Morgunblaðið - 04.02.2010, Blaðsíða 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2010
Heimskan ríður
ekki við einteyming
HEIMSKAN ríður
ekki við einteyming er
skemmtilegt orða-
tiltæki. Það á svo sann-
arlega við okkur Ís-
lendinga núna. Einmitt
þegar Ríkisútvarpið
ætti að hlúa að ís-
lenskri kvikmynda-
gerð, styðja hana og
styrkja, skal stefna í
þveröfuga átt. Sjón-
varpið á að halda
áfram að byggja upp
innviði íslenks þjóð-
félags með lágkúrunni
úr draumaverksmiðjum Hollywood.
Íslenskar kvikmyndir eru auðvitað
misjafnar að gæðum, en upp með of-
beldið, svo börnin geti fengið sinn
skammt og út með íslenska frum-
kvöðla í kvikmyndagerð.
Í nýjustu fréttum segir að Obama
forseti ætli nú að leggja áherslu á að
styðja og styrkja bandarísk smáfyr-
irtæki. Hann veit að þau eru undir-
staðan þegar allt kemur til alls. Í ís-
lenskri kvikmyndagerð eru mörg
smáfyrirtæki sem lepja dauðann úr
skel. Innan þeirra starfar margt
fólk sem er á heimsmælikvarða, en
vantar ekkert nema nokkrar krónur
til að blómstra.
Þess er að minnast, að Óskar
Gíslason, ljósmyndari og kvik-
myndagerðarmaður,
var mörgum áratugum
á undan sinni samtíð.
Hann kvikmyndaði og
framleiddi meðal ann-
ars einhverja mögn-
uðustu heimildarmynd
sem gerð hefur verið,
Björgunarafrekið við
Látrabjarg, með lítið
annað en einbeittan
vilja í farteskinu og
Þórð á Látrum sér við
hlið og allt það ótrú-
lega fólk í Rauða-
sandshreppi. En þá
voru aðrir tímar og
slík ævintýri gerast
varla aftur að
óbreyttu.
Sýnt hefur verið fram á með full-
um rökum að fátt skilar meira fé til
baka í ríkissjóð en stuðningur við
innlenda kvikmyndagerð. Sú aðstoð
er einfaldlega gróðavegur fyrir okk-
ar sameiginlega sjóð hvernig sem á
er litið. Svo einfalt er það. En ruslið
skal að sjálfsögðu ganga fyrir að
vanda. Ef þetta er ekki eitthvað sem
er beinlínis heimskulegt, er maður
alveg hættur að skilja hlutina.
Höfum við Íslendingar ekkert
lært? Hvað er að þessari þjóð?
Hallgrímur Sveinsson
Ást er…
… að vera tilbúin að efla
sjálfstraust hans þegar á
þarf að halda.
Velvakandi
Árskógar 4 | Handavinna, smíði og út-
skurður kl. 9, boccia 9.30, leikfimi kl. 11,
helgistund kl. 10.30, myndlist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist, bókband.
handavinna. Blöðin liggja frammi. Há-
degismat þarf að panta fyrir kl. 9.30
samdægurs í síma 535-2760.
Dalbraut 18-20 | Bókabíllinn kemur
kl.11.15, vídeó kl.13.30.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
upplestur kl. 14, listamaður mánaðarins.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
klukkan 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Þorrablót
kórs Söngvina í Gjábakka laugard. 6.
febrúar kl. 18.30. Aðgöngumiðar verða
seldir í dag. kl. 15-16. Allir fyrrverandi og
núverandi kórfélagar velkomnir.
Félagsheimilið Goðaland | Leikfimi kl.
9.05 og 9.55, málm og silfursmíði
kl.9.30, bókband kl. 13, bingó kl. 13.30,
myndlistarhópur kl. 16.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Opnar vinnustofur í Jónshúsi, málun kl.
9, gönguhópur kl. 11, vatnsleikfimi kl. 12,
karlaleikfimi og handavinnuhorn kl. 13,
botsía kl. 14, opið til kl. 16.
Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund kl.
10.30, umsj. Ragnhildur Ásgeirsdóttir
djákni. Vinnustofur opnar frá hád., m.a.
perlu/bútasaumur, myndlist fellur niður.
Á morgun kl. 10.30 stafganga.
Hraunsel | Morgunrabb og samvera kl.
9, QI-Gong kl.10, leikfimi kl. 11.20, fé-
lagsvist kl. 13.30, vatnsleikfimi kl.14.10,
sjá www.febh.is.
Hvassaleiti 56-58 | Boccia kl. 10, hann-
yrðir kl. 13, félagsvist kl. 13.30, böðun
fyrir hádegi, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir. Þorrablót
er á morgun. Húsið opnar kl. 17. Greiða
þarf miðana í dag. Tónalistarkvöld
Trausta Ólafssonar byrja miðvikudaginn
10. febrúar kl. 20, Dieter Fischer-
Dieskau kynntur til leiks. Allir velkomnir!
S. 411-2790.
Korpúlfar Grafarvogi | Listasmiðja, gler
og tréskurður, er opin á Korpúlfsstöðum
kl. 13-16. Sundleikfimi í Grafarvogs-
sundlaug á morgun kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund, spjall og léttar æfingar kl. 10,
handverks- og bókastofa kl. 13, boccia
kl. 13.30, Á léttum nótum – þjóðlaga-
stund kl.15.
Laugarneskirkja | Samvera kl. 14, dr.
Ásgeir B. Ellertsson f.v. yfirlæknir á
Grensásdeildinni fjallar um heilann og
taugakerfið. Umsjón hefur Sigurbjörn
Þorkelsson en þjónustuhópur sér um
veitingar og velgjörðir ásamt kirkjuverði.
Allir velkomnir.
Norðurbrún 1 | Handavinna kl. 9, boccia
kl. 10, leirlistarnámskeið kl. 9 og 13.
smíðastofa opin, útskurður, s. 411-2760.
Vesturgata 7 | Föstudaginn 5. feb. verð-
ur félagsmiðstöðinni lokað kl. 13 vegna
undirbúnings þorrablóts sem hefst kl. 17
sama dag.
Vesturgata 7 | Handavinna, glerskurður
(Tiffanýs) kl. 9.15, ganga kl 11 30, kerta-
skreytingar kl 13, kóræfing kl 13, leikfimi
kl 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band. postulín, morgunstund, boccia,
upplestur framhaldssaga kl. 12.30, brids
- frjálst, stóladans kl. 13.15.
Það þarf ekki að koma neinum áóvart að Esjan er yrkisefni
margra hagyrðinga, einkum á höf-
uðborgarsvæðinu. Jón Ingvar Jóns-
son orti að morgni:
Fagnar degi foldar skart
og fer á stjá í einum rykk.
Æðislega er Esjan smart,
en Akrafjallið dáldið sikk.
Ísleifur Gíslason orti á sínum
tíma:
Sagður er Hengillinn óður og ær,
af afbrýði Keilir er sjúkur.
Þau opinberuðu einmitt í gær
Esjan og Mælifellshnjúkur.
Davíð Hjálmar Haraldsson býr
við Eyjafjörðinn og lætur sér fátt
um finnast: „Með Súlur, Kerlingu
og Kaldbak í nágrenninu leggja
menn sig ekki niður við að yrkja
um Esjuna.“ Og honum verður að
orði:
Seint ég myndi yrkja um Esju
– umhverfis þar hrafnar sveima –
það er eins og að gera kvæði um kesju
með klasa af vetnissprengjum heima.
Hlynur Snæbjörnsson segist
aldrei hafa séð neitt sérstakt við
þennan hól, að minnsta kosti séu
mörg önnur fjöll sem hann fýsi
frekar að yrkja um, en einu sinni
las hann smásögu í Mogganum:
Svip á landið setur ei,
og sagt í fáum orðum.
Selja mátti sviplaust grey,
sjálfsagt hérna forðum.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af Esjunni og hagyrðingum
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG OG LÍSA LEIGÐUM MYND. VILTU
HORFA Á HANA MEÐ OKKUR?
ÉG ÆTLA
AÐ POPPA
ÉG ÆTLA
AÐ HITA UPP
SÓFANN
KÁSSA
HAMLET ELSKAR MIG,
HANN ELSKAR MIG EKKI...
HANN ELSKAR MIG,
HANN ELSKAR MIG EKKI...
HANN ELSKAR
MIG, HANN
ELSKAR MIG
EKKI!
ANSANS
!
FLJÓTUR,
HAMLET!
LÁTTU
MIG FÁ
ANNAÐ
MUNDU... ÉG OG
ROCKO FÖRUM INN OG
RÆNUM BANKANN EN ÞÚ
ERT TÁLBEITAN
ÉG HEF EKKI NOTAÐ
ÞAÐ ANSI LENGI EN ÉG
ER NOKKUÐ VISS UM AÐ
ÞAÐ SÉ Í FÍNU ÁSTANDI
ÉG HELD AÐ HJÓLIÐ SÉ
EKKI AÐAL VANDAMÁLIÐ
HJÁLPAÐU
MÉR BARA
ÉG LAGAÐI HJÓLIÐ OG
NÚ GET ÉG FARIÐ Á
ÞVÍ Í VINNUNA
ER ALLT Í LAGI
MEÐ ÞIG?
JÁ, ÉG ER
ÓMEIDDUR...
HVAÐ
VARÐ UM
VULTURE?
HANN FLAUG BURT
MEÐ JAMESON!
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara