Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 68
44 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR Leikhús ★★★★ Mojito Höfundur og leikstjóri: Jón Atli Jónasson Leikarar: Stefán Hallur Stefánsson og Þórir Sæmundsson Jón Atli Jónasson heldur áfram að safna frösum og afsökunum hruns- ins í leikrænar frásagnir. Í leik- ritinu Mojito, sem frumsýnt var í Tjarnarbíó á miðvikudagskvöldið, fáum við að sjá enn eina birting- armynd uppeldisfræði góðærisins svokallaða. Í þessari mynd er það fyrirlitningin og innihaldsleysið sem er í fyrirrúmi. Tveir menn sem greinilega hafa setið í skilanefnd einhvers bankans hittast fyrir tilviljun og fara að rifja upp eitt einstakt fyll- erí og vesenið sem það orsakaði. Gæti þó verið lýsing á „góðæris“- tímabilinu í heild sinni. Áhorfend- um er skipt niður í hópa hvorum megin sviðs þannig að viðbrögð smitast og atburðarrásin stend- ur eins og öxull millum þeirra. Í upphafi skiptast tveir menn á að blanda sér drykki við lítinn bar undir háværum tónum höggvandi teknótónlistar sem lyftir þeim upp í stemningu og hæðir sem partý- in verða að gera til þess að kall- ast góð. Þessi inngangur er þó nokkuð langur og þegar mennirnir loks- ins fara að tala saman er öll sam- koman komin inn í þessa stemn- ingu. Stefán Hallur Stefánsson leikur skilanefndarmanninn og Þórir Sæmundsson félaga hans sem síðar bregður sér svo í hlut- verk Farúks og reyndar fleiri. Farúk er eigandi indversk/pakist- anska veitingastaðarins sem ungu mennirnir lögðu undir sig til þess að halda svokallað strákakvöld sem þó breyttist í parakvöld og eru frásagnir af þeim samskipt- um vægast sagt smokkfullar af kvenfyrirlitningu. Fyrir utan að í taumlausri gleðinni var staðnum nánast rústað. Glösum stútað og stólar brotnir í spað. Stefán Hallur fær hér upp í hend- urnar karakter og texta sem rýkur af stað og snýst í andhverfu sína í nánast hverju útspili, eins og runa sjálfsmarka. Hver var hann? Líklega guðspjallamaður græð- ginnar og um leið talsmaður tóm- hyggjunnar en aðferðin til þess að koma þessari glæsilegu ámát- legu persónu til skila var húmor- inn. Allt kom honum á óvart og allt varð honum að afsökunum. Það er ekki laust við að fréttatímar undan- farinna ára sem hafa hljómað í föst- um frösum sem í þessu samhengi verði sprenghlægilegir en þó með sorglegum undirtónum. Þórir Sæmundsson í hlutverki indversk/pakistanska veitinga- mannsins hélt uppi reisn og fágun og andstæðurnar urðu mjög skýrar. Hann var fulltrúi þeirra sem stóðu á báðum fótum meðan hinn var á stöðugu flugi sem honum sjálfum þótti sérlega fyndið og var sí og æ að skýra út að fyrirlitleg framkoma eins og að klípa þjóna í rassinn eða hella sprútti upp í stúlku til þess að gera hana að sinni væri bara hluti af hans gríni. Jón Atli teflir hér fram tveimur andstæðum persónum sem báðar segja sögu sína, önnur er sönn en hin líklega ekki lygasaga, en þó til- búningur. Skemmtunin er sviðsett með þeim aðkeyptu hjálpartækj- um sem einkenndi mörg útrásar- partýin, þ.e. hvítu í nös og flottum drykkjum í glös. Allt verður þetta að heita eitthvað, þar með er hægt að setja á það merkimiða. Með því að vera rosalega klár Mojito-bland- ari, sem skilanefndar maðurinn stærir sig af, er hann kominn í hæstu hæðir í einhverju. Að þetta eitthvað, er tómt bull, skiptir hvorki hann né aðra úr hans kreðsum máli, meðan á vímunni stendur. Samspil leikaranna var ein- stakt og hliðarsporin í frásögninni styrktu myndirnar af andstæðun- um. Jón Atli Jónasson leikstýrir hér sjálfur og það er greinilegt að honum farnast það hlutverk mjög vel. Hann kann orðið listina við að lauma heilli kynslóð, heilli sögun- arvél vitleysunnar og innihalds- leysi frasanna undir viljann í texta sínum. Vafalítið munu fleiri vilja kljást við þennan texta og vinna með þessar persónur sem gjarnan væri hægt að þróa áfram í önnur og stærri verk. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Flott sýning þar sem flugust á orð og fastir frasar sem svo sannarlega hanga enn í loftinu. Að klípa þjóninn í rassinn JÓN ATLI JÓNASSON Kann orðið listina að lauma heilli kynslóð, heilli sögunarvél vitleysunnar og innihaldsleysi frasanna undir viljann í texta sínum, segir meðal annar í leikdómnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hræddur við Gili trutt og vondu nornina Björgvin Franz Gíslason er húsvörður á Æ vintýragangin- um í Stundinni o kkar. krakkar@frettabladid.is Krakkasíðan er í helgar- blaði Fréttablaðsins Sýningar í fullum gangi Strandgata 11, Hafnarfjörður l Sími 512 3777 l www.kailash.is Kailash er ný verslun á Strandgötu 11 í Hafnarf sem sérhæfir sig í andle vörum frá Tíbet og Nep Verslunin selur meðal a Buddhastyttur, talnabön skartgripi, reykelsi, pon og margt fleira. Verið velkomin og að sjálfsögðu er alltaf heit á tekatlinum. Verslunin er opin virka daga frá kl. 11-18 og laugardaga frá kl. 11-14 Auglýsingasími Flautuleikararnir Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau flytja sónötur Wilhelms Friedemanns Bach í heild sinni á tónleikum í Hallgrímskirkju á sunnudag. Tilefnið er að á mánudag verða liðin þrjú hundr- uð ár frá fæðingu Wilhelms Friedemanns Bach, elsta sonar Johanns Sebastians Bach og Maríu Bar- böru, en hann er af mörgum talinn sá sona Bachs sem mesta tónlistarhæfileikana hafði. Sónötur hans fyrir tvær flautur eru sérkennilegar og einstæðar tónsmíðar enda hafa flautudúó alla tíð sóst eftir því að hafa þau á valdi sínu. Mikið jafnræði er milli raddanna og tónlistin tekur oft á sig furðulegar og frumlegar myndir. Tónleikarnir hefjast í Hallgrímskirkju klukkan 17 á sunnudag,. Aðgangseyrir á tónleikana er 2.500 krónur en 1.500 krónur fyrir listvini Hallgríms- kirkju. Flytja flautusónötur Bachs FLYTJENDURNIR Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau flytja flautusónötur Bachs í Hallgrímskirkju á sunnudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.