19. júní


19. júní - 19.06.1977, Blaðsíða 18

19. júní - 19.06.1977, Blaðsíða 18
„Það er einn strákur sem heitir Krummi, hann á dúkkuu Litlir krakkar hafa oft furðuvel mótaðar hugmyndir um sjálfa sig og veröldina umhverfis, og hvergi sjá menn kannski skýrar þá hug- myndafræði sem ríkjandi er í þjóðfélaginu en í orðum barna. Þar eru allar línur hreinar og beinar, enginn vafi leikur á framtíðarstarfi, allt er ákveðið og óumbreytanlegt. Það er þess vegna gaman að spyrja börn um lífið og tilveruna, framtíðina og hlutverkaskiptingu kynjanna, og til þess fóru blaðamenn 19. júní í nokkra yngstu bekki ísaksskóla einn fallegan maídag. Það kom margt markvert fram í viðtölunum við börnin sem voru bæði skýr og skemmtileg. Eitt af því athyglisverðasta var munur- inn á strákum og stelpum í af- stöðunni til hlutverks kvenna. Stelpurnar voru miklu með- vitaðri en strákarnir og sáu kyn- systur sínar í mun víðara sam- hengi en þeir. Sjö fimm ára börn voru spurð að því i hóp hvort þau þekktu konur. Þau voru alls ekki viss um hvað átt var við og greinilegt var að þau töldu hvörki mæður sinar né kennara í hópi „kvenna“. „Ég þekki eina konu,“ svaraði lítil stúlka, „hún er á sjúkrahúsi. Hún á litla stelpu.“ Einn drengurinn svaraði með hneykslunarsvip: „Ég þekki eina konu sem er alltaf í eldhúsinu.“ En önnur stúlka sagði: „Ég þekki margar konur. Ein vinnur í bókabúð, önnur vinnur í svona vélabúð . . .“ Svo mundi hún ekki eftir fleiri konum i bili. Én hvar eru konur annars, var spurt. „Einhvers staðar heima hjá sér“ svaraði drengur einn stuttlega. 16 I þessum hópi vildu flestar stelpurnar verða kennarar. Þær hafa lifandi fyrirmyndir í kennurum sínum sem flestar eru konur. Strákarnir tóku hvorki mið af kennurum sínum né feðrum, þeirra áhrifavaldur var liklega einna helst sjónvarpið, þvi þeir vildu helst verða lögreglu- þjónar, eins og betur kemur fram hér á eftir í viðtölunum. Einn drengurinn í hópnum hafði þó í hyggju að verða búðarmaður. Við höfðum lika áhuga á að vita hvað þessi börn fá í afmælis- og jólagjafir frá sinum nánustu. Oftast nær voru gjafirnar hefð- bundnar. Strákarnir fengu strákaleikföng, bolta, tennis- spaða, kubba, skip, bíla. Stelp- urnar fengu föt, dúkkur og dúkkudót. Ein hafði þó fengið læknistösku frá afa sínum og ömmu og var spurð hvort hún ætlaði ekki að verða læknir þegar hún væri búin að æfa sig. Svarið var dræmt. ,Jú kannski. En mig langar mest að verða kennari.“ Ef til vill hefur hún eingöngu sé karlmenn við læknisstörf og á erfitt að hugsa sér sjálfa sig við slíkt. Ragnheiður Arnadóttir og Sigrún Óttarsdóttir teiknuðu báðar myndir af lóunni meðan við töluðum við þær. Lóan var nýkomin til landsins, og jafnvel Reykjavíkurbörn fara ekki var- hluta af söng hennar. Þær voru duglegar að teikna en þó datt hvorugri í hug að verða lista- maður í framtiðinni. En hvað ætla þær að verða? „Pabbi minn smiðar skip,“ segir Sigrún. „En mamma er meinatæknir. Hún vinnur á sjúkrahúsi og tekur blóð og rannsakar það. Eg vil ekki vinna á sjúkrahúsi — heldur byggja skip. En það eru ekki Sí|fý/h Wom f , ;
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.