Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 43
Menning 43FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is ■ Í kvöld kl. 19.30 Trommur og dans Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba Einleikarar: Colin Currie og Pedro Carneiro Farncis Poulenc: Les biches, balletsvíta Áskell Másson: Crossings, konsert fyrir slagverk Igor Stravinskíj: Petrúska Tveir af fremstu slagverksleikurum samtímans mætast á þessum tónleikum og frumflytja nýjan konsert eftir Áskel Másson. Vinafélagskynning á Hótel Sögu kl. 18.00 ■ Laugardagur 24. janúar kl. 17 Kristallinn - Kammertónleikar í Þjóðmenninagarhúsi Fiðlur: Júlíana Elín Kjartansdóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir Lágfiðla: Guðrún Þórarinsdóttir Selló: Sigurgeir Agnarsson Kontrabassi: Hávarður Tryggvason Leoš Janácek -Stengjakvartett nr. 1 Antonín Dvorák -Stengjakavartett í G-dúr op.7 ÞETTA verk er ekki beint viðbragð við ástandinu,“ sagði Ásmundur Ásmundsson á Miklatúni í gærmorgun. Hann beið þar eftir vörubíl með krana, og átti að reyna að lyfta úr holu sinni steypuskúlptúr. Í Morgunblaðinu birtist mynd þar sem skólabörn aðstoðuðu Ásmund við að grafa holu sem steypunni var hellt í. Nú var steypan orðin hörð og átti að flytja verkið í Hafnarhúsið, þar sem Ásmundur opnar sýningu í dag. „Árið 2006 fékk ég fullt af krökkum með mér út í Viðey að grafa svona holu og reyndi að gefa borginni holuna. Þá var hluti af samningnum að þeir myndu taka mót af hol- unni; varðveita holuna og eiga mótið. Það gekk ekki. Ég held að fólk hafi litið á þetta sem brandara þá. En núna eru forsendur breyttar. Það er kominn áhugi á verkinu – og er túlkað sem hluti af ástandinu. Sem það auðvitað er.“ – Er verkið það sem kemur úr holunni eða allt ferlið? „Ferlið er verkið. Kannski verður þetta bara hér á Miklatúni. Kannski útbý ég skilti eins og var gert þar sem Listaháskólinn átti að rísa, og segi hvað átti að ger- ast. Ég sýni eitthvað í Hafnarhúsinu – er með vídeó, bæði börnin að moka og allt ferlið.“ Blessuð börnin moka – Nú segja sumir að stórt verk þitt úr olíutunnum og steinsteypu, sem var æði umdeilt í Keflavík og á Ak- ureyri, sé hreinlega lykilverk á góðæristímanum. „Já. Ég er 100% sammála. Það verk fjallaði um ástand- ið, og auðvitað þetta líka. En hefði ég gert það 2006 hefði ég ekki gert mér í hugarlund að það yrði svona óþægilega viðeigandi. Að nota blessuð börnin til að moka.“ Skömmu síðar tókst að lyfta moldugum steypuklump- inum úr holu sinni, upp á bílpall. Hvort hann komst inn í Hafnarhúsið sjá gestir á sýningunni Hola í kvöld. efi@mbl.is Fjallar um ástandið Morgunblaðið/Einar Falur Það tókst! Skúlptúr Ásmundar Ásmundssonar rís úr holu sinni. Listamaðurinn skefur það með skóflu. Ásmundur Ásmundsson sýnir verkið Holu í Hafnarhúsinu AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÓHÆTT er að segja að þau séu óvenjuleg skákborðin á sýningunni Skáklist, sem verður opnuð á Kjar- valsstöðum á laugardaginn. Þar eru sýnd á annan tug skákborða eftir marga kunnustu myndlistarmenn samtímans. Eina krafan, sem gerð var til þeirra, var sú að það ætti að vera hægt að tefla með skákmönn- unum á borðinu. Þegar ég leyfði mér að efast um það, þegar ég skoðaði verkin með sýningarstjóranum Juliu Royse, að hægt væri að nota skák- menn Pauls McCarthy af einhverju viti (einn hrókur er tómatsósuflaska, annar stytta sem götóttur sokkur hefur verið dreginn yfir) sagði hún að það væri ekki satt. Þegar sýningin var sett upp í Moskvu kom Garry Kasparov á opnunina og sagðist ánægðastur með þetta taflborð – og það væri vel hægt að nota það. Lyfjaglös og börn sem taflmenn Eitt skákborðið gerði Damien Hirst, listamaðurinn sem seldi eigin verk á uppboði í september fyrir 17 milljarða króna. Hans taflmenn eru glærar og silfraðar eftirsteypur lyfjaglasa. Rachel Whiteread öðl- aðist heimsfrægð með verkinu House, þar sem hún fyllti hús af gifsi og fjarlægði síðan veggina. Hún safnar dúkkuhúsum og notar ná- kvæmar eftirmyndir húsbúnaðar úr þeim í taflsettið. Einhverjir alræmd- ustu listamenn samtímans eru bræð- urnir Jake og Dinos Chapman; eitt kunnasta verk þeirra er eftirmynd barna sem hafa sperrtan lim í stað nefs – það verk hefur verið bannað börnum. Taflmenn þeirra eru slík börn, þeir dökku með raunverulegt hár af afrískum Bandaríkjamönnum en þeir hvítu með hár af Evrópu- búum. Barbara Kruger skapaði borð þar sem raddir bera fram spurn- ingar og frasa þegar taflmenn eru færðir, Gavin Turk birtist á mynd- bandi, þar sem hann hreyfir riddara eftir sínu skákborði, og fyrrnefndur Paul McCarthy sagaði sundur viðinn af eldhúsgólfinu hjá sér – og innrétt- inguna einnig – og notað efnið í skák- borðið. Verkin eru gerð í upplagi, hvert er til í sjö eintökum og þau eru öll til sölu. Verkin á sýningunni hafa verið sköpuð í samvinnu við fyrirtækið RS&A, sem kom með hugmyndina til listamannanna og vann að út- færslunni með þeim. Sýningarstjór- inn, Julia Royse, sem í átta ár var í forsvari fyrir hið kunna White Cube gallerí í London, er einn eigendanna. „Við vinnum með listamönnum að sérstökum verkefnum, eins og því sem birtist hér,“ segir hún. „Við höf- um öll góð sambönd við bestu mynd- listarmennina í dag. Þetta var okkar fyrsta verkefni og okkur langaði að endurtaka frægt verkefni frá fyrri tíð, en árið 1944 fékk Julian Levy, galleristi í New York, suma þekkt- ustu listamenn þess tíma til að hanna skákborð.“ Byrjað var með verkum eftir fimm samtímalistamenn og var sýn- ing á verkunum sett upp í Sumerset House í London árið 2003. Þar voru einnig verk sem voru á sýningunni árið 1944, auk skákborða frá Bau- haus og Rússlandi, þar á meðal eftir Fabergé. Sýningin var gríðarlega vinsæl og framlengd í fimm mánuði. „Þetta varð mjög vinsælt verk- efni. Hver listamaður nálgast verkið á algjörlega einstakan hátt. Útkom- an er skákborð sem er fullkomlega nothæft en er jafnframt metnaðar- fullur og vandaður skúlptúr.“ Einnig íslenskir listamenn Aðrir erlendir listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Tracey Emin, Tunga, Maurizio Cattelan, Yayoi Kusama, Tom Friedman, Matthew Ronay, Alistair Mackie, Paul Freyer, Yoko Ono og Oliver Clegg. Íslenskir listamenn eiga einnig verk á Skáklist. Kunnir útitaflmenn Jóns Gunnars Árnasonar verða í vesturforsal og einnig má sjá verk eftir Kristján Guðmundsson, Stein- grím Eyfjörð og þá félaga Bjarna Þórarinsson og Guðmund Odd. Nothæfir skákskúlptúrar Nýjasta taflborðið Alastair Mackie og Julia Royse setja upp nýtt borð Mackie með skordýrum sem eru steypt í resin. Morgunblaðið/Einar Falur Gljáfægt Í verki ofurstjörnunnar Damien Hirst, Mental Escapology, eru taflmennirnir eftir- steypur lyjaglasa úr gleri og silfri. Öll verkin eru í sjö eintökum og til sölu.  Sýning á skákborðum eftir nokkra kunnustu myndlistarmenn samtímans verður opnuð á Kjarvalsstöð- um á laugardag  Hver listamaður nálgast verkefnið á einstakan hátt  Ekkert sparað við gerð verkanna Eins og frægt er ákvað einn kunnasti myndlistarmaður síð- ustu aldar, Marcel Duchamp, að segja nær alveg skilið við listina og tefla þess í stað. Hann tefldi til að mynda opinberlega fyrir Frakkland – og er einn margra myndlistarmanna sem hafa skapað verk út frá skákinni. Í frægri sýningu sem Julian Levy setti saman árið 1944 sköpuðu Max Ernst, Alexander Calder, Duchamp, Man Ray og fleiri verk út frá skák – og notuðu tækifærið til að tefla hver við annan. Sú sýning var kveikjan að þeirri sem sett er upp hér nú. Listamenn tefla Borð Chapmanbræðra Taflmenn þeirra Jake og Dinos Chapman bera svip- mót af einu þeirra kunnasta verki. Merki bræðranna er lagt í hvern reit.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.