ekki sjá eftir þeim lestri,
og að honum loknum munu margir bíða þess með eftir-
vænting, hvort spádómarnir, sem bókin flytur um fram-
tíðina, muni rætast eins áþreifanlega og spádómarnir sum-
ir, sem þegar eru komnir fram. Á þetta ekki sízt við um
þá staðhæfing, að til stórtiðinda muni draga um styrjöld-
ina 5. nóv. næstkomandi.
Það sem sumum finnst hvað eftirtektarverðast við þessa
bók, er sú merkilega staðreynd, að spádómum pýramídans
og Ritningarinnar skuli bera nákvæmlega saman, þótt
Pýramidinn vffcri byggður í Egyptalandi meira en tveim