19. júní


19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 10

19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 10
þar í baðstofu á sunnudagsmorgni og horfði inn í „húsið“ til madömu Þóru. Þjónustustúlkan var að hjálpa henni til að klæða sig og var að laga til í kringum hana. Þegar því var lokið, sagði madama Þóra: „Sæktu nú hann Pál á Bjarnastöðum fyrir mig. Ég ætla að biðja hann að lesa húslesturinn“. Stúlkan gerði það. Á meðan sat madama Þóra með hendur í kjöltu sér. Ungu stúlkunni fannst nú lítið eftir af fornri fegurð hennar. Fölnaðar voru hinar „brosandi blómvarir", þreyta lífsins og vonbrigði höfðu dapr- að blik augnanna. En yfir svip hennar hvíldi heið- ríkja og ró. Um hana hefði mátt segja: „að bjartast hreint skín hjarta úr hálfslokknum augum.“ Þetta var á allra síðustu æviárum Þóru. Árið 1881 selur Benedikt, sonur Jóns Benedikts- sonar, Hóla með Hofi, en jarðir þessar hafði séra Benedikt afi hans gefið honum, og voru þær seld- ar seinast úr þessari ætt. Var þar síðan stofnaður bændaskóli 1882. Nú varð madama Þóra að víkja úr gamla bæn- um. En þá var hún orðin svo sjúk, að styðja varð hana á hesti upp í Nýja bæ. Síðasta ferðin var hafin. Hún andaðist eftir stutta legu 9. júní 1882 og hlaut hvíld í Hólakirkjugarði. Hér lauk vegferð ungu stúlkunnar, sem endur fyrir löngu hafði ferðazt með Jónasi Hallgrímssyni sunnan yfir fjöll í blárri vorbirtu, þegar ástin kviknar í hjörtunum. Þessi fornhelgi staður breiðir nú frið sinn og fegurð yfir leiði hennar. Þó finnst mér stundum, er ég geng fram hjá gröf hennar, að þar gráti enn í lautu góðir blóm- álfar. Sigrún Ingólfsdóttir. Frarnar aldrei gleðin geð geislum vermir sínum, því hún gekk til grafar með góðvininum mínum. Ingibjörg Gísladóttir, Galtarholti. Svo nefnist lítið kver, sem Menningarsjóður gaf út á liðnu hausti. Eru það ljóðaþýðingar Jakobínu Johnson, ljóð íslenzkra skálda þýdd á ensku. Bókin hefst á nokkrum inngangsorðum eftir skáldið sjálft. Þar segir hún, að þýðingar sínar hafi ekki komið út áður í bókarformi, en birzt í ýmsum ritum vestra, þetta hafi verið sér mjög kært verkefni og tómstundaiðja um langt árabil að þýða ljóð af máli ættlands síns á mál fóstur- landsins. Þá er bókinni einnig fylgt úr hlaði með stutt- um formála eftir Henry Goddard Leach, fyrrv. for- mann Ljóðskáldafélags Ameríku. Segir hann Jak- obínu vera þar mikilsmetinn félaga og lýkur miklu lofsorði á verk hennar. Bókin er 90 blaðsíður og flytur 54 ljóðaþýðingar eftir 30 höfunda og eitt þjóðkvæði, Ólaf liljurós. Fimm höfundanna eru Vestur-lslendingar. Við hér heima höfum lengi haft spurnir af ljóða- þýðingum Jakobínu án þess að eiga þess kost að sjá þær nema endrum og eins á stangli. Það mun því mörgum þykja fengur að fá loks þessar ágætu þýðingar í einni bók, og er það lofsvert framtak af Menningarsjóði. My grandmother thus cautioned me — on Sundays never go In play to yonder churchill, when the sun is sinking low. You might disturb the service where the elves at vespers pray. Their church is up in pynder knoll and in my youthful day I seemed to hear the fairy-hymns floating out at sunset. Þetta er upphafið að Kirkjuhvoli Guðmundar Guðmundssonar í þýðingu Jakobínu Johnson. Fá skáld munu ástsælli en Jakobína. Ljóð henn- ar sameina mildi hjartans og heiðríkju hugans, og öll þau fegurstu vitna um falslausa ást og tryggð til íslands, draumalandsins, sem hún hefur dvalið fjarri langa ævi. Og hún hefur verið slíkur menn- ingarfulltrúi vestan hafs, að við munum seint fá fullþakkað henni, allt sem hún hefur gert til að kynna Island og íslenzka menningu. Og vonandi eigum við eftir að sjá hana ennþá hér heima. H.B.B. 8 19. JtJNl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.