19. júní


19. júní - 01.10.1994, Blaðsíða 18

19. júní - 01.10.1994, Blaðsíða 18
Hvernig verður lcynbundinn launamunur til? F.v. Ragnheiður, Sigurður, Sigríður, Guðbjörg Andrea, Rannveig, Gylfi og Eiríkur. Fréttir af störfum tölfræðihóps Fljótlega eftir að starf við Norræna jafn- launaverkefnið hófst óskaði þáverandi verkefnisstjórn eftir því við félagsmála- ráöherra að skiþuö yrði nefnd sérfræð- inga á sviði launatölfræði. Verkefni nefndarinnar skyldi vera að móta tillög- ur um hvernig mætti betrumbæta þær aöferöir sem nú eru notaðar við öflun launahagtalna þannig aö unnt yrði að fylgjast betur með þróuninni í launamál- um karla og kvenna en nú er mögulegt. Nefndin átti einnig að vera til ráðgjafar um framkvæmd kannana og athugana sem gerðaryröu á vegum Norræna jafn- launaverkefnisins. Þar sem þess er nú ekki langt að bíöa að nefndin skili af sér þótti okkur ekki úr vegi að kynna bæði nefndar- menn og þau verkefni sem unniö hefur verið að á tímabilinu. Nefndin hefur nú starfaö í þrjú ár, en í daglegu tali geng- ur hún undir nafninu tölfræðihóþurinn. Rannveig Sigurðardóttir, hagfræðingur hjá BSRB, er fulltrúi Kjararannsóknar- nefndar oþinberra starfsmanna og jafn- framt formaður tölfræðihóþs. Aðrir í hóþnum eru Siguröur Snævarr, hag- fræðingur hjá Þjóðhagsstofnun, Sigríð- ur Vilhjálmsdóttir, félagsfræðingur hjá Hagstofu íslands, Eiríkur Hilmarsson, stjórnunarfræðingur hjá Kjararannsókn- arnefnd, en hann var skipaöur í hópinn sem óháöur sérfræðingur og Gylfi Ar- björnsson, hagfræöingur hjá ASÍ, skip- aður fulltrúi Kjararannsóknarnefndar. Ragnheiður Harðardóttir hefur unnið með hópnum eftir að Jafnréttisráö tók við verkefnisstjórn Norræna jafnlaun- verkefnisins. Umfangsmesta og tímafrekasta verk- efni tölfræðihópsins undanfarið eitt og hálft ár er vegna rannsóknar á launa- myndun og kynbundnum launamun. Enda þótt því sé stundum haldiö fram aö búiö sé að rannsaka launamun kynj- anna nægilega vel, geta sérfræðingar á þessu sviði alls ekki tekiö undir slíkar fullyrðingar. Tölfræðihóþurinn vakti at- hygli verkefnisstjórnar launaverkefnisins á að mikil þörf væri á því að kanna nán- ar launamyndunarferlið sjálft - nauðsyn- legt væri að öðlast dýþri skilning á þessu fyrirbæri og þá um leiö hvernig launamunur kynja yrði til og hvernig hon- um væri haldið við. Niöurstaðan varð sú að Jafnréttisráð ákvað aö láta gera rann- sókn á launamyndun og kynbundnum launamun í Ijórum ríkisstofnunum og fjórum fýrirtækjum á einkamarkaði. Rannsóknin er gerð meö Ijárstuðningi frá Félagsmálaráðuneytinu og er það reyndar hluti af framkvæmdaáætlun rfk- isstjórnarinnar í jafnréttismálum aö ráð- ast í slíkt verkefni. Ákveðiö var að fela Félagsvísindastofnun Háskóla íslands framkvæmdina, en tölfræðihóþurinn lagði línurnar um hvernig uþþlýsingaöfl- un skyldi háttaö. Þar sem hópurinn hafði ekki áhuga á að gerö yröi enn ein könn- unin sem leiddi I Ijós hver væri launa- munur kvenna og karla var ákveöiö að fara inn á nýja braut og beita aöferð sem ekki hefur veriö reynd í slíkum könnun- um hérlendis til þessa (sjá nánar um að- ferðina annars staðar á síðunni). Öflun upplýsinga lauk í júlf s.l. og hef- ur veriö unniö af kappi við úrvinnslu þeirra undanfarna mánuði. Ljóst er að mikil þörf er fyrir nýjar og ööruvfsi upþ- lýsingar um þessi mál ef marka má þann mikla áhuga á rannsókninni sem starfsmenn skrifstofunnar veröa varir viö. Reynt hefur verið eftir megni að hraða úrvinnslunni þannig að unnt verði að kynna niöurstöður fyrir áramót. Samhliða vinnunni við rannsóknina hefur tölfræöihóþurinn unnið við aö gera tæmandi yfirlit um hvernig launa- tölfræði er unnin hér á landi. Verið er að leggja síðustu hönd á skýrslu um þetta efni þegar þessi orð eru rituö. í skýrslunni verða tilgreindir þeir aðilar sem afla upþlýsinga um launamál, hvaöa gögn liggja til grundvallar, hvern- ig þeirra er aflað og hvað hefur verið birt á prenti. Sem stendur er engin launatölfræði til sem nær til alls vinnu- markaðarins og alveg undir hælinn lagt 18

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.