Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Blaðsíða 15

Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Blaðsíða 15
Tímarit Tónlistarfélagsins Norræna tónlistarhátíðin Dagana 3.—10. september s. 1. var haldin tónlistarhátíð í Kaupmannahöfn og tóku allar norrænu þjóö'irnar fimm þátt í henni. Slíkar hátiðir hafa verið haldnar sjö sinnum áður, fyrst árið 1888, svo þetta var hálfrar aldar afmæli þessara hátíða. Þessi hátíð nú var sögulegur viðburður fyrir okkur íslendinga, þar sem við vorum nú þátttakendur í fyrsta skipti og fyllilega jafnfætis hinum þjóðunum. Hver þjóð annaðist einn hljómleik, þar sem aðallega voru flutt verk fyrir stóra hljómsveit, en þó einnig söngvar og einleikar með hljómsveit, og var okkur sýndur sá‘ heiður að byrja hátíðina með íslenzka hljómleiknum. Auk þessara hljómleika voru haldnir tveir kammermúsík-hljómleikar og tveir kirkjuhljómleikar, og tóku þjóðirnar jöfnum hönd- um þátt í þeim. Sú var ætlunin, að útvarpið hér endurvarpaði aðal- hljómleikunum og hefði það oröið fróðlegt, ef vel hefði tekizt, en því miður reyndist alls ekki hægt að endurvarpa, vegna óvenjumikilla truflana. Við, sem heima sátum, höf- um því fátt af þessum fagnaði að segja, en þó getur varla hjá því farið, að ýmsar hugsanir vakni við slíkt tækifæri, um tónlistarmál vor og framtíð þeirra. Vonandi hefir þessi hátíð einhver áhrif i þá átt, að koma þeim á betri rekspöl og glæða áhuga þeirra, sem annt er um að svo verði. Einnig mætti gera sér vonir um,að þetta verði örvun fyrir þá, er við tónsmíðar fást, eða finna köllun hjá sér til þess. Það er tæplega hægt að búast við því, að tónskáld- in endist til að skrifa tónverk, sem verða þeim örlögum háð, að liggja óhreyfð árum saman, þótt alltaf finnist einhverjir, sem ekki geta stillt sig um aö yrkja, þótt það verði þeim hvorki til lofs né frægðar, vegna vöntunar á tækifærum til aö kynna verkin öllum almenningi. En þeg- ar svo er ástatt er ekki við því að búast, aö um miklar framfarir sé að ræða og á það ekki síður við þá sem yrkja í tónum en þau skáld, er iðka orðsins list. Þegar á það er litið, að þau íslenzk tónskáld, er komiö hefir til hugar 63

x

Tímarit Tónlistarfélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Tónlistarfélagsins
https://timarit.is/publication/723

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.