Organistablaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 7
DÓSENT í SÁLMA- OG MESSUSÖNGFRÆÐI
Um mánaðamótin október— og
nóvcmber var dr. Hallgrímur
Helgason skipaður ií „Hlutastöðu
dósents í sálma- og messusöng-
fræði og tónflutningi við guð-
fræðideild Háskóla íslands“.
Dr. Hallgrímur fæddist 3. nóv.
1914 á Eyrarbakka. Hann hóf
fiðlunám 8 ára gamall hjá Þór-
arni Guðmundssyni, og píanó-
nám bjá Kristrúnu Hallgrímsson
og Önnu Pétursson nokkru síðar.
Hann hólt til Kaupmannahafn-
ar til tónlistarnáms og 1936 fór
hann til Leipzig og lærði tónfræði og tónsmíð bjá Hermanni Grabner,
Jóbanni Nepomuk David og Felix Petyrek, píanóleik hjá Otto Wein-
reicb, flðluleik bjá Edgar Wollgant og músikv'ísindi bjá Heinrich
Husmann og Hélmut Schultz. Síðar lauk bann kennaraprófi i fiðlu-
’leik og ríkisprófi í tónfræði og tónsmíði og hilaut doktorsgráðu í
músikvísindum í Ziiridli í Sviss.
Dr. Hallgrímur befur unnið ötullega að félagsmálum íslenskra
tónlistarmanna. Hann var einn af stofnendum Stefs og 1962 stofnaði
hann, ásamt dr. Páli Isólfssyni og Jóni Þórarinssyni, tónverkaút-
gáfuna Musica Islandica.
Hann var tónlistarfulltrúi ríkisútvarpsins 1959—1966, en þá um
haustið gerðist 'hann prófessor við háskólann í Saskatohewan í Kan-
ada og gegndi því starfi þar lil nú, er hann tekur við þessu músik-
embætti við Háskóla íslands.
Það er gleðiefni að íslenska þjóðin fær nú að njóta lians miklu
þekkingar í músik. Verkefnin eru ðþrjótandi.
Ég leyfi mér að bjóða liann velkominn heim. K. S.
ORGANISTABLAÐIÐ 7