Jazz - 01.05.1947, Blaðsíða 5

Jazz - 01.05.1947, Blaðsíða 5
skipaður: Árni ísleifss píanó, Helgi Ingi- mundar, alto-saxófónn, Birgir Enarsson, ten. saxófónn og Clarinett, Björn Guðjónsson, trompet og Þorsteinn Eiríksson tromma. Quintettinn hefur hvergi ráðið sig enn sem komið er. Tímaritið Jazz óskar honum alls hins bezta. Hljómsveit Nat Gonella hefur nú verið leyst vegna rafmagnsskömmtunarinnar og er álitið að hljómsveit Gonella og Ambose séu aðeins þa-r fyrstu, og margar aðrar muni eftir fylgja. George Shearing, frægur brezkur píanó- leikari er nú á ferð um Bandaríkin og er hann kemur þaðan mun hann byrja að leika með Stephan Grapelly hinum fræga jazz- fiðluleikara, er lék áður með Quintette France. Hljómsveit Ambrose hefur sagt upp í Ciro klúbbnum í London eftir samkomulagi við stjórn klúbbsins, en vegna rafmagnsskömmt- unarinnar gat klúbburinn ekki risið undir þeim kostnaði, er var því samfara að hafa svo dýra hljómsveit. I viðtali, er tiðindamað- ur Jazz í Englandi hafði við fulltrúa Ambrose Mrs. Lytton sagði hún að hljómsveitin myndi leysast upp að minnsta kosti í bráð, en strax og úr rættist myndi Ambrose reyna að safna hljómsveitinni saman aftur. Ambrose lék áður inn á Decca-plötur og var vel kunnur hér, hann var álitinn hafa beztu sweet-hljóm- sveitina á Bretlandseyjum. Jazzsérfræðingurinn, Charles Delauny, er hefur ritað ,Hot Discography' og fleiri fræði- bækur um jazz er nú kominn til Bandaríkj- anna. Meðferðis hafði hann Guitar til handa Django Reinhard, hinum fræga guitarista, er lék með ,Quintett France', en eins og kunn- ugt er brotnaði guitar Djangos er hann kom Bréfakassinn Kæra Jazztímarit. Við erum hér fjórir félagar á Akureyri, er höfum mikinn áhuga á jazz, væri ekki mögu legt að þær hljómsveitir, er koma á vegum Jazzklúbbsins komi til Akureyrar áður en þær fara aftur út, við erum vissir um, að það yrði mjög skemmtilegt fyrir útlendingana að fljúga yfir landið. Jafnframt því að við beinum þessum spurn- ingum til blaðsins, þökkum við fyrir fyrsta hefti Jazz og óskum blaðinu alls góðs. Fjórir félagar. Svar: Við höfum snúið okkur til Jazzklúbbsins útaf þessu bréfi yðar og birtum hér svar hans. Vegna veikinda getur hljómsveit Joc Dani- els ekki komið og óvíst er um hvert önnur hljómsveit fæst fyrr en næsta haust, sem boð- til Bandaríkjanna. Django hefur ekki viljað neinn þeirra guitara, er honum hafa boðizt og smíðaðir hafa verið í Bandaríkjunum, svo hann bað Delauny að kaupa fyrir sig guitar. Eftir að Delauny kom til Bandaríkjanna lenti hann í bílslysi og braut guitarinn, svo að aumingja Django verður að vera guitar- laus áfram. I næsta blaði verður m. a. grcin um Duke Ellington, grein um trommuleikara, eftir Svavar Gests og grein eftir Harry Dawson. Einnig munu þar verða viðtöl og myndir af beztu mönnum skoðanakönnunarinnar. JAZZ 5

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.